Skinfaxi - 01.12.1996, Síða 8
Vanda Sigurgeirsdóttir á að baki ótrúlegan
feril sem leikmaður og þjálfari hjá Breiða-
bliki en nú hefur hún tekið að sér stærra
verkefni. Vanda er fyrsta konan sem fær að
spreyta sig á því að þjálfa a-landslið kvenna
í knattspyrnu. Vanda á sjálf að baki 37
landsleiki en hún hefur leikið alla leiki
liðsins undanfarin átta ár að undanskildum
einum. Nú færir hún sig hins vegar á
hliðarlínuna en hver var aðdragandinn að
því að hún tók við landsliðinu?
Knattspyrna
— T —
"íim íf? tai:
11 i
Tlli; «711 talT
„Þetta hafði verið minn draumur en ég
átti kannski frekar von á að þurfa að bíða
í nokkur ár eftir því að sá draumur
myndi rætast."
En nú varst þú búin að segja upp
starfi þínu hjá Umf. Breiðabliki áður en
gefið var upp að þú tækir við
landsliðinu. Var ekkert búið að ráðgera
á milli þín og landsliðsins áður en þú
sagðir upp starfinu?
„Það er rétt að uppsögn mín hjá
Breiðabliki kom áður, en það kom ekkert
landsliðinu við. Ég var búin að vera svo
lengi með liðið og búin að þjálfa margar
stelpurnar þarna upp í sex ár og taldi
þess vegna að það væri kominn tími
bæði fyrir mig og fyrir þær að breyta til.
Ég var alveg eins tilbúin að fara að þjálfa
annars staðar og í rauninni var það
stefnan hjá mér."
Nú hefur kannski aldrei sést hversu
góður þjálfari þú ert þar sem Breiðablik
hefur í gegnum tíðina haft flest allar
bestu stelpurnar í deildinni. Ertu nógu
góð til að taka við landsliðinu?
„Ég vil nú meina að það sé engin
tilviljun að þessar stelpur eru bestar á
landinu. Ekki að það sé eingöngu mér
að þakka og alls ekki, því þarna eru á
ferðinni mjög hæfileikaríkar og færar
stelpur en einhvern heiður á ég nú
skilið."
En ertu nógu góður þjálfari?
„Já, ég held að ég sé nógu góður
þjálfari til að taka við landsliðinu og ég
held að Eggert Magnússon og þeir hjá
KSÍ hefðu ekki ráðið mig ef þeir hefðu
efast um mig sem þjálfara. Eg hefði
heldur aldrei tekið þetta að mér ef ég
hefði ekki trú á sjálfri mér."
Nú verður aldursmunurinn milli þín
og leikmanna lítill og jafnvel enginn.
Verður ekki erfitt að fá stelpurnar til að
bera virðingu fyrir þér sem þjálfara
eftir að þú hefur verið leikmaður og
félagi þeirra öll þessi ár?
„Aldursmunurinn verður lítill og ég er
nú reyndar yngri en til dæmis Laufey.
Þetta var nú svona þegar ég byrjaði að
þjálfa hjá Breiðabliki og þá fannst mér
það ekkert erfitt. Nú hef ég þá reynslu
og er líka eldri og ég á ekki von á því að
stelpurnar beri neitt minni virðingu fyrir
mér þótt aldursmunurinn sé ekki til
staðar. Stelpurnar hljóta að dæma mig
eftir því sem ég hef gert en ekki eftir því
hvað ég er gömul eða hvort ég var
vinkona þeirra."
Það halda kannski einhverjir að
vegna þess að þú kemur frá Breiðabliki
veljir þú frekar stelpur þaðan í
landsliðið, en finnur þú fyrir einhverri
pressu útaf þessu?
«Ég er
nú bara
þannig að
ég hata að
tapa og vil
alltaf
vinna og
mun því
alltaf velja
besta liðið.
