Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 16
Námskeið á vegom Leiðtogashólans
Ungmennafélag Islands setti á stofn Leiðtogaskólann árið 2001 til að halda utan um fræðslustarf
UMFI. Hlutverk skólans er að sjá félagsmönnum UMFI fyrir fræðslu í félagsstarfi og stuðla að nýjung-
um í starfi hreyfmgarinnar.
Leiðtogaskólinn býður upp á kröftug námskeið fyrir alla sem vilja ná betri árangri f félagsstörfum. Leið-
togaskólinn leitast við að bjóða upp á vönduð námskeið með mjög hæfum leiðbeinendum.
Ndmskeii lejðtogashálans 1001
Þátttakendur á námskeiðinu sem haldið var á Hvanneyri.
1. Fundarstörf og fundarstjórnun:
Þátttakendur fá góða tilfinningu
fyrir mikilvægi faglegrar fundar-
stjórnar; jafnt stærri sem smærri
funda og hvernig þeir geta sjálfir
fengið sem mest út úr fundarsetu
sem fundarmenn.
Farið er yfir öll grundvallarat-
riði fundarskapa. Þátttakendur fá
þjálfun í réttum fundarsköpum og
að stjórna fundum.Tilgangurinn
er að þjálfa þátttakendur í að taka
virkan þátt í fundarstörfum og
tryggja markvissan og góðan fund.
Námskeiðið er 6 tímar
2. Ræðumennska I
Eflir hæfni einstaklingsins til að
taka til máls og tjá sig fyrir framan
hóp af fólki.
Námskeiðið byggist upp á
æfingum í framkomu, framsögn og
uppbyggingu á ræðum. Farið er
í margskonar form á ræðum s.s.
söluræðum og tækifærisræðum.
Námskeiðið er 6 tímar
3. Ræðumennska II
Námskeiðið er ætlað þeim sem
lokið hafa námskeiðinu Ræðu-
mennska I og/eða öðrum ræðu-
námskeiðum. Einnig er æskilegt
að þátttakendur hafi einhverja
reynslu af ræðumennsku.
Að efla þekkingu og þjálfun
þátttakenda á málsnilld og fram-
komu á opinberum vettvangi.
Námskeiðið er 5 tímar
4. Að starfa í stjórn
Námskeiðið er ætlað fólki sem
starfar eða ætlar að starfa í stjórn
félagasamtaka. Farið verður í gegn-
um hlutverk stjórnarmanna. Mikil-
vægi nýrra hugsunarhátta ístarfi fé-
lagsins. Hvernig fáum við nýtt fólk
til að starfa með okkur. Félagsstarf
í nútímaþjóðfélagi. Fundarstjórn
og framkomuþjálfun.
Námskeiðið er 5 tímar
5. Leiðtogaþjálfun
Öflugt námskeið ætlað þeim sem
áhuga hafa á að starfa í forystu-
sveit hvort heldur í félagsstarfi
eða atvinnulífinu. Þátttakendur fá
þjálfun sem undirbýr þá til að tak-
ast á við þau fjölbreyttu verkefni
sem forystumaður í félagi þarf að
kunna skil á. Meðal annars verður
farið í eftirfarandi: Fundarstörf og
fundarstjórnun, framkomuþjálfun
(ræðumensku), leiðtogafræðslu,
samskipti við fjölmiðla, þjálfun fyr-
ir viðtöl í fjölmiðlum, greinaskrif í
fjölmiðla.ýmsaræfingarsem stuðl-
að geta að leiðtogahæfni.
Námskeiðið er 4 dagar
ó.Annað
Auk þess verða í boði styttri
námskeið sem verða auglýst sér-
staklega.
Ndmskeiðshold í sumar
/
Eins og undanfarin ár hefur Ungmennafélag Is-
lands milligöngu fyrir verkefnum á Norðurlöndun-
um í sumar. Spennandi kostir eru í boði en þess
má geta að þátttakendur sem farið hafa héðan
hafa líst yfir mikilli ánægju með ferðir sínar.
Lítum á það sem í boði er
Útilífsvika NSU
Nýtt verkefni á vegum NSU er úti-
li'fsvika í Noregi. Þarna gefst ungu
fólki kostur á að taka þátt í spenn-
andi viku þar sem áhersla verður
lögð á útiveru í fögru norsku
umhverfi.Vikan verður haldin I -7.
ágúst 2005. Nánari dagskrá er á
í sumar:
heimasíðunni.Takmarkaður fjöldi
þátttakenda og valið verður úr
umsóknum sem berast.
Leiðtogaskóli NSU
Leiðtogaskóli NSU verður haldinn
í Færeyjum 10.-17. júlí 2005. Leið-
togaskóli NSU er fyrir ungmenni
á aldrinu 18-25 ára sem hafa
reynslu af því að vera í forystu.
A námskeiðunum er farið í ýmsa
þætti sem hjálpa fólki í störfum
þeirra sem leiðtogar Þar sem
sætafjöldi er takmarkaður þá hafa
ekki allir komist að sem þess hafa
óskað og verður valið úr hópi
umsækjenda.
Ungmennavikan 2005
Ungmennavika NSU 2005 verður
haldin ÍNoregi 3.-10. júli'2005.
Staðsetning er í nágreni Bergen
ogVoss, Þema vikunnar er mismun-
andi menning á Norðurlöndunum.
Ungmennavikurnar eru ætlaðar
ungu fólki á aldrinum 16- 20 ára.
Allir sem eru aðilar í ungmennafé-
lagi geta sótt um að fara.
Upplýsingar veittar á
þjónustumiðstöð UMFI í si'ma
568-2929 eða gegnum netfangið
valdimar@umfi.is.
16
SKINFAXI - tímarit Ungmenna/élags Islands