Skinfaxi - 01.02.2007, Page 21
AAihUÁ áJkuM, ci baximMvtoK Uwmm UVN:
þátttakendur
kepptu á íslandsmóti
í fyrsta sinn
Innan Ungmennasambands Dalamanna og
Norður-Breiðfirðinga, UDN, hefur mikil vakn-
ing átt sér stað í badminton síðastliðið ár.
Jörgen Nilsson, sem er starfsmaður í ung-
menna- og tómstundabúðunum á Laug-
um, hefur átt veg og vanda af þessum
uppgangi íþróttarinnar í sýslunni. Jörgen hefur þjálfað badminton á Laug-
um og hafa um 25 manns æft að jafnaði 1-2 sinnum í viku.
Ákveðið var fyrir nokkru að senda hóp á íslandsmótið fyrir keppendur
fædda 1997 og eldri, helgina 3.-4. mars, og kepptu alls ellefu félagar í
UDN á mótinu. Segja má að brotið hafi verið blað í sögu Ungmennasam-
bandsins því að þetta var í fyrsta sinn sem einstaklingar keppa undir
merkjum UDN á (slandsmóti. Mikil eftirvænting var vegna þessa og
stemning í hópnum. Skemmst erfrá því að segja keppendurnirstóðu sig
vel og var komið heim í Dalina með eitt silfur.
„Églétboðút ganga hérá svæðinu fyrir rúmlega ári síðan hvort ekki væri
áhugi fyrirþví að fara afstað með æfingar í badminton. Áhuginn lét ekki á sér
standa og byrjun komu 40 krakkar til æfinga. Þeim fækkaði eitthvað i vetur
en engu að síður er áhuginn mikill. Krökkunum fannst ofsalega gaman að
fara ámótog núna eigum við von á Borgnesingum i heimsókn sem ætla að
æfa á Laugum og keppa við krakkana íDalasýslunni,"sagði Jörgen Nilsson,
badmintonþjálfari hjá UDN, í spjalli við Skinfaxa. Jörgen sagðist hafa
verið meira í skvassi þegar hann átti heima í Danmörku. Þegar hann kom
á Akranes á sinum tima hafi hann hins vegar farið að æfa badminton af
fullum krafti og keppt á mótum fyrir (A. „Ég er bjartsýnn á framhaldið hjá
krökkunum. Þau eru ákveðin að halda áfram að æfa og það verður gaman
að fylgjast með þeim i framtiðinni," sagði Jörgen.
Vinnum saman
1907 - 2007
landgræðsla i 100 ár
Græðum ísland
Landgræðslufræ
Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta
fallega grasflöt eigum við fræið handa þér.
Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hellu
Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags (slands 21