Ég hef sagt
það oft
áður að ég
tæki
mömmu Vanda með síðasta
mína eða Islandsmeistaratitilinn?
systur út úr
liðinu ef þær væru ekki nógu góðar til að
vera þar svo ég held að það þurfi enginn
að hafa áhyggjur af þessu. Það er samt
önnur hlið á þessu máli líka og hún er sú
8
Skinfaxi
UMFÍ
að ég velji ekki Breiðabliksstelpur þar
sem ég væri hrædd um að þá héldu allir
að ég væri með einhverja klíku en ég hef
engar áhyggjur af þessu og ég veit að ég
mun alltaf velja það lið sem er best
hverju sinni."
Verða einhverjar stefnubreytingar hjá
þér?
,Já."
Hverjar þá helstar?
„Ég vil láta stelpurnar æfa meira. Ég
er búin að kynna mér þjálfun hjá norska,
danska, bandaríska og ástralska lands-
liðinu og ég sé ekki aðra lausn en þá að
við verðum að æfa meira ef við ætlum að
ná lengra."
Ertu þá að tala um æfingabúðir?
„Ég vil að landsliðið hittist oft og ég
hef fengið ráðleggingar um að það sé
nauðsynlegt þar sem við erum með svo
stutt keppnistímabil og lágan „standard"
á deildinni. Þetta er nokkuð auðvelt
fyrir okkur hérna á íslandi þar sem lang
flestar stelpurnar eru hérna í nágrenninu
og stutt að fara á æfingar."
Hvernig taka þjálfarar 1. deildar-
liðanna í þessar hugmyndir þínar?
„Ég hef þegar haft samband við
nokkra af þjálfurum liðanna og þeir hafa
allir tekið mjög vel í þetta. Um væri að
ræða eina æfingu á viku yfir vetrar-
mánuðina og félögin myndu þá bara
gera ráðstafanir í kringum þessa einu
æfingu þegar æfingar þeirra væru
skipulagðar."
Nú hefur landsliðið náð ágætum
árangri að undanförnu og verið nálægt
því að komast upp úr sínum riðlum.
Islendingar vilja auðvitað alltaf meira
Ég hefsagt það oft
áður að ég tœki mömmu
mína eða systur út úr
liðinu ef þœr vœru ekki
nágu gáðar til að vera
þar
en síðast en við hverju má búast af
stelpunum í framtíðinni?
„Að sjálfsögðu stefnum við á það að
komast upp úr riðlunum en það er mjög
erfitt. Það eru sextán bestu liðin sem eru
saman og núna erum við í þriðja sæti í
okkar riðli sem þýðir það að við getum
lent með tveimur mjög sterkum liðum.
Við ætlum hins vegar að æfa mjög stíft
og svo verður bara að koma í ljós
hvernig við stöndum gegn þeim bestu."
Telur þú að það komi niður á
landsliðinu hversu ójöfn liðin í
Mizuno-deildinni eru?
„Ég held að það hafi tvímælalaust
slæm áhrif fyrir landsliðið að kjarni
landsliðsins var að spila mjög létta leiki
allt tímabilið. Það er mikill hraðamunur
á því að spila leik hérna heima sem
vinnst 10:0 og fara svo út og keppa við
Þýskaland, það er kannski best hægt að
lýsa því að það sé eins og að fá hnefa í
andlitið. Þetta er það sem allir eru að
ræða um núna og það er til dæmis tillaga
fyrir KSÍ-þinginu um breytingar á
keppnistímabilinu sem yrðu af hinu
góða og svo held ég að hin liðin sætti sig
nú ekki lengur við að Breiðablik hafi
þessa yfirburði í deildinni."
Að lokum, var ekkert erfitt að segja
skiliðvið sparkið og um leið
Breiðablik?
„Að sjálfsögðu eru það mikil viðbrigði
að hitta ekki stelpurnar sem maður hefur
verið að hitta kannski sex sinnum í viku.
En ég hitti þær og aðrar stelpur á
landsliðsæfingum og ég hef mjög gaman
af því en ég hef hins vegar verið að nota
tímann til að vera með manninum
mínum og ég hef mjög gaman af því."»
Þú kemur með hugmynd - Við sjáum um afganginn
Snöggir & áreiðanlegir
UMFÍ
Skinfaxi
9