Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.2005, Side 8

Skinfaxi - 01.02.2005, Side 8
Jörgen Ágústsson nemandi við Laugalækjarskóla: „Ég var búinn að hlakka lengi til að fara að Laugum enda heyrt góðar sögur frá þessum stað. Móðir mín er skólastjóri en bekkur úr skólanum hennar kom hingað og gaf Laugum bestu dóma. Mér finnst Ungmenna- og tómstundabúðirnar mjög skemmtilegar, góð fræðsla og markvisst efni er það sem boðið er upp á. Ég er alveg handviss um það að veran hér á Laugum eflir tengslin á milli nemend- anna og skerpir um leið á vináttunni. Mér fmnst mjög sniðugt að brjóta upp skólastarfið með þessum hætti og mikil tilbreyting. Við erum að fræðast hér um ýmsa hluti en umhverfið og andrúmsloftið að Laugum er með allt öðrum hætti en í hefðbundnu skólastarfi, “ sagði Jörgen Ágústsson nemandi í 9. bekk Laugalækjarskóla hress í bragði í samtali við Skinfaxi þegar blaðið leit við í búðunum. Jörgen sagði ennfremur þrosk- andi að dvelja í búðum á borð við Laugar Ekki skemmdu aðstæður fyrir en þær væru frábærar f alla staði. Hann sagðist bera þá von í brjósti að Ungmenna- og tómstundabúðirnar ættu bjarta framtíð fyrir sér. „Ég mæli eindregið með því að skólar komið hingað og nýti þær aðstæður og þjónustu sem þar væri boðið upp á,“ sagði Jörgen. Jörgen Ágústsson og Saga Úlfarsdóttir nemendur úr Laugalækjarskóla í Reykjavík létu mjög vel að dvölinni að Laugum. Þau sögðust hafa fræðst um ýmsa hluti í búðunum og sniðugt væri oð brjóta upp hefðbundið skólastarf með bessum hætti. 4 Saga Úlfarsdóttir í Laugalækjarskóla: „Ég var búin að hlakka rosalega mikið til að koma hingað að Laugum. Við fengum að vita nokkrum vikum óður að til stæði að fara í ein- hverjo ferð með níunda bekkinn. Ég sé ekki eftir því að hafa farið því ferðin hefur verið í einu orði sagt stórkostleg. Við höfum aldrei dvalið svona lengi saman allur árgangurinn en það er a/veg Ijóst að vinátta krakkanna í milli hefur skerpst til muna, “ sagði Saga Úlfarsdóttir í Laugalækjar- skóla. Sögu fannst það bráðnauð- synlegt að fá að komast út úr venjulegu skólastarfi og dvölin að Laugum hefði verið frábær í alla staði. „Það gerðust margir skemmti- legir hlutir; bæði í starfinu og á meðal krakkanna. Mér finnst starfslið búðanna gott og ég mæli hiklaust með því að nemendur fari til dvalar að Laugum. Ég sé alla vega ekki eftir því að að hafa farið og ég á skemmtilegar minningar frá dvölinni," sagði Saga. i Stíhlað d söguDní - fréttir úr hreyjingnnni - Fyrsta félagsheimilið sem reis í landinu var byggt af Ungmenna- félagi Reykdæla í Borgarfirði 1909. Félagsheimilin hafa sett mikinn svip á allt þjóðlíf í gegnum tíðina og verið samkomustaðir fólks vítt og breitt um landið. SKINFAXI - tímorit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.