Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 38
Tímasetning þessa við-
burðar afar snilldarleg
Ólafur Rafnsson var á dögunum kosinn forseti ÍSÍ en áður hafði hann
gegnt formennsku hjá Körfuknattleikssambandinu um árabil. Ólafur
er lögfræðingur að mennt og rekur Viðskiptastofuna í Hafnarfirði.
Eftir að Ólafur var kosinn forseti ÍSÍ hefur hann haft í mörg horn að líta
og Ijóst að verkefnin verða ærin á næstunni. Okkur lék forvitni á að fá
Ólaf í spjall og slógum því á þráðinn til hans.
- Þið fjölskyldan ætlið að bregða undir ykkur betri fæt-
inum og skella ykkur á Unglingalandsmótið á Laugum
um verslunarmannahelgina. Er það kannski í fyrsta
skiptið og eru börnin þín ekki á kafi í íþróttum?
„Já, ætlunin er að skella sér í Þingeyjarsýsluna og
heimsækja Unglingalandsmótið. Því miður hefur mér
ekki áður gefist kostur á að sækja Unglingalandsmót
og hlakka ég sannarlega til að fá að upplifa þennan
viðburð. Börnin mín þrjú hafa verið í ýmsum íþrótta-
greinum í íþróttafélögunum í okkar heimabæ, Hafn-
arfirði, en ekkert þeirra er innan vébanda UMFÍ og því
hefur ekki komið upp sú staða að þau hafi sótt Ungl-
ingalandsmót sem þátttakendur.
- Nú eru Unglingalandsmótin að festa sig í sessi sem
íþrótta- og fjölskylduhátíð. Hvaða þýðingu hafa þessi
mót í huga þínum?
„Unglingalandsmót UMFÍ eru fyrirbæri sem erfitt
er að sjá neikvæða hlið á. Sem forystumaður í íþrótta-
9.UNGLINGA
LANDSMQT
UMFÍ
Laugum 4.-G. ágúst
hreyfingunni hlýt ég að fagna öllum slík-
um viðburðum almennt, en aukinheldur
virðist mér sem þróun á umgjörð og
fram-kvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ
hafi verið prýðisgóð og öðruvisi hygg ég
raunar að erfitt yrði að halda slíkan stór-
viðburð ár eftir ár. Sem íþrótta- og fjöl-sky-
Iduhátíð að sumri er um að ræða afar góða
viðbót við fjölbreytta íþróttaflóru landsins,
og ég tel afar snilldarlegt að tímasetja
þennan viðburð um verslunarmannahelgi
sem valkost fyrir ungmenni til að leggja
fremur grunn að heilbrigðri framtíð sinni
í góðra vina hópi og í faðmi fjölskyldunn-
ar en að láta freistast af skammtímaglysi
misinnantómra útihátiða.
Samstarf í góðum málefn-
um liggur beint við
- Nú hafa ÍSl og UMFÍ ákveðið að vinna sam-
an að góðum málum í framtíðinni. Varstu
ákveðinn íþvíað stefna að þvíeftir að þú
settist ístól forseta ÍSl?
„Ég held reyndar að í sjálfu sér hafi
aldrei skort á vilja til samstarfs ÍSÍ og UMFÍ
og meintar deilur hygg ég að séu að stóru
38 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands