Skinfaxi - 01.08.1994, Síða 29
Hvað sögðu landsmótsgestir?
Brosum bara
í rigningunni
„Við brosum bara í rigningunni,“
sögðu þær Ósk Ólafsdóttir og Kristín
Finndís Jónsdóttir, báðar úr UMSB,
þegar Skinfaxi hitti þær fyrir inni í
tjaldi á sunnudagsmorguninn. Þá
rigndi svolítið, en veðrið átti fljót-
lega eftir að snúast til betri vegar.
Þær stöllur sögðust vera mjög á-
nægðar með mótið. Þær komu á
mótsstað á fimmtudagsmorgun og
dvöldu þar að sjálfsögðu þar til mót-
inu lauk. Þær sögðust ekki hafa und-
an neinu að kvarta, flugan hefði að
vísu verið heldur aðgangshörð við
þær þar lil hún hefði orðið að lúta í
lægra haldi fyrir rigningunni.
„En okkur finnst mótið hafa verið
alveg ljómandi gott,“ sögðu þær.
„Það var virkilega gaman að pönnu-
kökubakstrinum í gær. Þá var spenn-
andi að fylgjast með sundinu og sjá
hvað UMSB stóð sig vel þar. Okkur
Ósk Ólafsdóttir og Kristín Finndís
Jónsdóttir frá UMSB.
finnst að starfsíþróttirnar séu mjög
mikilvægar í mótshaldi sem þessu og
megi alls ekki missa sín. Það þarf að
leggja mikla áherslu á þær fyrir
næsta landsmót.“ Ósk og Kristín
sögðust vera sérlega ánægðar með
körfuboltakeppnina vegna góðs
gengis UMSB á þeim vettvangi.
„Okkur finnst öll skipulagning á
mótinu vera til fyrirmyndar. Svæðið
er mjög gott, allt á einum stað, og
auðvelt að fylgjast með því sem
fram fer hverju sinni.“
Össur lofaði öllu fögru
Anna Mikaelsdóttir frá HSÞ.
Mikiö stuð og fjör
„Það var búið til landsmótslag og
texti hjá HSÞ og þetta framtak hleypti
miklu fjöri af stað,” sagði Anna
Mikaelsdóttir frá HSÞ. Það vakti
óneitanlega athygli þegar baráttu-
söngur þeirra HSÞ-manna tók að
hljóma á öldum ljósvakans landsmóts-
dagana. „HSÞ, harðir í horn!” sagði í
textanum og að sjálfsögðu voru það
félagar í HSÞ sem voru þarna að
hvetja sjálfa sig og sína menn til dáða.
„Þetta var spilað á leiðinni í
rútunum og í þessum stórgóða gámi
sem þið sjáið hér á bílnum,” sagði
Anna. „Þeir fóru Kjöl og voru eina 14
tíma á leiðinni og spiluðu lagið góða
að sjálfsögðu allan tímann. Svo hefur
það hljómað í tjaldinu okkar hérna á
mótsstað, það hefur verið spilað úti á
velli og alls staðar sem því hefur verið
við komið.”
Anna var mætt á mótsstað á
miðvikudag og sagðist vera ánægð
með dvölina. „Það er alltaf gaman að
vera með. Ég hef farið á ótal mörg mót
með krökkunum, valdist reyndar í
landsmótsnefnd nú, og það er
heilmikil vinna. Ég var hér ‘65 og
þetta er ekkert líkt því, enda var ég
ekki að vinna þá, en gat leikið mér.
Gærdagurinn var mjög skemmt-
ilegur. Við grófum hér djúpa holu í
jörðina og grilluðum frábært kjöt frá
kaupfélaginu okkar, sem hefur styrkt
okkur vel til ferðarinnar. Það borðuðu
170-180 manns hjá okkur í gærkvöld
og stemmningin var alveg frábær. Það
var mikið stuð og fjör á fólkinu.“
„ Þetta hefur verið mjög gott, allt
nema veðrið. Össur umhverfisráðherra
lofaði að vísu gulli og grænum skógum
Róbert Agnarsson frá UMSK.
við setningarathöfnina, en það stóðst
nú ekki þegar til kom,“ sagði Róbert
Agnarsson, UMSK, einn landsmóts-
gesta á Laugarvatni.
Róbert sagðist hafa fylgsl með
frammistöðu keppenda á mótinu, eins
og unnt hefði verið.
„Hér hafa fallið nokkur landsmóts-
met, sem er auðvitað ánægjulegt. En
árangurinn tekur að einhverju leyti mið
af veðrinu. Rigningin hlýtur að hafa
áhrif og koma niður á íþróttafólkinu að
einhverju leyti. Vistin í tjöldunum er
ekki góð, þegar svona viðrar og hlýtur
að draga úr möguleikum keppenda til
stórra afreka. ‘ ‘
Róbert kvaðst vera eftir atvikum á-
nægður með frammistöðu sinna félaga.
„UMSK er náttúrlega fjölmennasta
sambandið. Það ætti að bera sigur úr
býtum, en það virðist ekki ætla að
ganga eftir, þegar hér er komið sögu,
þannig að betur má ef duga skal.“
Skinfaxi
29