Skinfaxi - 01.12.1996, Síða 22
Stefnan að halda liðinu
uppi á eigin mannskap
Á meðan „stóru" liðin á Akureyri
ná sér ekki á strik í knattspyrnu-
heiminum hafa Dalvík og Leiftur
haldið uppi heiðrinum undanfarið
og nú vonast Dalvíkurmenn til að
feta í fótspor nágranna sinna og
byggja upp stórveldi í íslenskri
knattspyrnu. Við fórum í
heimsókn til Björns Friðþjófs-
sonar, formanns knattspyrnu-
deildar Dalvíkur, og ræddum við
hann um framtíð liðsins.
Björn er nú formaöur knattspyrnudeildar Dalvíkur en hann á 35 leiki og 7
mörk aö baki meö liöinu jtegar það lék í 3. deildinni.
Nú komst Dalvík í fyrsta sinn upp í
2. deild í knattspyrnu en er liðjð.komið
til að vera?
„Það er alveg á mörkunum að'bæjar-
félagið sé nógu stórt til að standa uirdir
2. deildar liði en við erum að teygja anga
okkar hérna í kring og þá erum við
komin með um 2000 manna bæjarfélag.
Ef vel er haldið utan um knattspyrnuna í
svona byggðarlagi þá tel ég að það sé
hægt að halda liðinu í 2. deild á eigin
mannskap."
A eigin mannskap, segir þú, svo
ætlunin er ekki að gera þetta eins og
nágrannar ykkar á Olafsfirði?
„Stefnan okkar er að kjarninn og uppi-
staðan verði alltaf héðan og helst að
leikmenn séu aldir upp í okkar
bæjarfélagi."
Er ekki erfitt að halda ungum
strákum hérna á svæðinu þegar háskóli
og annað kallar?
„Það er erfitt en við reynum að gera
þetta það aðlaðandi fyrir þá að þeir vilji
koma heim og leika með sínu heimaliði.
Þetta hefur gengið ágætlega hingað til og
með því að koma liðinu upp í 2. deild
hlýtur verkefnið að verða meira
spennandi."
Við gerðum í fyrra
þriggja ára samning við
bœjarfélag og við erum
sáttir við þann samning
þrátt fyrir að auðvitað
vilji allir alltaf meira.
Er aðstaðan góð hjá ykkur?
„Já, við erum mjög sáttir við
sumaraðstöðuna. Við erum með ágætis
keppnisvöll, gott æfingasvæði og félags-
aðstöðu sem við tókum í notkun í fyrra.
Hins vegar vantar okkur hérna fyrir
norðan orðið tilfinnanlega vetraraðstöðu
hvort sem það yrði gervigras eða yfir-
byggður völlur."
Hvernig eru samskipti félagsins við
bæjarfélagið?
„Við gerðum í fyrra þriggja ára
samning við bæjarfélag og við erum
sáttir við þann samning þrátt fyrir að
auðvitað vilji allir alltaf meira."
Nú hefur áhugi bæjarbúa á
knattspyrnunni á Olafsfirði kannski
vakið hvað mesta athygli. Þar leggja
bæjarbúar hluta launa sinna í rekstur
deildarinnar, er eitthvað svipað í gangi
hérna hjá ykkur?
„Við erum nú ekki komnir eins langt
og þeir í þessu en hins vegar erum við
með mjög öflugan stuðningshóp sem
tekur þátt í þessu með okkur. Við gerum
okkur líka grein fyrir því að eftir því sem
okkur gengur betur þeim meiri verður
áhugi bæjarbúa."*
22
Skinfaxi
UMFÍ