Skinfaxi - 01.02.2007, Síða 24
MÍ 15-22 ára C’jrjáUwM, íjráCtuMi:
Bætingar og framfarir
hjá unga fólkinu
Lið ÍR sigraði í heildarstigakeppni Meistaramóts
íslands 15-22 ára sem fram fór í Laugardalshöllinni
dagana 27. - 28. janúar síðastliðinn. Lið ÍR hlaut
samtals 295 stig, lið FH varð í öðru sæti með 214
stig og Breiðablik varð í þriðja sæti með 142,5 stig.
(R-ingar sigruðu í þremur aldurs-
flokkum af sex (í stúlknaflokki
17-18 ára, drengjaflokki 17-18
ára og ungkvenna 19-22 ára). FH
sigraði í tveimuraldursflokkum (í
sveinaflokki 15-16 ára og meyja-
flokki 15-16 ára) og Breiðablikí
flokki ungkarla 19-22 ára.
Af árangri í einstökum greinum
má ráða að uppsveiflan er töluverð
í frjálsum íþróttum unglinga.
Aðstæður eru fyrsta flokks í nýju
frjálsíþróttahöllinni og árangurinn
lætur ekki á sér standa, aðeins
rúmu ári eftir að húsið var tekið í
notkun. Efniviðurinn er mikill og
verður spennandi að fylgjast með
þessu unga og upprennandi fólki á
næstu árum.
Sveit Fjölnis bætti Islandsmet
karla í síðustu keppnisgrein móts-
ins, 4x400 metra boðhlaupi, en
Fjölnissveitin kom í mark á 3:28,40
mínútum og bætti met HSÞ frá
sl. ári um 1,48 sekúndur. (Gamla
metið var 2:29,88 mínútur.) Þetta
er einnig met í flokkum 19-20
ára og 21-22 ára unglinga. Sveit
Fjölnis skipuðu þeir Leifur Þor-
bergsson, Bjarni Malmquist, Ingvar
Haukur Guðmundsson og Sveinn
Elías Elíasson.
Sveinn Elías Elíasson, Fjölni,
bætti eigið (slandsmet í 200 metra
hlaupi, kom í mark á 21,96 sek.
og bætti metið sem hann setti
fyrir rúmlega ári um 19/100 úr
sekúndu, en gamla metið var 22,15
sek. Þetta er sannarlega frábær
árangur hjá Sveini en hann verður
18 ára síðar á þessu ári og er því
ennþá í drengjaflokki. Þetta er því
met í fjórum aldursflokkum, þ.e.
17-18 ára, 19-20 ára, 21 -22 ára og
í karlaflokki.
Einar Daði Lárusson, (R, bætti
drengjametið í 60 metra grinda-
hlaupi um 2/100 úrsekúndu þegar
hann hljóp á 8,35 sek. (gamla met-
ið átti Ingi Sturla Þórisson, FH, 8,37
sek., sett árið 2000).
Heiga Margrét Þorsteinsdóttir,
USVH, bætti eigið met í 200 metra
hlaupi meyja um 27/100 úr sek.
(var 25,51 sek.frá 18.11.2006),
hljóp á 25,24 sek. og var aðeins
1/100 úr sek. frá metinu í stúlkna-
flokki. Þá hljóp Helga Margrét 60
metra hlaup á 7.73 sekúndum
sem er aðeins 2/100 frá meyjameti
Sigurbjargar Ólafsdóttur. Þá stökk
hún 5,66 metra í langstökki og
varpaði 3 kg kúlu 14,32 metra.
Ásdís Hjálmsdóttir, Fjölni/
Ármanni varpaði kúlu13,67 metra
í flokki 19-22 ára ungkvenna, en
það er aðeins þremur sentímetrum
frá meti hennar í flokki 21-22 ára.
Bergur Ingi Pétursson, FH, bætti
sinn besta árangur í sama aldurs-
flokki karla um rúmlega hálfan
metra, varpaði 16,12 metra.
Arnór Jónsson, Breiðabliki, sigr-
aði í tveimur greinum 27. janúar
í flokki 19-22 ára. Hann náði
ársbesta árangri í karlaflokki í 60
metra hlaupi, en hann kom í mark
á 7,05 sek. og 22,55 sek. í 200
metra hlaupi.
Linda Björk Lárusdóttir, Breiða-
bliki, sigraði í tveimur greinum í
flokki 19-22 ára, hljóp 60 metra á
8,01 sek. og 200 metra á 26,50 sek.
Einar Daði Lárusson, [R, sigraði
einnig í tveimur greinum í flokki
drengja 17-18 ára en hann stökk
1,90 metra í hástökki og 6,79 metra
í langstökki.
Svavar Ingvarsson, HSÞ, sigraði
einnig í tveimur greinum í sveina-
flokki en hann stökk 1,85 metra
í hástökki og varpaði 4 kg kúlu
14,97 metra.
Þá verða skráð ný met í 4x200m
boðhlaupi í flokkum meyja
(Sveit FH, 1:50,68 mín.), stúlkna
(Sveit fR, 1:50,28 mín.) og drengja
(Sveit ÍR, 1:35,82 mín.) en keppt
var í fyrsta skipti í þessari grein í
ofangreindum aldursflokkum.
Samtals 222 keppendur tóku þátt í
mótinu, frá 20 félögum og héraðs-
samböndum.Tókst framkvæmd
mótsins vel en það var frjálsíþrótta-
deild Breiðabliks sem sá um fram-
kvæmdina að þessu sinni.
24 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands