Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 30

Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 30
Fyrirmynd- armót „Mér finnst hafa tekist nokkuð vel til með allt nema veðrið, sem enginn fær við ráðið. Mér sýnist framkvæmd mótsins vera til fyrirmyndar,“ sagði Jónas Þór Jóhannsson, UIA, þegar Skinfaxi greip hann glóðvolgan úti við tjaldskör á sunnudagsmorguninn. Jónas sagðist að sjálfsögðu hafa fylgst með frammistöðu síns fólks. „Að því er ég best veit erum við með 108 keppendur hér, auk foreldra og að- standenda. Ég giska á svo 150-160 manns í allt. Mitt fólk hefur verið kátt og skemmt sér hið besta á mótinu. Það skemmtilegasta sem gerðist hjá okkur var þessi óvænti sigur í kvennaknatt- spyrnunni, en þar kræktum við í gullið. Jónas Þór Jóhannsson. Svo náðum við silfri í blakinu og gulli í jurtagreiningu, svo að við megum vel við una. Ég sleppti að sjálfsögðu ekki Hljómaballi. Það er bráðnauðsynlegt að heyra í þessum mönnum aftur og það fór um mann Ijúfur straumur end- urminninganna.“ sagði Jónas Þór og þar með var hann rokinn til að sinna staifi sínu sem liðsstjóri. Þau Jón Sigfús Bœringsson, Gaðrún Anna Númadóttir og Björn Kristinn Adolfsson frá UMSS voru að taka niður tjaldið um hádegisbil á sunnudag, þegar blaðamaður tók þau tali. Þau sögðu að mótið hefði verið sérlega gott og ekkert gert til þótt svolítið hefði rignt. Þau höfðu öll keppt í boccia og voru kampakát yfir árangrinum, því þau höfðu náð 2. sœti. Meiri áhersla á starfsíþróttir „Mér finnst að það mætti vanda meira til starfsíþróttanna,“ sagði Guðbjörg Ragnarsdóttir, UMSE. Hún var mætt ásamt fjölskyldunni að Laugarvatni, eiginmanni og þremur börnum. „Maðurinn minn keppti hér í dráttavélarakstri og blaki. Við skulum segja að honunt hafi bara gengið vel, þótt auðvitað megi alltaf ganga betur. Mér finnst að það ætti hver lands- mótsnefnd að ákveða eftir hverju hún ætlar að dæma og senda plögg sem gera skýra grein fyrir því í hér- uðin. Þá vita allir að hverju þeir ganga. Þetta er ekki nógu gott fyrir- komulag, að maður sé að fá einhver plögg heim, sem maður á að læra, og mæti svo til leiks, en hlutirnir séu ekki nákvæmlega eins og sagt hafði verið. Starfsíþróttirnar eru ekki eins og aðrar íþróttir að því leytinu til að það eru ekki til sérstök lög um hvemig eigi að fara eftir þessu. Þess vegna er hver með sína hefð. Það þarf að efla starfsíþróttirnar. Það sést best á aðsókninni að það er mjög mikil) áhugi fyrir þeim. Það er áberandi að fólk vill brjóta þetta upp og hafa meira til þess að fylgjast með, í stað þess að hanga alltaf á sama stað á íþróttavellinum.“ Guðbjörg sagðist ánægð með mótið að öðru leyti. „Það var til dæmis mjög góð hugmynd að fá Magga Scheving hingað. Það er upplifun fyrir lands- byggðarfólkið að fá að sprikla með honum. Hann hefur vakið athygli hvar sem hann hefur farið um svæð- ið.“ Guðbjörg Ragnarsdóttir. 30 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.