Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2006, Síða 11

Skinfaxi - 01.05.2006, Síða 11
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra: einfaldlega þannig að tíminn er takmarkaður og mikil samkeppni um lausan tíma fólks. Hin mikla sjálfboðaliðavinna, sem ung- mennafélögin og sérsamböndin lifðu á, er ekki lengur með þeim hætti sem hún var. Þetta þarf að horfast í augu við og þessi fjár- veiting er hluti af því. Ráðuneytið kemur síðan að því að byggja upp á ýmsan hátt en í því sambandi má nefna samvinn- una við Reykjavíkurborg og KSÍ við uppbyggingu nýju stúkunnar á Laugardalsvelli. Með beinum og óbeinum hætti höfum við styrkt Landsmót hestamanna sem er gríðarlega stór íþróttasam- koma. Síðan höfum við styrkt þau svæði þar sem Landsmót UMFÍ eru haldin en ríkisvaldið hefur stutt við uppbyggingu íþrótta- mannvirkja þannig þessi mót geti farið fram með góðum og sómasamlegum hætti. Þetta er fjárfesting sem skilar sér tvímælalaust. Kröfur nútíma- samfélagsins eru þær að aðstæður séu góðar. Menn eiga því ekki að fussa yfir fjárveitingum sem fara í íþróttamannvirki því að þær skila sér aftur. Við viljum sjá krakkana okkar á hreyfingu, sjá þau leika saman og skilja það hvað er að leika saman." - Á þeim tímum sem við lifum á er kannski ekkert brýnna en að haida mótáborð við Ungiingalandsmótin? „Það er tvímælalaust þannig. Samkeppnin um tíma og athygli barna er mikil og þess vegna skiptir gríðarlega miklu máli að vel takist tii þegar hreyfing eins og UMFÍ leggur sig svona fram í hví- vetna varðandi undirbúning fyrir unglingalandsmótin. Það skiptir máli að vel sé haldið á spilum og UMFÍ gerir það. Ég vona að þessi dampur haldist uppi og aukist frekar en hitt." Þorgerður Katrín sagði að nú væri verið að móta íþróttastefnu til frambúðar. Fyrir lægju drög að íþróttastefnu sem væru núna til kynningar en yrði síðan fylgt eftir með haustinu. Allir sem láta sig málið varða eru hvattir til að koma fram með athugasemdir og hafa ýmsir gert það nú þegar. „Þar á meðal eru ýmsar ábendingar sem aðilar hafa sett fram í nefnd undir forsæti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, formanns Fjölnis. UMF(, ÍSÍ og sveitarfélögin hafa komið að mótun stefnunnar og í henni er m.a. lögð áhersla á að ýta á skólakerfið til að börn og unglingar hreyfi sig meira. Má í því sambandi nefna að ganga helst í skólann, ganga á æfingar og hreyfa sig í frímínútum. Þarna eru margar ábendingar á ferðinni og allt er þetta gert með það að leiðarljósi að við megum aldrei gefa eftir. Það er ekkert mál að liggja uppi í sófa með Playstation-tölvuna fyrirframan sig. Ekki er allt neikvætt við tölvuleiki en þeir verða að vera í hófi. Foreldrar verða að fylgjast með því sem börnin þeirra eru að gera en um fram allt drífa þau fram úr sófanum til að hreyfa sig meira. Við sjáum að börnunum vegnar betur í skólakerfinu ef þau hreyfa sig. Það er veganesti upp í framhaldsskólann og háskólann og lífið sjálft. Þess vegna er mikilvægt að UMFf, ÍSÍ, sveitarfélögin og ríkisvaldið og ekki sfst atvinnulífið komi með ábyggilegum og uppbyggilegum hætti að þessari stefnumótun. Eins skipta fyrirmyndirnar miklu máli en bara t.d. það að eiga Eið Smára fær marga stráka og stelpur til að fara út og leika sér í fótbolta. Við verðum að hlúa vel að afreksíþróttafólki okkar, því að það skilar sér inn í hreyfinguna/'sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. ÖSSUR SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.