Skinfaxi - 01.12.1996, Page 25
Við íslendingar getum ekki oft státað
okkur af heimsmeisturum en Agnar
Snorri Stefánsson er ein af
undantekningunum. Agnar er mikill
hestaáhugamaður og hann gerði sér
lítið fyrir og tryggði sér titilinn
heimsmeistari unglinga í hesta-
íþróttum. En með allan þennan
áhuga á hestum er þá ekki rétt að
vita hvort maðurinn borði hrossakjöt?
„Ég borða hrossakjöt en ekki
hrossabjúgu og mér finnst hrossakjöt
mjög gott."
Hvernig fékkst þú áhuga á hestum?
„Pabbi átti hesta og ég var alltaf með
honum úti í hesthúsi. Þegar ég varð
eldri kviknaði svo áhuginn á keppni og í
framhaldi af því fór ég að fara á mót.
Pabbi er líka keppnismaður og hefur
keppt mikið hérna heima en hann hefur
aldrei farið á mót erlendis."
Nú eru hestaíþróttir kannski ekki
vinsælasta íþróttin á íslandi hvað
þátttakendafjölda varðar en er áhuginn
mikill hérna á Dalvík?
„Nei við erum bara tvö, þrjú sem
stúndum þetta í dag en það voru miklu
fleiri í þessu fyrir nokkrum árum."
Æfið þið þá saman eða hvert fyrir
sig?
„Það er kannski aðeins fyrir Landsmót
sem við æfum saman en annars æfum
við bara hvert fyrir sig."
Hvaða eiginleikum þarft þú að vera
búinn til að verða heimsmeistari
unglinga í hestaíþróttum?
„Ég veit það nú ekki en þolinmæði
skiptir miklu máli og svo verður maður
að ná vel saman við hestinn. Ég held að
þetta sé bara það sama og í öllum öðrum
íþróttum þar sem æfingar skipta
meginmáli. Ég hef verið heppinn með
það að ná góðu sambandi við hesta en
Agnar hefur þegar tryggt sér heimsmeistaratitH.
auðvitað
kemur það
fyrir að
maður lendir
á lélegum
hesti eins og
reyndar
gerðist á
móti síðasta
sumar."
Þegar
Islendingar fara á mót erlendis geta
þeir ekki tekið hestana með sér, er þetta
ekki ókostur?
Okostur ai geta
ekki faríð mei
hestinn sinn á
mót eríendis
„Að sjálfsögðu er þetta ókostur þar
sem maður fær mjög skamman tíma til
að æfa sig á þeim hesti sem keppt er á.
Síðast fékk ég til dæmis bara þrjár
æfingar fyrir mót og það er erfitt að ná
góðu sambandi við hestinn á svo
skömmum tíma. En reglurnar eru mjög
strangar þar sem maður má ekki einu
sinni fara með hnakkinn sinn með sér út
þar sem ekki er hægt að sótthreinsa
leður."
Hvernig undirbýrðu þig hérna heima
fyrir mót erlendis?
„Ég fer bara í útreiðartúr og spái í
ásetuna en hún er 50% hjá krökkunum.
Ég hef nú ekki notað myndbönd eða
neitt til að hjálpa mér en pabbi aðstoðar
mig mikið og segir mér hvað ég þarf að
laga."
En fyrir mót hérlendis, reynir þú þá
að bindast einum ákveðnum hesti eða
ertu með nokkra tilbúna?
„Ég er aðallega búinn að vera með
einn en samt er ég kominn með fleiri
núna. Það er ekkert mál að skipta á milli
hesta og sérstaklega ekki þegar maður
þekkir þá alla vel. •
UMFÍ
Skinfaxi
25