Skinfaxi - 01.02.2005, Síða 28
BlftT ÁFRAA/I!
Námskeiö á vegum UMFÍ og Blátt áfram:
Mdror bama
Ungmennafélag Islands og Blátt áfram verkefnlð
er nú farlð af stað með námskeiðlð Verndarar
barna sem boðar byltingu í fræðslu, forvörnum og
viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börn-
um. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga
fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja,
þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun
barna af hugrekki og ábyrgð. Námsefnið Vernd-
arar barna er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki
og félagasamtök sem þjóna börnum og ungling-
um - sem og einstaklinga sem bera ábyrgð á
umönnun og verndun barna; sínum eigin eða
annarra.
Við viljum hvetja sambands-
aðilana og félögin til að kynna sér
þetta námskeið.Verkefnisstjóri
Blátt áfram mun hafa samband á
næstunni þar sem við viljum gefa
ykkur tækifæri til að sækja umrætt
námskeið í heimabyggð. I leiðinni
viljum við bjóða skólum og öllum
þeim sem þjóna börnum og ung-
lingum í einhverri mynd að sækja
námskeiðið.
Hvað er í boði?
* Gagnvirk vinnubók fyrir hvern
þátttakanda sem inniheldur
allt námsefnið.
* Meðfylgjandi I '/2 klukkustund-
ar myndefni á VHS/DVD sem
hefur að geyma frásagnir þol-
enda þar sem þeir gera grein
fyrir ferlinu; bæði ofbeldinu og
heiluninni. Einnig er þarna að
finna myndbrot með fræðslu
og leiðbeiningum frá höfundi
námsefnisins og sérfræðingum
sem daglega þurfa að takast á
við öll þau vandamál sem lúta
að kynferðislegri misnotkun.
* Upplýsingabæklingur um þau
lög sem lúta að kynferðislegri
misnotkun;opinberstefnumót-
un, viðbrögð, meðferð mála
og úrræði.
* Upplýsingar um félagsleg úr-
ræði, stuðning og aðstoð fyrir
þolendur og fjölskyldur þeirra.
Hver eru helstu sérkenni
námskeiðsins Verndarar
barna?
* Gagnvirka vinnubókin, þjálf-
unin og myndefnið nota
grundvallarhugtök á borð við
fjáls vilji, meðvitund og máttur
einstaklingsins til að auka skiln-
ing á eðli og áhrifum kynferðis-
legrar misnotkunar á börnum.
Þessi sömu grundvallarhugtök
eru notuð til að varpa Ijósi á
ábyrg viðbrögð og aðgerðir
Námsefnið er afar beinskeytt
þegar kemur að því að gera
alla fullorðna einstaklinga
ábyrga fýrir velferð barna
almennt - en veitir einnig ráð
og stuðning til þeirra sem vilja
breyta sjálfum sér; öðlast kjark
til að bregðast við á ábyrgan
hátt.
* Verndarar barna er víðtæk
áætlun sem fjallar um alla þá
áhrifaþætti sem nauðsynlegt
er að þekkja og kunna á þegar
stefnumótun og viðbragðs-
áætlun stofnana, fýrirtækja og
einstaklinga er annars vegar
Svava Björnsdóttir verkefnistjórí Blátt áfram.
Allt miðar þetta að því að
tryggja öryggi barna og auka
meðvitund og sjálfstraust
þeirra sem starfa með börn-
um á einn eða annan hátt.
* Til að styrkja þá grunnþætti
sem námskeiðið byggir á not-
ar Darkness to Light gagnvirkt
líkan sem færir þátttakendum
aukið sjálfsöryggi og vald -
sem eykur likurnar á breyttri
meðvitund og viðbrögðum.
Námsefnið er hvetjandi, ákveð-
ið og sannfærandi. Það kallar
þátttakendurtil persónulegrar
ábyrgðar á öryggi og velferð
barna þó það sýni jafnframt
ótta þeirra og áhyggjum skiln-
ing.
* Meðal námsgagna er einnig
bæklingurinn „7 skreftil vernd-
ar börnunum okkar", sem er
grundvallar fræðsluefni Dark-
ness to Light um forvarnir
gegn kynferðislegri misnotkun.
* Þjálfunarnámskeiðið hentar
ekki aðeins stofnunum og að-
ilum sem þjóna börnum beint,
heldur einníg einstaklingum og
fyrirtækjum sem vilja bregðast
við því vandamáli sem kyn-
ferðisleg misnotkun á börnum
er og þeim áhrifum sem hún
hefur í öllum þrepum þjóðfé-
lagsins.
Hverjum nýtist þetta
námskeið?
* Stofnunum, félagasamtökum
og fyrirtækjum sem leita að
þjálfun fyrir starfsfólk og sjálf-
boðaliða íforvörnum gegn
kynferðislegri misnotkun.
* Stofnunum, félagasamtökum
og fyrirtækjum sem þrá að
leggja sitt af mörkum í þjóð-
félaginu með því að fræða
fullorðna um verndun barna.
* Stofnunum, félagasamtökum
og fyrirtækjum sem þurfa að
bregðast við kröfum trygginga-
félaga sem lúta að verndun
barna.
* Hugsjónafélögum sem vilja
auka frumkvæði einstaklinga
og samfélagslega ábyrgð lands-
manna.
* Einstaklingum sem vilja búa til
sína eigin áætlun um forvarnir
gegn kynferðislegri misnotkun
barna.
Til að nálgast nánari upplýs-
ingar um námskeiðið fýrir þig,
félagasamtök, fyrirtæki og stofn-
anin vinsamlegast hafið samband
við Svövu Björnsdóttur hjá UMFI
á netfangið svava@umfi.is eða í
síma 568-2929.
28
SKINFAXI - tímorit Ungmennafélags íslands