Skinfaxi - 01.05.2006, Page 9
Unglingalandsmót UMFÍ að Laugum:
Unglingalandsmót UMFÍ er sannkölluð gleðihátíð, kærkom-
inn vettvangur fyrir samveru góðra vina sem skemmta sér
í snarpri keppni en um leið tækifæri fyrir fjölskylduna til að
eiga saman dýrðardaga.
Við Dorrit eigum góðar minningar frá heimsókn okkar á
unglingalandsmótið á ísafirði. Hlaupin, stökkin, knattspyr-
nan, glíman og aðrar keppnisgreinar voru spennandi skem-
mtun og gaman var að sjá að gleðin ríkti í hugum allra. í
raun urðu landsmótsgestir að glaðværri stórfjölskyldu
sem kættist ekki aðeins á keppnisvöllum heldur líka í tjald-
búðum og á kvöldskemmtunum.
Unglingalandsmótið á Laugum verður á sama hátt
gleðitími og mun lengi lifa í hugum þátttakenda. Einstæð
náttúran myndartignarlega umgjörð, sýslan sögurík og
Þingeyingar kunna vel að taka á móti góðum gestum.
UMFÍ á heiður skilinn og einnig þökk fyrir að leggja
metnað og alúð í unglingamótin og skapa þannig fjöl-
mennum vinahóþum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að
fagna á heilbrigðan hátt.
Ég sendi bestu kveðjur til ykkar allra og vona að sem
flestir taki virkan þátt í dagskrá mótsins. Þar finnur hver og
einn eitthvað við sitt hæfi og allir geta verið þátttakendur.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 9