Skinfaxi - 01.08.1994, Side 24
Albert H.N. Valdimarsson:
UNÞ kom á óvart í blakinu
Það fyrsta sem kom á óvart varðandi
blakkeppnina á landsmótinu var að lið
Austur- Skaftfellinga, sem sam-
anstendur af sterku 2. deildar liði
Sindra á Höfn, skyldi ekki koma til
leiks, en ég spáði því 5. sæti á mótinu.
Fjögur lið voru þá eftir í A-riðli, og
leikirnir fóru eins og reiknað var með.
Það eina sem kom á óvart var frammi-
staða UNÞ á móti UMSK, en UNÞ var
yfir í báðum hrinunum og voru þeir
óheppnir að tapa þeim báðum naum-
lega.
A-riðill
Fimmtudagur:
UMSK HSH 2-0 (15-3, 15-7)
UNÞ UMFN 2-0 (15-1, 15-2)
UMSK UMFN 2-0 (15-1, 15-1)
Föstudagur: UNÞ HSH 2-0 (15-11,15,8)
HSH UMFN 2-0 (15-3, 15-4)
UMSK UNÞ 2-0 (15-13,15-13)
Úrslit í riðli: 1. UMSK 6 stig
2. UNÞ 4 stig
3. HSH 2 stig
4. UMFN 0 stig
í B-riðli kom frammistaða HSÞ á
óvart. HSÞ náði 3. sætinu í riðlinum af
UMSE í hörkuleik, eina þriggja hrinu
leik riðlakeppninnar. HSK náði ekki að
koma UÍA úr jafnvægi í baráttunni um
fyrsta sætið. UÍA hafði rnikla yfirburði
í leiknum.
B-riðill
Fimmtudagur:
UÍA UMSE 2-0 (15-9, 15-4)
HSÞ UDN 2-0 (15-3, 15-3)
HSK UMSE 2-0 (15-11,15-10)
HSÞ HSK 0-2 (9-15, 8-15)
UÍA UDN 2-0 (15-5, 15-7)
Föstudagur:
UMSE UDN 2-0 (15-7, 15-6)
UÍA HSÞ 2-0 (15-11,15-7)
UDN HSK 0-2 (3-15, 1-15)
HSK UÍA 0-2 (5-15,7-15)
UMSE HSÞ 1-2 (12-15,15-12,
10-15)
Úrslit í riðli:
1. UÍA 8 stig
2. HSK 6 stig
Mikill áhugi reyndist vera fyrir blakinu og voru áhorfendabekkirnir þétt setnir.
3. HSÞ 4 stig
4. UMSE 3 stig
5. UDN 0 stig
í úrslitaleikjunum átti HSH ekki í
erfiðleikum með HSÞ í keppninni um
5. sætið, en í leik UNÞ og HSK um 3.
sætið var mikil spenna og það óvænta
gerðist. HSK náði að vinna tvær fyrstu
hrinurnar naumlega með mikilli bar-
áttu. Þetta kont UNÞ í opna skjöldu.
Eftir dapran leik HSK á móti UÍA dag-
inn áður bjuggust UNÞ-menn ekki við
slíkum leik að hálfu HSK-manna og
ekki lái ég þeim það. UNÞ náði ekki
sínu besta í leiknum, HSK færðist
stöðugt í aukana og í 3. hrinu gáfu þeir
að sunnan norðanmönnum engin grið
og unnu örugglega.
Þá er komið að úrslitaleik UMSK og
UÍA um 1. sætið.
Eins og á fyrri landsmótum var mik-
il spenna fyrir leikinn og ekki minnk-
aði hún við það að UÍA-liðið náði
mjög góðri byrjun í leiknum. Það var
ekki nóg með að UÍA ynni 1. hrinu,
sem var þó nokkur baráttuhrina, heldur
voru austanmenn vel yfir í 2. hrinu.
Með mikilli baráttu náði UMSK að
vinna 2. hrinu afar naumlega og það
var eins og þá rynni það fyrst upp fyrir
UMSK-mönnum að þeir þyrftu að taka
á þeim stóra sínum til að leggja UÍA
að velli. Það gerðu Islandsmeistarar
HK og ungu strákarnir úr Stjörnunni,
sem mynduðu UMSK-liðið. Þeir náðu
að sýna blak eins og það gerist best á
Islandi og UIA- menn urðu að játa sig
sigraða eftir frækilega mótspyrnu. Sem
sagt, góður endir á góðri keppni, þar
sem skipulag og framkvæmd var öllum
til sóma.
Úrslitaleikir:
1.-2. sæti:
UMSK UÍA 3-1 (11-15,16-14,15-8)
3.-4. sæti
UNÞ HSK 0-3 (13-15,15-17,9-15)
5.-6. sæti:
HSH HSÞ 3-0 (15-7, 15-4, 15-5)
Röð liða:
1. UMSK
2. UÍA
3. HSK
4. UNÞ
5. HSH
6. HSÞ
UMFN
UMSE
UDN
24
Skinfaxi