Skinfaxi - 01.05.2006, Blaðsíða 43
Fréttir úr hreyfingunni...
Már Hermannsson endurkjörinn formaður USVH:
• •
Oflugt starf og mikill kraftur
65. héraðsþing USVH, Ungmennasambands
Vestur-Húnvetninga, var haldið 30. mars sl. í
félagsheimilinu Víðihlíð og hófst kl. 17:00.
Innan vébanda USVH eru 6 aðildarfélög;
Umf. Dagsbrún, Umf. Grettir, Umf. Kormákur,
Umf. Víðir, Sundfélagið Húnar og Hestamanna-
félagið Þytur. Félagsmenn eru rúmlega 1000
talsins.
Dagskrá þingsins var hefðbundin og voru þingfull-
trúar um 30. Már Hermannsson, formaður USVH, og Gun-
nar Sveinsson framkvæmdastjóri fóru yfir skýrslu stjórnar síðasta
starfsárs og áform á nýju starfsári. Öflugt starf er unnið
innan sambandsins og í félögum þess er mikill kraftur í forystu-
fólki USVH.
Nokkrar tillögur voru lagðar fyrir þingið og voru þær ræddar í
starfsnefndum. Um þær urðu síðan töluverðar umræður þar sem
fjölmargir þingfulltrúar tóku til máls. Már Hermannsson var end-
urkjörinn formaður USVH. Aðrir í stjórn eru Pétur Þ. Baldursson,
Elín Jóna Rósinberg, Hafdís Þorsteinsdóttir og Erna Friðriksdóttir.
í varastjórn eru Aðalheiður Böðvarsdóttir, Sigrún Þórðardóttir og
Anna María Elíasdóttir. Gestir fundarins voru þrír, Haraldur Þór
Jóhannsson og Ómar Bragi Stefánsson frá UMFÍ og Viðar Sigur-
jónsson frá ÍSÍ. Veitingará þinginu voru í umsjá Umf. Víðis.
Hermanni þökkuð Aðalfundur Fjölnis
vel unnin störf í Dalhúsum
Þing Héraðssambands Vestfirðing
var haldið laugardaginn 8. apríl. Auk
hefðbundinna aðalfundarstarfa voru
veitt silfurmerki HSV. Þau hlutu Kristján
Pálsson, Þorsteinn Þráinsson, Kristján
Jóakimsson og kona hans Sigrún Sigvaldadóttir,
Harpa Björnsdóttir, Hermann Níelsson og Gunnar Þórðarson.
Gunnar Þórðarson lét af störfum sem framkvæmdastjóri HSV
1. maí og voru honum einnig þökkuð vel unnin störf. Silfurmerki
HSV eru veitt þeim sem unnið hafa vel og ötullega að íþróttamál-
um.
Þá varfyrirhuguð sameining fjögurra íþróttafélaga á ísafirði
kynnt á þinginu en hún mun alfarið verða í höndum félaganna
sjálfra, að því undanskildu að þau fá afnot af starfsmönnum HSV
ef þau óska þess.
Aðalfundur Fjölnis var haldinn 27. apríl í íþrót-
tahúsinu í Dalhúsum í Grafarvogi. Stjórn Fjölnis
er þannig skipuð: Guðlaugur Þór Þórðarson, for-
maður, Jón Karl Ólafsson, varaformaður, Ragnar
Þór Guðgeirsson, gjaldkeri, Sævar Hilmarsson,
meðstjórnandi, Kári Arnórsson, meðstjórnandi,
Bergur Steingrímsson, meðstjórnandi, og Ingi-
björg Óðinsdóttir, meðstjórnandi.
Á aðalfundinum var (ris Anna Skúladóttir frjálsíþrótta-
kona valin afreksmaður Fjölnis árið 2005. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur íris Anna skipað sér á bekk á meðal bestu frjálsíþróttaman-
na landsins. Það verður spennandi að fylgjast með þessari stúlku
þvi að þarna er mikið efni á ferð.
Guðlaugur Þór Þórðarson sæmdi Guðmund Árnason gull-
merki Fjölnis. Guðmundur ákvað nú að taka sér frí frá stjórnar-
störfum í íþróttahreyfingunni. Hann hefur setið í hinum ýmsu
stjórnum í 30 ár. Þá var Birgir Gunnlaugsson sæmdur gullmerki
félagsins.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 43