Skinfaxi - 01.05.2006, Page 10
UMFÍ er að sinna því sem
skiptir okkur öll máli
„Ég lít mjög jákvæðum augum til Unglingalandsmótanna sem og
til starfsemi Ungmennafélags íslands. UMFÍ er að sinna því sem
skiptir okkur öll máli fyrst og fremst og það er börnin okkar. Ég
skynja það á vinafólki mínu, sem á börn á unglingsaldri, að það er
uggandi um börnin þegar verslunarmannahelgin nálgast. Því þarf
að bjóða börnum og unglingum upp á eitthvað spennandi sem
hefur tilvísun á aðdráttarafl sem er spennandi og gaman. Mér
sýnist Unglingalandsmótin hafa einmitt upp á það að bjóða og
þess vegna vil ég óska UMF( til hamingju með þetta framtak sem
þeir hafa staðið sig vel í," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra, þegar hún var innt eftir því hvaða augum
hún liti Unglingalandsmót UMFÍ sem nú verður haldið í 9. skiptið
um verslunarmannahelgina á Laugum í S-Þingeyjarsýslu.
Þorgerður Katrín sagði að í huga sínum skipti það miklu máli
að fjölskyldan nyti samverustunda um þessa stærstu ferðahelgi ár
hvert. Flún sagði ennfremur brýnt að fjölskyldan áttaði sig á þeim
lífsgæðum sem felast í þeim stundum sem fjölskyldan ætti saman
og reyndi gera sniðuga hluti saman. Þetta væri góður tími til þess,
landið væri yndislegt til að njóta saman á þessum árstíma. Flún liti
á það sem hvatningu af hálfu UMFÍ til að fjölskyldan hugsaði sinn
gang, væri saman en ekki sundruð.
íhverju er ráðuneytið að vinna sem hefur skírskotun til barna og
unglinga þegar íþróttir eru annars vegar?
„Það er mjög margt í gangi í íþrótta- og æskulýðsmálum. Við
styrkjum t.d. UMFÍ til ýmissa verka og eigum ágætis samstarf við
þá hreyfingu í mörgum málum sem og íþróttahreyfinguna í heild
sinni. Það sem við höfum reynt að gera er að láta þessi frjálsu
félagasamtök, sem eru um leið fagaðilar á sínu sviði, njóta sín,
skapa þeim ákveðinn ramma og umgjörð, og svo sé það þeirra
að móta verkefnin áfram. Ekki að það sé miðstýrt úr ráðuneytinu.
Við höfum líka komið að mikilvægum verkefnum eins og t.d. með
bók sem við gáfum út í vor sem ber heitið Verndum æskuna og
beinist gegn kynferðislegum afbrotum. Bókin geymir mikilvægar
upplýsingar gegn slíkum óhugnaði. Við reynum í hvívetna að
upplýsa þjóðina um mikilvægi þess að vernda æskuna. Það má
því segja að við komum að æskulýðsmálum á margan hátt."
Þorgerður Katrín sagðist geta nefnt margt annað og í því sam-
bandi benti hún á afrekssjóðinn sem gegndi mikilvægu hlutverki.
„Á síðustu fjárlögum var ákveðið að efla sérsamböndin innan
ÍSÍ sem fýrst og fremst kemur ungmennum þessa lands til góða,
til að veita þeim tækifæri til að stunda íþróttir sinar og áhugamál
innan íþróttahreyfingarinnar með sómasamlegum hætti. Það er
10 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands