Skinfaxi - 01.08.1994, Blaðsíða 28
Ljúfir endurfundir
á ‘65-heimilinu
Hresst fólk fyrir utan ‘65-heimilið, f.v. Sigríður Teitsdóttir, Ólöf Halldórsdóttir, Ingibjörg
Harðardóttir og Hafsteinn Þorvaldsson.
„Fólk hefur komið hér í stórum
hópum og hér hafa margir Ijúfir endur-
fundir átt sér stað,“ sögðu þær Unnur
Stefánsdóttir, og Ólöf Halldórsdóttir
frá HSK, þegar Skinfaxi tók hús á
þeim á ‘65-heimilinu. Þær voru ásamt
fleirum í ‘65-undirbúningshópnum.
„Það var alveg troðfullt hér, á laugar-
dagskvöld,“ sagði Ósk. „Stemningin
var mjög góð og fólk hafði rn.a. mjög
gaman af að skoða myndbandið frá
landsmótinu á Laugarvatni ‘65. Þá
hafa gömlu ljósmyndirnar vakið mikla
athygli, svo og gamlar leikskrár og
skýrslur frá ‘65.
Fólki finnst svo gaman að hittast og
spjalla. Hér hefur því verið boðinn
kaffisopi, það skrifar sig í gestabók og
getur þess jafnframt hvað það hafi gert
á mótinu ‘65, hvort sem um var að
ræða íþróttakeppni, þjóðdansa eða ann-
að. Þessi gestabók á eftir að verða góð
heimild þegar fram líða stundir.“
Unnur sagðist reyndar hafa haft
alltof lítinn tíma til þess að blanda geði
við ‘65-hópinn á landsmótinu nú. Önn-
ur verkefni hefðu kallað, þannig að
hún hefði verið í önnum frá rnorgni til
kvölds. Engu að síður höfðu þær Ósk
greinilega haft tíma til að stinga saman
nefjum og sögðu þær skellihlæjandi frá
þeirri hugmynd sem upp hefði komið,
að setja Rúnar Júi. Hljómamann í sói-
stól fyrir utan ‘65-húsið og láta hann
selja áritaðar ‘65-húfur.
Þær töldu nokkuð öruggt að meiri
sala yrði í húfunum með þessari að-
ferð, en hinni, að selja þær einungis í
húsinu. „En það er spurning hvað Rún-
ar myndi þola við úti í rigningunni,“
sögðu þær og var greinilega skemmt.
Þess má geta, að Ólöf bjó til sérstakt
merki fyrir ‘65-þátt landsmótsins, sem
hún gaf því. Kristbjörg Helgadóttir sá
um að teikna það að fyrirmælum
Ólafar.
I merkinu er að sjálfsögðu talan ‘65,
svanapar, talan 12 fyrir 12. landsmótið,
21 fyrir landsmótið nú og burstirnar á
héraðsskólanum sem eins konar nafla-
strengur á milli talnanna tveggja.
Þessir þrír kúluvarparar frá landsmótinu á Laugan’atni 1965 hittust í ‘65-heimilinu, f. v.
Oddrún Guðmundsdóttir, UMSS, Ragnheiður Pálsdóttir, HSK og Ólöf Halldórsdóttir,
HSK. A myndinni sitja þœr í sömu röð og þœr stóðu á verðlaunapallinum á landsmótinu
1965, og auðvitað eru þœr allar með 65-húfurnar.
28
Skinfaxi