Skinfaxi - 01.08.1994, Qupperneq 46
Lýðveldishlaupið ‘94:
Þátttakendur frá 5 til 87 ára
Frá verðlaunaafhendingunni, t.v. Elín Þorsteinsdóttir kynningar- og gœðastjóri Islenskra
sjávarafurða hf, Anna Margrét Jóhannesdóttir verkefnisstjóri Lýðveldishlaupsins ‘94.
Verðlaunahafarnir Bryndís Svavarsdóttir Hafnatfirði, Bertha K. Jónsdóttir Reykjavík, full-
trúi Odds Sigurðarsonar og Rebekku Gylfadóttur, Jónína Kristjánsdóttir Svarfaðardal,
Sigmundur F. Þórðarson formaður Iþr.f. Höfrungs á Þingeyri, Kjartan Guðjónsson 87 ára
Hafnfirðingur, Snorri Hjaltason formaður Umf. Fjölnis. Fyrir framan eru drengirnir
Gunnar Ingi Valdimarsson frá Bíldudal og Bjarni Páll Jakobsson Reykjavík, sem báðir eru
5 ára.
Lýðveldisverkefni UMFÍ hefur tek-
ist mjög vel. Þátttakendur voru u.þ.b.
25.000 á 270 þátttökustöðum um land
allt og þátttökuskiptin yfir landið urðu
samtals um 272.000, sem jafngildir því
að þátttakendur hafa gengið samtals
um 816.000 km. Þessi þátttaka jafnast
á við að gengið hafi verið c.a. 20 sinn-
um í kring um hnöttinn.
Lýðveldishlaupið er lýðveldisverk-
efni UMFI sem er unnið í samvinnu
við Iþróttir fyrir alla og Heilsueflingu.
íslenskar sjávarafurðir hf. er stuðnings-
aðili hlaupsins en fyrirtækið hefur um
árabil veitt fjármagni til ungmennafé-
laga um land allt til stuðnings starf-
semi þeirra.
Það hefur verið einkar ánægjulegt
hve vel var að Lýðveldishlaupinu stað-
ið hjá flestum ungmenna- og íþróttafé-
lögum, en þau leituðust við að gera
þátttöku almennings sem auðveldasta.
Þannig var þátttaka góð jafnt í þéttbýli
sem í sveitum landsins.
Holl hreyfing fyrir alla fjölskylduna
er slagorð Lýðveldishlaupsins ‘94. Það
er óhætt að segja að hlaupið hafi staðið
undir því þar sem þátttakendur hlaups-
ins voru einstaklingar og fjölskyldur á
öllum aldri allt frá 5 ára til 87 ára.
Lýðveldishlaupið þáttur í
almermingsíþróttum
Almenningsíþróttir verða sífellt vin-
sælli sem sannast best á því hve
hverskyns hlaup eða göngudagar sem
boðið hefur verið uppá undanfarið, er
vel sótt. Lýðveldishlaupið hefur haft
þá sérstöðu að það stóð yfir í 99 daga
og var tilgangurinn með því að hvetja
almenning til að hreyfa sig sem oftast.
Það virðist sem skráningarbókin og
stimpill til staðfestingar á þátttöku í
hlaupinu hafi haft mikil hvatningar-
áhrif. Þátttakendur gátu fylgst með
eigin árangri, hve oft var farið út að
ganga þessa vikuna og um leið safnað
þátttökuskiptum. Heyrst hefur að um-
ræður í fjölskyldufögnuðum hafi leiðst
út í meting um hve oft menn hafi tekið
þátt í Lýðveldishlaupinu og hvort þeir
hafi átt möguleika á að ná brons-, silf-
ur- eða gullverðlaunamerki. Þannig
hefur samanburðaráráttan ágæt gildi ef
um hvatningu til hollra athafna, eins og
að hreyfa sig reglulega, er að ræða.
Verðlaunaafhending Lýðveldis-
hlaupsins var 8. september sl. í sal
þjónustumiðstöðvar UMFÍ. Það var á-
nægjulegt að flestir verðlaunahafar úr
Gullpotti Islenskra sjávarafurða hf.
gátu mætt í verðlaunaafhendinguna og
tekið á móti verðlaunum sínum.
Verðlaun til einstaklinga
Aðalverðlaun úr Gullpotti íslenskra
sjávarafurða hf. voru ferð fyrir tvo til
Bandaríkjanna og sú heppna var Jónína
Kristjánsdóttir frá Skriðudal í Svarfað-
ardalshreppi.
Aukaverðlaun voru æfingagalli á-
samt reiknivél og svuntu frá Islenskum
sjávarafurðum hf. Fjögur aukaverðlaun
voru veitt og hlutu eftirfarandi ein-
staklingar verðlaunin:
1. Bjami Páll Jakobsson, Reykjavík
2. Bryndís Svavarsdóttir, Hafnarfirði
3. Oddur Sigurðsson, Hvammstanga
4. Rebekka Gylfadóttir, Hvammstanga
Einnig voru veitt viðurkenningar-
skjöl fyrir framúrskarandi þátttöku til
þeirra einstaklinga sem tóku þátt í
hlaupinu alla dagana í 99 skipti. Hátt í
hundrað einstaklingar mynda þennan
dugnaðarhóp er dreifist jafnt yfir alla
landshluta.
Á tímabilinu meðan hlaupið stóð
yfir var veittur fjöldinn allur af verð-
launamerkjum til þátttakenda. Samtals
voru veitt 6.700 gull-, silfur og brons-
verðlaunamerki til einstaklinga um allt
land.
Verðlaun til ungmenna- og
íþróttafélaga
Ungmennafélagið Fjölnir í Grafar-
vogi fékk verðlaun fyrir mesta þátttöku
í hlaupinu, en félagsmenn Fjölnis tóku
samtals 9830 sinnum þátt í hlaupinu í
sumar.
46
Skinfaxi