Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 32

Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 32
Guðbjörg 14 ára og Selma 11 ára, báðar í körfu hjá Fjölni, ætla á Unglingalandsmótið að Laugum ásamt pabba sínum Skúla Unnari Sveinssyni. Fjölskylduskemmtun á besta tíma ársins Unglingalandsmót UMFÍ verður að venju haldið um verslunar- mannahelgina, að þessu sinni að Laugum. Á mínu heimili ríkir jafnan mikil eftirvænting þegar Unglingalandsmót er í vændum enda hafa þau mót sem ég hef farið á með dætur mínar verið gríðarlega skemmtileg og vel heþþnuð. Fyrst fór ég á mótið á ísafirði 2003 þannig að ég missti af rigningunni í Stykkishólmi (og hugsa því ekki um Hólminn sem eitthvert rigningarþælil). Veðrið er trúlega það eina sem getur sett leiðinlegan svip á mót þessi, en á móti kemur að þeir sem voru í rigningunni í Hólminum muna örugglega eftir mótinu. Allt annað er skemmtilegt og ef veðrið er gott er fátt skemmtilegra en að vera með börnunum sínum á móti sem þessu. Þetta erfín útilega fyrirfjölskylduna, með skemmtilegri blöndu af íþróttum, og fyrir krakka, sem koma frá stærstu félögunum, finnst mér þetta kærkomið tækifæri til að krakkarnir nái betur saman. Þetta á við um krakka frá mismunandi félögum og kannski ekki síður um krakka í sama félagi en úr mismunandi íþróttagreinum. Það er nefnilega mjög skemmtilegur andi á tjaldstæðinu og þar eru allir saman og það er af hinu góða. Og ekki skemmir fyrir að halda mótið um verslunarmannahelgi - það er besti tíminn fyrir mót af þessu tagi. Fólk leggur hvort sem er gjarnan land undir fót um þessa helgi og Unglingalandsmótin eru ákjósanlegur vettvangurtil aðfara með fjölskylduna á, skemmtilegar íþróttir og síðan eru dansleikir og skemmtanir fyrir krakkana síðdegis og um kvöldið - allt að sjálfsögðu án vímuefna. Mót þessi hafa vaxið og dafnað og svo gæti farið að erfitt yrði að halda þau nema í stærri bæjarfélögum landsins. Bæði þarf að vera þokkalega góð aðstaða til íþróttakeppninnar sjálfrar og tals- vert stórt landrými fyrir tjaldbúðir, með tilheyrandi hreinlætis- aðstöðu. Yngsta dóttir mín man alltaf eftir„súkkulaðikörlunum"á [safirði, en það voru mennirnir sem komu til að hreinsa útisalern- in. Þeir stóðu sig frábærlega og hreinlætisaðstaðan þar var flott. Ég verð svona í lokin að viðurkenna að þegar við fórum á fyrsta mótið var veðurspáin ekkert allt of góð þannig að ég reyndi, seint og um síðir, að útvega gistingu vestra en án árangurs. Fellihýsið var því sett aftan í bílinn og ekið sem leið lá til (safjarðar. Það var þungbúið alla leiðina og þegar vestar dró voru vegir rennblautir og menn því misspenntir fyrir útilegunni. En þegar við renndum inn á tjaldstæðið var komið hið besta veður, logn, skýjað og þurrt og þannig hélst það meira og minna allan tímann. Alveg frábært mót og það sama er að segja af mótunum á Sauðárkróki og í Vík í Mýrdal. Unglingalandsmótin eru frábær og forysta UMFÍ á heiður skilið fyrir að koma þeim á fót. Einhverjar raddir heyrðust fyrst í stað um að slæmt væri að vera með þau um verslunarmannahelgi, en þær raddir eru þagnaðar. Lögregluyfirvöld hafa síðustu árin reynt að verða sér úti um tekjur með því að telja sér trú um að nauðsynlegt sé að vera með lögreglulið eins og um hefðbundna útiskemmtun um verslunarmannahelgi væri að ræða.Vonandi þarf ekki að hækka þátttökugjöldin til að standa straum af þeim kostnaði, enda getur lögreglan á þeim stöðum þar sem mótin hafa verið haldin örugg- lega vitnað um að varla er þörf á mjög fjölmennu lögregluliði. Megi Unglingalandsmótin vaxa og dafna enn frekar. Verslun- armannahelgarnar næstu fimm árin eru fráteknar á mínu heimili. Skúli UnnarSveinsson: Verslunarmannahelgarnar næstu fimm árin eru fráteknar á mfnu heimili 32 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.