Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1996, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.12.1996, Blaðsíða 12
Körfu "stúfar fjerbert fer IR-ingar uröu fyrir mikilli blóðtöku þegar landsliðsmaðurinn Herbert Arnarson ákvað að reyna fyrir sér í atvinnumennsku. Herbert sagði í blaðaviðtali að hann liti á þetta tœkifœri sem stökkpall fyrir sig. Lengjubikarinn Það voru þrjá ungmennafélög sem tryggðu sér sœti í undanúrslitum hins svokallaða Lengjubikars sem haldinn var í fyrsta skipti í vetur. Grindvíkingar slógu út Tindastól, Keflvíkingar söltuðu ÍR-inga og Njarðvíkingar unnu Ungmenna- félagið Skallagrím. Kef/avík og KR tryggðu sér svo sœti í úrslitum en þar sigruðu þeir fyrrnefndu í spennandi leik. Hörmulegt slys linn albesti leikmaður DHL- deildarinnar, Torrey John, Njarðvík, varð fyrir miklu áfalli fyrir stuttu þegar barnsmóðir hans og barn létust í bílslysi í Bandaríkjunum. Torrey fór utan til að vera við- staddur jarðarförina en er nú mœttur aftur til leiks hjá Njarðvík. Herra Skandinavía Björn Steffensen sem valinn var herra Skandinavía árið 1995 hefur nú tekið fram körfuboltaskóna að nýju. Björn lék áður með ÍR-ingum en hœtti í fyrra. Hann hefur nú gengið til liðs við Þór í Þorlákshöfn í 1. deildinni. Keflavík, Grindavík og KR virðast vera hvað sterkust en þau hafa öll verið að reyta stig af hvert öðru. Haukarnir virðast ekki vera alveg jafn sterkir og í fyrra en liðið féll t.d. út úr Lengjubikarnum þegar það tapaði fyrir KR. Vesturbæjarliðið hefur kannski komið hvað mest á óvart í vetur en þeir hafa innanborðs sterka leikmenn eins og Ingvar Ormarsson, Jonathan Bow og útlendinginn David Edwards. Keflavík er á pappírnum með sterkasta liðið í deildinni en meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá liðinu. Damon Johnson, útlend- ingurinn hjá Keflavík, er líklega sá besti í deildinni en fyrir utan hann eru Keflvíkingar með menn eins og Guðjón Skúlason og Friðrik Friðriksson. Grindvíkingar hafa verið misjafnir í sínum leikjum en ef leikur þeirra smellur saman á liðið að geta haldið vel í við toppliðin. Hermann Myers hefur leikið vel en það er ekki hægt að líkja þessu liði saman við Grindavíkurliðið í fyrra sem var nær óstöðvandi. A botninum berjast svo Tindastóll, KFÍ, Þór Akureyri og Breiðablik. Þau tvö síðastnefndu verða að taka sig verulega á ef ekki á að fara illa fyrir þeim í vetur. Bæði þessi lið treysta allt of mikið á útlending sinn og lítið sem ekkert gerist í kringum hina leikmenn liðsins. Það má svo til bóka það að annað þessara liða spili í 1. deildinni á næsta ári og jafnvel má búast við því að bæði liðin leiki þar. 12 Skinfaxi UMI'Í

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.