Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2006, Qupperneq 33

Skinfaxi - 01.05.2006, Qupperneq 33
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmótsins: Þingeyingar eru stórhuga „Allur undirbúningur Þingey- inga fyrir Unglingalandsmótið hefur gengið sérlega vel. Það verður ekki af Þingeyingunum tekið að þeir eru stórhuga að taka svona mót að sér. Metn- aður í því að gera vel og vanda til verka hefur einkennt allan undirbúning þeirra og það hef- ur verið sérlega gaman að taka þátt í þessu með þeim. Nálægð við alla atburði er afar stór kostur við mótssvæðið á Laug- um en það eru varla hundrað metrar á milli keppnisstaða. Ég er sannfærður um aðstaðan öll á Laugum verður stórglæsileg og heimamönnum til sóma," sagði Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglinga- landsmóts UMFÍ á Laugum, sem haldið verður um verslu- narmannahelgina. Ómar sagði að með hverju mótinu sem haldið væri öðluðust menn mikla reynslu og hún væri afar dýrmæt í þessum efnum. Hann sagði að ekkert mót væri eins og það næsta á undan en forsendur- nar væru alltaf þær sömu. Alltaf væri um sama markhópinn að ræða en reynslan, sem menn byggju yfir frá fyrri mótum, kæmi sér gríðarlega vel. Við höfum í gegnum árin verið að byggja upp ákveðinn lager af landsmótsvarningi sem er síðan fluttur milli mótsstaða á hverjum tíma svo að ekki þarf að fjármagna og festa kaup á þessum hlutum á hverjum stað fyrir sig. Ómar segir þetta skipta afar miklu máli. Mótið á Laugum verður fjórða landsmótið þar sem hann er framkvæmdastjóri. „Þetta verður bara alltaf skemmtilegra með hverju mót- inu. Það hefur verið geysilega gaman að vinna með öllu fólki á öllum stöðum sem mótin hafa verið haldin á." - Unglingalandsmót UMFÍ ernú verið að halda í 9. skiptið. Hvaða gildi hafa þessi mót í þín- um huga? „Það er ekki nokkur spurn- ing um að þau hafa gríðarlegt gildi fyrir þessa krakka og það segir sína sögu að margir þátt- takendur velja Unglingalands- mót ár eftir ár. Þá er það ekki síst mikilvægt fyrir fjölskylduna að koma á svona íþróttahátíð og verja tímanum saman yfir verslunarmannahelgina. Mér finnst það flottasta að foreld- arnir eigi þess kost að koma með og vera með börnunum sínum þessa helgi. Þessi mót skipa orðið verulegan sess og þau hafa ennfremur mikið for- varnagildi. Það má alveg segja fullum fetum að mótin í gegn- um tímann hafa verið í einu orði sagt frábær. Þessi mót eru svo sannarlega komin til að vera og miklu meira en það." - Hvað búist þið við miklum fjölda á mótið á Laugum um verslunarmannahelgina? „Við gerum ráð fyrir tíu þúsund manns og svæðið á Laugum er tilbúið að taka móti þeim fjölda. Það er gríðarleg tilhlökkun í mínum huga og ég er handviss um að þetta verður alveg meiriháttar unglinga- landsmót/'sagði Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins. 9.UNGLINGA LANDSMOT UMFÍ Laugum 4.-6. ágúst SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 33

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.