Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 7
Ritstjóraspjall — Jón Kristján Sigurðsson
Unglingalandsmótin
hafa mikið forvarnagildi
Unglingalandsmót UMFÍ hafa
skapað sér ríkulegan sess sem
ein stærsta íþrótta- og fjöl-
skylduhátíð landsins á ári
hverju. Um þessi mót er
glæsileg umgjörð og má með sanni segja að andi ungmenna-
félaganna svífi þar yfir vötnum. Á þessum tímum, þar sem
freistingar alls konar blasa við unglingum, þá ekki síst um
verslunarmannahelgar, er bráðnauðsynlegt að fjölskyldan geti
komið saman og varið þessari helgi saman. Unglingalands-
mótin bjóða upp á þennan kost þar sem fjölbreytileg
afþreying í heilbrigðu umhverfi er í boði.
Unglingar á aldrinum 11 -18 ára geta notið verunnar á
Unglingalandsmóti við íþróttakeppni í mörgum greinum og
skemmtanir á kvöldin. Það að unglingum stendur til boða
þetta mót, einmitt um þessa helgi, er afar dýrmætt. Ennfremur
að fjölskyldan sláist öll með í för og eigi saman góða helgi. í
þessu hraða samfélagi sem við búum í gefst minni tími fyrir
fjölskylduna en áður til að tala saman og verja tímanum hvert
með öðru. Á Unglingalandsmóti UMFÍ er hægt að sameina
marga þætti og þá ekki síst þann sem snýr að fjölskyldunni.
Unglingalandsmótin hafa mikið forvarnagildi og sterkasta
vopnið gegn óhollum freistingum er að skella sér á landsmót
og etja kappi við jafnaldra sína.
Mikið uppbyggingarstarf hefurverið síðustu mánuðina á
Laugum í Þingeyjarsýslu en þar er að rísa stórglæsileg íþrótta-
aðstaða. Framkvæmdaaðilar og íbúar í sýslunni hafa unnið
hörðum höndum og sjá nú laun erfiðisins. Það þarf kjark og
þor að ráðast i að halda svona mót en með sameiginlegu
átaki allra aðila sem að verkinu koma hefur tekist að koma
upp aðstæðum sem allir geta verið stoltir af. í nánustu framtíð
munu íbúar á Laugum búa við fyrsta flokks aðstæður til
íþróttaiðkana og þá mun framhaldsskólinn á Laugum ekki síst
njóta góðs af íþrótta-mannvirkjunum sem risið hafa.
Allir hafa fyllst eldmóði og fegrað umhverfi sitt og er óhætt
að segja að Laugar skarti sínu fegursta um þessar mundir.
Laugar er einstakt bæjarstæði frá náttúrunnar hendi og stutt í
fjölda staða sem áhugavert er að skoða.
UMFÍ stendur fyrir mörgum góðum verkefnum. Óhætt
er að segja að unglingalandsmótin eru eitt af„flaggskipum"
hreyfingarinnar. Það er sannarlega álitlegur kostur fyrir fjöl-
skylduna að skella sér að Laugum um verslunarmannahelgina,
njóta þess sem í boði er á mótinu, frábærrar náttúru og sam-
verustundar með fjölskyldunni. Laugar taka vel á móti fólki um
verslunarmannahelgina.
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson
Ábyrgðarmaður:
Björn B. Jónsson, formaður UMFl
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðs-
son o.fl.
Umbrot/hönnun: Örn Guðnason
Prentun: Prentmet
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: PSN-samskipti og
Gunnar Bender
Ritnefnd: Anna R. Möller
Sigurlaug Ragnarsdóttir
BirgirGunnlaugsson
Ester Jónsdóttir
Skrifstofa UMFf/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFl, Fellsmúla 26,
108 Reykjavik, sími: 568-2929,
netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFf:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Esther Jónsdóttir, ritari,
Þóra Kristinsdóttir, bókhald,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri
Skinfaxa, kynningar-og upplýsinga-
fulltrúi.
Stjórn UMFl:
Björn B. Jónsson, formaður
Helga Guðjónsdóttir, varaformaður
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri
Ásdís Helga Bjarnadóttir, ritari
Anna R. Möller
Haraldur Þór Jóhannsson
Hringur Hreinsson
JóhannTryggvason
Einar Jón Geirsson
EinarHaraldsson
Eyrún H. Hlynsdóttir
Forsíðumynd:
Yfirlitsmynd frá Laugum þar sem 9.
Unglinglandsmót UMFf verður haldið
um verslunarmannahelgina. Laugar
skarta sínu fegursta um þessar
mundir og landsmótsvæðið verður
tilbúið til að taka á móti gestum.
Neðri myndin er frá setningu Ungl-
ingalandsmótsins í Vík í fyrra. Mótið
þartókst afar vel í alla staði og var
heimamönnum til mikils sóma.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands ~J