Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 28
Sveitarfélagið Þingeyjarsveit:
Gönguleiðir
Akrar - Vestmannsvatn: Vinsælt er að ganga upp frá Ökr-
um í Reykjadal, gegnum skógivaxna austurhlíðina að Vest-
mannsvatni. Auðveld ganga.
Sörlastaðir - Stóruvellir: Farið er upp hjá Sörlastöðum í
Fnjóskadal, um Hellugnúpsskarð, suðaustur um Eyjadal,
og komið niður við Stóruvelli í Bárðardal. Góð reiðleið, 2-3
klst. Leiðin er vörðuð. Hækkun um 200 m. Áður talsvert
farin. Auðveld ganga.
Hálshnjúku r: 627 m hár. Farið er upp úr Vaglaskógi, hjá
Efri-Vöglum. Stikuð leið. Þaðan er stórkostlegt útsýni.
Auðveld ganga.
Gönguskarð-ytra: Gengið er upp frá Ytra-Hóli í norðan-
verðum Fnjóskadal og komið niður við Háls í Kinn. Hækkun
200 m. Auðveld leið.
Flateyjardalur - Náttfaravíkur: Farið er upp úr Flateyjar-
dal með Stórskriðubotnum, um skarð norðan Skálavíkur-
hnjúks. Stikuð leið í Naustavík, um Vargsnes. Hækkun um
700 m.
Mun fleiri gönguleiðir eru frá Fnjóskadal. Sjá bækling um
Fnjóskadal og nágrenni.
Bakrangi: Fjall yst í Kinnarfjöllum, 702 m yfir sjávarmáli, við
Skjálfandaflóa vestanverðan. Austurhlið Bakranga kallast
hins vegar Ógöngufjall en af sjó er það kallað Galti. Hægt
er að ganga á fjallið frá Nípá og tekur u.þ.b. 2-3 klst. Frekar
erfið leið en gífurlegt útsýni þegar upp er komið.
Nípárfossar: Frá Nípá í Köldukinn er gönguleið að Nípár-
fossum, fallegum smáfossum. Gengið er sunnan megin
Nípár. Frekar auðveld leið, um 1 klst. gangur.
Fosssel: Eyðibýli í Fljótsheiði, allangt norðan vegar. Þar er
mikið skóglendi, nú friðað af Skógræktarfélagi Þingeyinga.
Þaðan er fagurt útsýni yfir Þingey, Skipapoll, Ullarfoss og
eyrar og kvíslar Skjálfandafljóts. Hægt er að ganga frá Vaði
um Fossselsskóg að Fosshóli og tekur gangan 4-5 klst.
Frekar auðveld leið.
Barnafell: Hægt er að ganga eftir vegarslóða frá Fremsta-
felli norður í Barnafell, austan megin Kinnarfells, að Barna-
fossi í Skjálfandafljóti. Auðveld leið, um 2ja klst. gangur.
Ljósavatn: Falleg gönguleið er í kringum vatnið en hægt
er að ganga gamla vegarslóða sem eru hvor sínum megin
vatnsins. Auðveld leið, um 2ja klst. gangur.
Sexhólagil: Sexhólagil er um 2-3 km sunnan við bæinn
Stóruvelli í Bárðardal. Er hægt að ganga þar upp með gilinu
norðanverðu. Skemmtileg leið þar sem fjölbreytt gróðurfar
er að finna. Gangan upp gilið tekur u.þ.b. hálfa klst.
Kálfborg: Kálfborg nefnist sérkennileg klettaborg úr
stuðlabergi skammt norðan við eyðibýlið Brennás á vestan-
verðri Fljótsheiði. Hægt er að ganga að Kálfborginni frá
Arndísarstöðum í Bárðardal, upp gamla Akureyrarveg
svokallaðan, og suður eftir heiðinni. Leiðin að Kálfborg er
u.þ.b. tveggja klst. gangur en ekki þarf að labba nema í
tæpa klst. í viðbót til að komast að Brennási.
Halldórsstaðir - Vestmannsvatn: Vinsælt er að ganga frá
Halldórsstöðum í Reykjadal, gegnum skógivaxna austur-
hlíðina að Vestmannsvatni. Auðveld ganga.
Hvítafell: Hægt er að ganga á Hvítafell beint upp af Lauga-
skóla. Gangan tekur um eina og hálfa til tvær klst. Frekar
auðveld ganga en þó vel upp í móti.
Hólaland: Mjög vinsælt er að ganga meðfram Reykjadals-
ánni og um jarðmyndanir í Hólalandi. Auðveld ganga.
Narfastaðasel: Frá Narfastöðum í Reykjadal erfremur
torfær en skemmtileg leið að rústum Narfastaðasels.
Laxárdalur:Gönguleið erfrá Hofsstöðum í Mývatnssveit
að Ljótsstöðum í Laxárdal. Farið er norðurfrá Hofsstöðum
meðfram Laxá austan megin, yfir brúna við Brettingsstaði
og svo vestan megin ár að Ljótsstöðum. Mjög falleg leið er
meðfram ánni, fallegur gróður og hraunmyndanir. Einnig er
hægt að ganga vegarslóða sem liggur frá Máskoti í Reykja-
dal yfir Laxárheiði að Ljótsstöðum. Auðveldar leiðir.
28 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands