Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2006, Síða 24

Skinfaxi - 01.05.2006, Síða 24
Sveitarfélagið Þingeyjarsveit: Áhugaverðir staðir í Þingeyjarsveit Flateyjardalsheiði og Flateyjardalur: Eyðidalur norður af Fnjóskadal, við Dalsmynni, um 32 km langur og nær að sjó til móts við Flatey á Skjálfanda. Flateyjardalsheiði og Flat- eyjardalur eru raunverulega sami dalurinn, heiðin liggur þó nokkuð hærra en dalurinn en nyrst í honum, við sjóinn, er allbreitt undirlendi. Bæði heiðin og dalurinn voru byggð á árum áður en síðasti bærinn, Brettingsstaðir, fór í eyði árið 1954. Mjög sumarfagurt þykir á Flateyjardal þótt vetrarríki sé mikið á þessum slóðum, enda hefur ásókn ferðamanna aukist þangað jafnt ár frá ári. Leiðin inn á dalinn liggur rétt sunnan við bæinn Þverá í Dalsmynni en hún er eingöngu fær á sumrin og þá aðeins jeppum og stærri bílum. Flatey á Skjálfanda: Er u.þ.b. 2,5 km löng þar sem hún er lengst og um 2 km á breidd þar sem hún er breiðust. Eyjan stendur á mjög virku jarðskjálftabelti. Ljóst er af heimildum að byggð hefur verið samfelld í Flatey allt frá 12. öld til árs- ins 1967 þegar allir íbúar í eynni, um 50 manns, fluttust brott. Flestir urðu íbúarnir árið 1943, en þá voru um 120 manns í Flatey. Alla tíð voru fiskveiðar aðalbjargræðisvegur eyjarmanna, þótt landbúnaður, og síðar fleiri atvinnuvegir, væru stundaðir jafnhliða. Þrátt fyrir að Flatey hafi nú verið í eyði um margra áratuga skeið eru margir sem sækja þan- gað á sumrin til dvalar og sumir nýta hlunnindi og sækja sjóinn.Theódór Friðriksson (1876-1948), rithöfundur, fæddist í Flatey. Flann skrifaði margar bækur, m.a. ævisögu sína,„( verum I—II" en hún er áhugaverð fyrir þá sem vilja kynna sér lífsskilyrði á þessum slóðum um og upp úr alda- mótum 1900. Flægt er að komast út í Flatey með Norður- siglingu á Flúsavík, þó er það einkum fyrir stærri hópa. Náttfaravíkur: Liggja undir Víknafjöllum við Skjálfanda- flóa, nyrst í Köldukinn. Landnáma hermir svo frá að frá skipi Garðars Svavarssonar, sem hafði vetursetu á Húsavík í för sinni til íslands, hafi slitnað bátur sem í voru þræll að nafni Náttfari og ónefnd ambátt. Settust þau að í víkunum um skeið og draga þær nafn sitt af því. Eignaði svo Náttfari sér land í Reykjadal en hraktist aftur út í Víkur þegar land byggðist. Þrír bæir voru í Náttfaravíkum, yst Vargsnes, þá Naustavík og suður í Kotadalnum bærinn Kotmýrar. Byggð hélst í Náttfaravíkum fram á síðustu öld en Naustavík fór síðust í eyði árið 1941. Þar stendur enn steinhús sem notað er sem sæluhús. Sjá www.isholf.is/flatey/ Barnafoss í Skjálfandafljóti: Eraustan megin Kinnarfells, gegnt eyðijörðinni Barnafelli, 3-4 km norður af Fremstafelli. Þar fellur fljótið í þröngu og allt að 100 m djúpu gljúfri. Nafngift fossins er sögð dregin af því að börn hafi eitt sinn verið að leik í tunnu skammt frá fossinum og hafi tunnan oltið með þau ofan í gljúfrið og þau farist. Frá Fremstafelli liggur slóði að Barnafossi sem er fær öllum stærri fólksbílum og jeppum á sumrin. Þingey: Eyja í Skjálfandafljóti, norðaustur af Barnafossi. Þar var þingstaður til forna og þar haldið þing á hverju vori. Þingey var líklega þingstaður frá árinu 963. Eyjan er nær 6 km löng en austur úr eynni gengur breiðvaxið nes þar sem hinn eiginlegur þingstaður var. Þar heitir Þinghóll og mótar þar greinilega fyrir miklum búðum og hringlaga garði um þær. Draga Þingeyjarsýslur sem og Þingeyjarsveit nafn sitt af eynni. Ullarfoss í Skjálfandafljóti: Fellur fram af Þingey í Skipa- poll, en þangað segir sagan að Bárður landnámsmaður hafi dregið skip sitt. Fellsskógur: Fallegt skóglendi í austurhlíð Kinnarfells. Þaðan er fallegt útsýni yfir Þingeyjardalinn, Skipapoll, Ullar- foss, eyrar og kvíslar Skjálfandafljóts og norðaustur yfir hérað. Akfært er þangað ef þurrt er, en afleggjari liggur frá þjóðveginum gegnt Ljósvetningabúð. Hrifla: Bær vestan Skjálfandafljóts. Þar fæddist Jónas Jóns- son (1885-1968) skólastjóri og ráðherra, betur þekktur sem Jónas frá Hriflu. Goðafoss í Skjálfandafljóti: Þykir einn fegursti foss land- sins og er aðeins örfáa metra frá þjóðvegi nr. 1, rétt hjá Fosshóli við mynni Bárðardals. Hann er bæði breiður og vatnsmikill. Hefur fljótið grafið næstum þriggja km langt gljúfur inn í hraunið við fossinn og er það tilkomumikil sjón að sjá fljótið falla ólgandi niður þröngt gljúfrið. Klettar á fossbrúninni greina hann í tvo meginfossa, 9 og 17 m háa, og nokkra smærri, eftir vatnsmagni. Sagan segir að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi kastað goðum sínum í fossinn eftir að kristni var lögtekin árið 1000 og fossinn fengið nafn sitt af því. Skammt neðan við Goðafoss er annar lítill foss er nefnist Geitafoss og þar rétt vestan við sérkennilegt gat í bergið, svokallað Hansengat. Dregur það nafn sitt af því að í það féll Hansen, lyfsali á Akureyri, er hann hugðist stökkva yfir gatið. Sakaði hann þó ekki en Kristján Fjallaskáld orti um atburðinn og nefndi Ijóð sitt"Undirheimaförin"sem hefst þannig: 24 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.