Skinfaxi - 01.02.2007, Page 11
Metnaðarfullt leiðtoganám
Akademíunnar og UMFÍ
Leiðtoganámskeið Íþróttaakademíunnar og UMFÍ var haldið dagana
22.-25. febrúar, í húsakynnum (þróttaakademíunnar í Reykjanesbæ.
Námskeiðið var metnaðarfullt og haldið sérstaklega fyrir forsvars-
menn íþróttafélaga, sveitarfélaga og félagasamtaka. Markmiðið með
náminu er að gera félagsmenn betur í stakk búna til að taka á hinum
ýmsu verkefnum sem þeir þurfa að fást við í starfi sínu.
Þátttakendur í leiðtoganámi Iþróttaakademiunnar og UMFÍí Reykjanesbæ.
Félög eru í auknum mæli að gera
sér grein fyrir því að þau starfa
á samkeþþnismarkaði. Sveitar-
félög keppa um að fá til sín sem
flesta íþúa og íþróttafélög og
félagasamtök keppa sín á milli
um félagsmenn, styrki, fjármagn
og fleira. Velta félaga hefur aukist
á síðustu árum sem og fram-
boð styrkja og fjármagns. I Ijósi
þessa gera félög aukna kröfu um
fagleg vinnubrögð og menntun
starfsmanna til að standa öðrum
framar í samkeppni.
Leiðbeinendur á námskeiðinu voru fjölmargir
en Gísli Blöndal, ráðgjafi, reið á vaðið. Átján
þátttakendur sátu námskeiðið að þessu sinni.
Þorsteinn Gunnarsson, íþróttafréttamaður, hélt
fyrirlestur um fjölmiðla og annað þeim tengt á
fyrsta degi námskeiðsins. Aðrir leiðbeinendur á
námskeiðinu voru Gylfi Dalmann Aðalsteinsson,
lektor við Hl, Eðvald Möller, aðjúnkt við H(,
Hjálmar Árnason, alþingismaður, Björk Guðjóns-
dóttir, forseti bæjarstjórnar i Reykjanesbæ,
Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra, og Valdimar Gunnarsson, landsfulltrúi
UMFÍ.
Þátttakendur voru mjög áhugasamir þegar
Skinfaxi leit inn í upphafi námskeiðsins og lögðu
fjölmargar áhugaverðar spurningar fyrir leið-
beinendur.
Frá fyrirlestri í leiðtoganámi Iþróttaakademíunnarog UMFlíReykjanesbæ.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands 11