Skinfaxi - 01.05.2006, Page 35
Ingólfur Sigfússon, umsjónarmaður heimasíðu Unglingalandsmótsins:
Þátttaka í þessum
mótum er einstök
upplifun
Ingólfur Sigfússon hefur haft umsjón með heimasíðu Ungl-
ingalandsmótsins á Laugum frá því að hún fór í loftið í
mars. Á vefsíðunni er hægt að nálgast ýmsar hagnýtar
upplýsingar um mótið og mótsstaðinn. Fréttir verða birtar
jafnt og þétt fram að móti frá Laugum af gengi mála og þá
verða birt myndaalbúm frá svæðinu. Þá verða fundargerðir
Unglingalandsmótsnefndar birtar á vefsíðunni.
Ingólfur hefur búið í Reykjadalnum í 16 ár en fyrstu
árin var hann í Mývatnssveit. Hann útskrifaðist frá fram-
haldsskólanum á Laugum í vor og ætlar í haust að leggja
stund á tölvunarfræði við Háskólann á Akureyri.
„Það hefur verið mjög gaman að vinna við heimasíðu
mótsins. Ég hlakka mikið til Unglingalandsmótsins og er
orðinn spenntur eins og flestir hér í sýslunni. Það er mikil
áskorun fyrir svona lítið sveitarfélag að taka að sér svona
stórt mót en allir hafa lagst á eitt í undirbúningnum sjálf-
um,"sagði Ingólfur.
Ingólfur sjálfur var töluvert mikið í íþróttum á ungling-
UMFÍfærafnot
af glæsilegu húsi
á Laugum
Undirbúningur 9. Unglingalandsmóts UMFÍ, sem verður
haldið um verslunarmannahelgina á Laugum í S-Þingeyjar-
sýslu, er kominn á fullt skrið. Unglingalandsmótsnefnd
fundar reglulega á Laugum og fer yfir stöðu mála. Snemma
á þessu ári var skrifað undir leigusamning við Kvenfélaga-
samband Suður-Þingeyinga um afnot af glæsilegu húsi
þeirra, sjálfum Húsmæðraskólanum á Laugum. Skólahúsið
var byggt á árunum 1928-1929 eftir teikningu Guðjóns
Samúelssonar. Húsið og allir innanstokksmunir eru
gersemar. Flest húsgögnin í dagstofu eru smíðuð á staðn-
um af Gunnari Jónatanssyni frá Reykjum í Fnjóskadal eftir
fyrirsögn Kristjönu Pétursdóttur, fyrsta skólastjóra skólans,
og leitaði hún aðstoðar Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara
við gerð þeirra.
sárum, mest þó í frjálsum íþróttum. Hann hætti iðkun
vegna bakmeiðsla um 16 ára aldurinn.
„Ég tók þátt í tveimur Unglingalandsmótum, fyrst í
Stykkishólmi og síðan á Sauðárkróki. Þátttaka í þessum
mótum er ofarlega í minningunni en ég hvet alla, sem hafa
aldur til, að taka þátt en stemningin og umgjörð þessara
móta er einstök og mikil upplifun fyrir alla fjölskylduna,"
sagði Ingólfur Sigfússon. Heimasíða Unglingalandsmóts
UMFÍ á Laugum er www.ulm.is.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFl, Guðrún Fjóla
Helgadóttir, formaður Kvenfélagasambands S-Þingeyinga, og
Arnór Benónýsson, formaður HSÞ, við undirskrift samningsins á
Laugum.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 35