Skinfaxi - 01.08.1994, Side 25
Jón M. ívarsson skrifar um glímu á landsmóti:
Fyrsta keppni kvenna
f glímunni var að vanda keppt í
þremur þyngdarflokkum karla og nú
bættust að auki við tveir þyngdarflokk-
ar kvenna. Þama kepptu 14 glímukon-
ur og 23 glímumenn eða samtals 37
keppendur, sem er þátttökumet.
Fjöldi áhorfenda setti sig í stellingar
til að fylgjast með fyrstu keppni
kvenna í glímu á landsmóti og höfðu
jafnvel sumir ekki séð hið fríðara kyn
spreyta sig í þjóðaríþróttinni.
Konur -60 kg tlokkur-úrslit:
1. Karólína Ólafsdóttir HSK 5 v.
2. Katrín Ástráðsdóttir, HSK 3,5+1 v.
3. Sjöfn Gunnarsdóttir HSK 3,5+0 v.
4. Fjóla María Ágústsd. HSÞ 2 v.
5. Arnfríður G.Arngrímsd. HSÞ 1 v.
6. Aðalheiður Guðbjörnsd. HSS 0 v.
Hér unnu Skarphéðinsstúlkur þre-
faldan sigur og höfðu yfirburði í
flokknum. Hin knáa Karólína sýndi
enn einu sinni að hún er næstum ósigr-
andi og lagði alla andstæðinga sína
fremur auðveldlega. Fulltrúar Flóa-
manna, Katrín og Sjöfn komu næstar.
Katrín glímir afar lipurt og er lagin
við að láta andstæðinginn ganga í
brögðin án þess að beita til þess mikl-
um kröftum. Sjöfn er eins og hinar,
grönn og stælt, og ágætlega sterk, en
skortir hina nákvæmu tímasetningu
sem Katrín og Karó hafa. Aðrir kepp-
endur virtust ekki í jafngóðri æfingu
og þessar þrjár sem voru í sérflokki.
Konur +60 flokkur-úrslit:
1. Heiða Björg Tómasdóttir
2. Ingveldur Geirsdóttir
3. Jóhanna Kristjánsdóttir
4. Sólveig Pétursdóttir
5. Sabína Halldórsdóttir
6. Jóhanna Þóroddsdóttir
7. Kristjana Eysteinsdóttir
8. Steinunn Eysteinsdóttir
HSK 6 v.
HSK 5 v.
HSÞ 3,5 v.
HSÞ 3 v.
HSK 2 v.
HSÞ 1,5 v.
HSS 0 v.
HSS
hætti keppni
Heiða Björg sigraði af öryggi og var
aldrei í fallhættu. Hún er sterk og lagin
að lauma hælkrók á andstæðingana.
Ingveldur var einnig örugg um annað
sætið. Hún er kvenna hæst, en nýtir sér
það lítt til hábragða. Jóhanna Krist-
jánsdóttir er vel sterk og bar við all-
Ólafur Sigurðsson leggur Stefán Bárðarson
í hörkuglímu.
mörg brögð, en skorti nokkuð á að út-
færa þau til fulls eins og reyndar flestir
keppendur sem neðar komu.
Sólveig er afar sterk og sýndi tilþrif
á köflum en var mistæk enda greini-
lega ekki í glímuæfingu. Sabína sýndi
tvívegis glæsileg tilþrif er hún lagði
andstæðinga á listafallegum mjaðmar-
hnykk en var dálíitð mistæk og glímdi
undir getu í heildina séð.
Frísklegur flokkur
Ekki var síður mikið um að vera í
karlaflokkunum sem vænta mátti.
Heimamenn á landsmótinu, Skarphéð-
insmenn, sendu fullskipað lið, eða þrjá
í hvern flokk. Sama gerðu Þingeyingar.
Einnig voru mættir til leiks þrír ungir
Austfirðingar og úr Skagafirði kom
einn glímukappinn og annar úr Reykja-
vík.
Karlar -75 kg flokkur-úrslit:
1. Helgi Kjartansson HSK 6 v.
2. Torfi Pálsson HSK 4,5 v.
3. Yngvi R. Kristjánsson HSÞ 3,5 v.
4-5. Sigurbjörn Arngrímss. HSÞ 2,5 v.
4-5. Sigurjón Pálmarsson HSK 2,5 v.
6. Róbert Sigurðsson UÍA 2 v.
7. Pétur Eyþórsson HSÞ 0 v.
Hér glíindi frísklegur flokkur ungra
inanna og var létt yfir glímum og mik-
ill hreyfanleiki. Helgi Kjartansson,
bóndasonur úr Grímsnesinu, var ör-
uggur sigurvegari og lagði andstæð-
inga sína lipurlega á hælkrók og klof-
bragði til skiptis.
Hinn 17 ára kollegi hans úr Laugar-
dalnum, Torfi Pálsson, náði góðum ár-
angri þegar hann tryggði sér annað
sætið með jafnglími við Yngva Ragnar
og sigri í líflegum viðureignum við
fjóra andstæðinga. Torfi er grannur og
stæltur og glímir létt með hælkrók og
hábrögðin efst á blaði.
Yngvi Ragnar var elstur keppenda
en hefur þó aðeins þrjá um tvítugt.
Hann fékk óvænt byltu frá nýliðanum
Róbert og lenti þar með í þriðja sæti.
Yngvi er snarpur í glímu og mikill
keppnismaður með klofbragð sem eitt
helsta vopnið ásamt leggjarbragði.
Sigurbjörn á hlaupum
Minnstu munaði að Sigurbjörn Am-
grímsson yrði af gh'mukeppninni.
Hann er reyndar stórum þekktari sem
millivegalengdahlaupari en glímumað-
ur og er þar enginn aukvisi en kom
fyrstur í mark í 800 metra hlaupi, svo
dæmi séu nefnd.
Keppni í léttasta flokki var frestað
þar til síðast, svo hann gæti lokið
hlaupakeppni í 1500 m á undan
glímunni. Það var áskilið að hann
kæmi til leiks stundvíslega korter fyrir
þrjú. Þegar sú stund rann upp var Sig-
urbjörn ókominn og voru þá aðrir
keppendur kallaðir fram til kynningar.
Rétl sem þeir röðuðu sér upp í beina
röð kom Sigurbjörn á harðaspretti inn
á gólf, í hlaupagallanum, en hafði þó
tekið af sér gaddaskóna! Hann hafði
engin umsvif en hafði fataskipti í miðj-
um sal, snaraði sér í glímubúninginn
og lauk við að spenna glímubeltið á sig
jafnsnemma og hann var kynntur með
kurt og pí og síðan sendur í fyrstu
glímu. Er óhætt að segja að hann hafi
hitað upp best allra keppenda!
Sigurbjörn stóð fyrir sínu og var
jafn Sigurjóni Pálmarssyni í 4-5. sæti
Skinfaxi
25