Skinfaxi - 01.12.1996, Blaðsíða 33
„Maður er alltaf að reyna að bæta sig í
tugþrautinni og gleymir að hugsa urn
einstök met í hverri grein," sagði Jón
Arnar sem fékk einmitt símtal frá
þjálfara sínum eftir að hann hljóp 100
metrana á 10,3 sek á æfingarmóti og
hafði þar jafnað gamalt Islandsmet en
ekki gert sér grein fyrir því. Þetta er
langt frá því að vera eina Islandsmetið
hjá Jóni því hann á til dæmis líka metið í
200 metra hlaupi, 110 metra grind og
langstökki.
Jón Arnar sagði í viðtali við Skinfaxa
fyrir um ári að tugþrautarmaður yrði að
vera góður í öllum greinunum til að eiga
einhverja möguleika á að ná langt en
hann á sér samt uppáhaldsgreinar. „Það
er alltaf gaman að
stökkva og
sjá hvað
maður
kemst
langt.
Einnig finnst mér stangarstökkið
skemmtilegt."
Æfingarnar fyrir mót eins og Olympíu-
leikana eru langar og strangar en íþrótta-
menn verða að „toppa" á réttum tíma og
mikilvægt að vera með góð tæki sér til
aðstoðar. Mjólkursýrumælingar hafa
notið mikilla vinsælda um allan heim að
undanförnu en Jón Arnar notaði þessa
nýju tækni á undirbúningstímabili sínu.
„Við vorum að prufa þetta fyrst núna
svo það er erfitt að gera sér grein fyrir
því hversu mikið það hjálpaði mér fyrir
Olympíuleikana. Hitt er annað mál að
þetta er mjög nauðsynlegt tæki og
leiðbeinir manni mjög vel með undir-
búningi fyrir mót." Jón Arnar og Lýra
voru að prófa þetta tæki í sumar og
sagðist Jón stundum hafa verið orðin
ansi aumur í puttanum eftir um tíu
stungur á dag en í hvert skipti sem
mjólkursýran er athuguð þarf að fá einn
blóðdropa til að mæla.
„Það mega vera mest 4 millimól af
mjólkursýru án þess að það hafi áhrif á
getu en án mjólkursýrumælingarinnar
hefði maður enga hugmynd um magnið
í blóðinu. Þetta tæki segir manni líka
hversu mikið maður getur lagt á sig á
æfingum og hvað púlsinn má vera hár
svo þetta tæki aðstoðar mann mikið."
Nú er Jón Arnar einn frægasti íþrótta-
maður okkar Islendinga og í
surnar leið varla sá dagur að
ekki væri fjallað um
hann í fjölmiðlumá
Islandi en Jón Arnar
finnur ekki mikið
fyrir þessu en tók
eftir einum
ummælum sem
honurn fannst
skemmtileg.
„Það var viðtal
við Pál Oskar í
DV þar sem
hann er
spurður að því
hver sé
uppáhalds-
íþrótta-
maðurinn
hans en
flestir vita
nú að Palli
er „antis-
portisti".
Hann svaraði
hins vegar
þessari
spurningu og
sagði þessi flotti
með litaða skeggið.
Mér fannst gaman að
þessu og greinilegt að
skeggið hefur vakið
einhverja athygli."•
hér á landi sé ekki sú besta. „Aðstaðan
er ekki góð en maður er ekkert að kvarta
yfir henni. Það er samt fyndið að þegar
ég er að segja tugþrautarmönnunum frá
hinum löndunum hvernig ég æfi trúa
þeir því varla og finnst ótrúlegt að land
svona norðanlega eigi ekki góða
innanhússaðstöðu," sagði Jón Arnar.
Islendingar eru ekkert öðruvísi en
aðrir og það gefur alveg augaleið að ef
okkar fólk æfir ekki við sömu aðstæður
og samkeppnisaðilar þeirra úti í hinum
stóra heimi, verðum við aldrei með neitt
meira en meðalmennskuna. Fyrir
síðustu Olympíuleika fengu sumir
keppendur okkar að undirbúa sig mjög
vel fyrir leikana og sýndu t.d. Jón Arnar
og Guðrún Arnardóttir að þegar þau sitja
við sama borð og aðrir keppendur má
fara að gera kröfur til þeirra. Jón Arnar
er aðeins 27 ára og getur vel bætt sig
fyrir næstu Ólympíuleika en skiljanlega
er erfitt fyrir fjölskyldumenn að stunda
bæði sína vinnu og æfa eins og atvinnu-
mennirnir út í heimi gera.
„Ég hef nú alltaf reynt að æfa sem
mest hérna heima og það hefur kannski
hjálpað mér að fá styrki til æfinga. Núna
virðist samt allt liggja niðri og enginn
virðist vilja taka neinar ákvarðanir."
Framtíðin er því nokkuð óljós hjá Jóni
Arnari þessa dagana en hann bíður eftir
svörum hjá Ólympíunefnd og
afreksmannasjóði um
framhaldið.
„Það hefur alltaf verið '
mín stefna að fara í
jarðfræði þegar
íþróttunum lýkur en
ég vona að ég verði
nú með á næstu
Ólympíuleikum.
Þá verð ég 31
árs og á besta
aldri en eins og
íþrótta-
áhugamenn
vita er Dan
O'Brien, besti
tugþrautar-
maður
heims,
einmitt á
þeim aldri."
Það er
ekki algengt
að íslands-
met í
einstökum
greinum séu
slegin af tug-
þrautarmanni, en
Jón Arnar sýnir það
kannski best hversu
mikla yfirburði hann
hefur yfir aðra frjáls-
íþróttamenn þegar hann
krækir í nokkur Islandsmet.
UMFJ