Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 25
Goðafoss í gljúfrasal
glymur fram í Bárðardal,
kveðr hann þar í klettaþröng
kuldalegan voðasöng.
ísgrátt berg er allt um kring,
oft þar settu hrafnar þing.
Margur þangað maður fer,
mikið þegar um dýrðir er,
heimsins öllum áttum frá,
undur þetta til að sjá.
Gefst þar oft á góðu völ,
gumnar drekka Ijúffengt öl.
Nokkrir hellar eru í berginu niðri við fljótið. Einn þessara
hella ber nafnið Sölvahellir en sagan segir að í þeim helli
hafi útlægur ræningi, er Sölvi hét, hafst við um tíma áður
en hann fannst og var drepinn.
Halldórsstaðaskógur: Er víðáttumestur skóga í Bárðardal
og er á nokkuð flötu landi milli Mýrar og Halldórsstaða,
vestan megin í dalnum. Þar hefur verið útbúið samkomu-
svæði og göngustígar eru nokkrir. Skógurinn er opinn öll-
um en þó er bannað að tjalda þar.
Aldeyjarfoss í Skjálfandafljóti: Erfagurfoss í sérkennilegu
umhverfi stuðlabergssúlna og skessukatla. Hann er nokkru
fyrir sunnan Mýri, vestan megin í Bárðardal, við Sprengi-
sandsleið. Um 500 m fyrir ofan Aldeyjarfoss er Ingvararfoss
og þar enn ofar eru Hrafnabjargafossar.
Mjóidalur: Eyðidalur inn af Bárðardal, sunnan við Mýri.
Þar var áður einn bær samnefndur sem fór í eyði árið 1894.
Var það síðasta heimili Stephan G. Stephanssonar skálds
á íslandi. Skammt sunnan brúarinnar á Mjóadalsá er forn
fjárrétt, Litlutungurétt. Líklegt þykir að elsti hluti hennar sé
frá landnámsöld. Réttin var síðast notuð sem skilarétt árið
1947, en rúið í henni geldfé allt til 1960.
Ullarfoss í Svartá: Lágur en fallegur foss sem sést vel frá
veginum að Stórutungu, austan megin í dalnum.
Laugar: Þéttbýliskjarni í Reykjadal þar sem búa um 100
manns. Þar er helsta þjónustusvæði sveitarfélagsins.
Staðurinn er gamalt skóla- og menningarsetur. Byrjað var
að reisa alþýðuskóla á Laugum árið 1924, er síðar varð
héraðsskóli, og árið 1928 var þar einnig reistur húsmæðra-
skóli. Framhaldsskóli var svo stofnaður árið 1988 með sam-
einingu héraðsskólans og húsmæðraskólans. Á Laugum
eru einnig leik-, grunn- og tónlistarskóli. Sigurjón Friðjóns-
son skáld (1867-1950) bjó lengi á Litlu-Laugum.
Þverá í Laxárdal: Þar hefur varðveist mjög merkilegur torf-
bær sem og útihús af fornri gerð og eru þetta taldar einna
heildstæðustu búsetuminjar á landinu öllu. í elsta hluta
bæjarhúsanna er stofan þar sem fyrsta kaupfélag á íslandi,
Kaupfélag Þingeyinga, var stofnað árið 1882. Stofan, sem
byggð var 1849, var flutt og endurreist á safnsvæði Safna-
hússins á Húsavík, á árunum 1994-1996, þar sem hún er til
sýnis fyrir almenning. Kirkjan á Þverá er úr höggnum steini
og var reist af Jóni Jóakimssyni, bónda á Þverá, árið 1878.
Arngrímur Gíslason málaði altaristöfluna.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 25