Skinfaxi - 01.02.2007, Side 30
SS. kéraðsjHKý HSK á. LaugalmÁL 24. feértíar
Gísli Páll endurkjörinn
formaður HSK
íþróttamaður HSK 2006, Olil Amble, Hestamannafétaginu Sleipni.
Um 90 manns mættu á 85. héraðs-
þing HSK sem haldið var á Lauga-
landi í Holtum 24. febrúar síðastlið-
inn. Á þinginu var gefin út glæsi-
leg 80 blaðsíðna ársskýrsla um
starfsemi héraðssambandsins á
liðnu ári, sem er myndskreytt með
á annað hundrað myndum. (skýrsl-
unni kemur fram að starfið var
þróttmikið á liðnu ári, bæði innan
HSKog hjá aðildarfélögum þess.
Rekstur sambandsins gekk vel á
síðasta ári og skilaði hagnaði.
Gísli Páll endurkjörinn
formaður HSK
Gísli Páll Pálsson úr (þróttafélaginu
Hamri í Hveragerði var endurkjör-
inn formaður sambandsins. Markús
(varsson, sem setið hefur í stjórn sl.
11 ár, gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Anna María Kristjánsdóttir,
fyrrverandi formaður Umf. Heklu,
kemur ný inn í varastjórn HSK og
Bergur Guðmundsson á Selfossi,
sem sat í varastjórn, var kosinn
meðstjórnandi.
Ný stjórn HSK
Formaður, Gísli Páll Pálsson (þr.
Hamri, gjaldkeri, Bolli Gunnars-
son Umf. Baldri, ritari, Guðríður
Aadnegard (þr. Hamri, vara-
formaður, Ragnar Sigurðsson
Umf. Þór, meðstjórnandi, Bergur
Guðmundsson Umf. Selfossi, vara-
menn, Helga Fjóla Guðnadóttir
He. Geysi, Fanney Ólafsdóttir, Umf.
Vöku Anna María Kristjánsdóttir,
Umf. Heklu.
Aðildarfélög HSK eru
nú orðin 56 talsins
Golfklúbburinn Geysi sótti á síð-
asta ári um um aðild að HSK. Var
inntökubeiðni félagsins tekin fyrir
á héraðsþingi HSK á Laugalandi 24.
febrúar sl. og samþykkt. Félagið var
stofnað að Haukadal III í Biskups-
tungum 15. júní 2006 og er heimili
þess og varnarþing í Haukadal í
Biskupstungum. Heimavöllur
klúbbsins er Haukadalsvöllur.
Jóhann Karl Þórisson var kjörinn
fyrsti formaður félagsins og aðrir
stjómarmenn eru Gunnar Skúlason
gjaldkeri, Frímann Birgir Baldurs-
son ritari og meðstjórnendur Einar
Tryggvason og Leifur Halldórsson.
Varastjórn skipa Ágústa Þórisdóttir
og Helgi Már Ólafsson. Stofnfélag-
ar voru 27 talsins.
Aðildarfélög HSK eru nú orðin 56
talsins, þar af eru 24 ungmenna-
félög, 12 golfklúbbar, 8 íþrótta-
félög, 7 hestamannafélög, 3 knatt-
spyrnufélög, 1 hnefaleikafélag og
1 skotíþróttafélag.
íþróttamenn HSK2006 ásamtþeim sem veittu verðlaunum viðtöku fyrirþá
sem voru fjarverandi.
Bolli gjaldkeri, Engilbert fram- Björn B. Jónsson afhendir Markúsi
kvæmdastjóri og Gísli Páll formaður. ívarssyni starfsmerki UMFÍ
íþróttamenn HSK
Á héraðsþinginu voru 19 íþróttamenn verðlaunaðir sem íþróttamenn HSK í viðkomandi greinum fyrir árið 2006.
Badmintonmaður Reynir Guðmundsson Umf. Hrunam.
Blakmaður Guðmundur Sigmarsson Umf. Hrunam.
Borðtennismaður Reynir Björgvinsson (þr. Dímon
Briddsmaður Ómar Olgeirsson (þr. Garpur
Fimleikamaður Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir Umf. Selfoss
Frjálsíþróttamaður Ágústa Tryggvadóttir Umf. Selfoss
Golfmaður Hlynur Geir Hjartarson GOS
Glímumaður Elisabeth Patriarca (þr. Dímon
Handknattleiksmaður Hörður Bjarnarson Umf. Selfoss
Hestaíþróttamaður Olil Amble He. Sleipnir
fþróttamaður fatlaðra Friðgeir Friðgeirsson (þr. Suðri
Judómaður Þór Davíðsson Umf. Selfoss
Karatemaður Ingólfur Snorrason Umf. Selfoss
Knattspyrnumaður Elías Örn Einarsson Umf. Selfoss
Körfuknattleiksmaður Hafrún Hálfdánardóttir (þr. Hamar
Skákmaður Páll Leó Jónsson Umf. Selfoss
Skotíþróttamaður Jónas Geir Sigurðsson SFS
Starfsíþróttamaður Einar Sigmarsson Umf.Trausti
Sundmaður Hjalti RúnarOddsson Umf. Selfoss
30 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands