Skinfaxi - 01.02.2007, Qupperneq 32
74. ársjtwuj US14 (uddcð í MMUUjarðl:
Bjart fram undan
í íþróttalífi á Hornafirði
og nágrenni
Ásmundur Gíslason og Magnús
Jónasson voru skipaðir þingfor-
setar.
Ragnhildur Einarsdóttir, for-
maður USÚ, flutti skýrslu stjórnar
og Jóhanna Kristjánsdóttir skýrði
reikninga sambandsins sem síðar
voru samþykktir samhljóða.
Nokkrir gestir ávörpuðu þingið,
m.a. Björn B. Jónsson, formaður
UMFt. Hann þakkaði USÚ fyrir gott
starf og sagði frá helstu verkefn-
um UMFl, m.a. Landsmóti í Kópa-
vogi og Unglingalandsmóti á
Höfn, byggingu nýrrar þjónustu-
miðstöðvar hreyfingarinnar í
Reykjavík, alþjóðlegri ráðstefnu
íþróttafréttamanna og útgáfu
frímerkis í tilefni 100 ára afmælis
UMFÍ.
Akstursíþróttaklúbþur Austur-
Skaftafellssýslu sótti um aðild að
USÚ og var umsóknin samþykkt
samhljóða.
Ragnhildur Einarsdóttir kynnti
fyrirfundarmönnum stöðu mála
vegna Unglingalandsmótsins sem
USÚ heldur. Það er Ijóst að dagskrá
mótsins verður fjölbreytt og
afþreying öll hin glæsilegasta fyrir
börn, unglinga og fullorðna.
Friðrik Þór Ingvaldsson, for-
maður framkvæmdanefndar upp-
byggingar íþróttamannvirkja,
kynnti þær framkvæmdir sem
standa yfir og það er nokkuð víst
að fram undan eru bjartir tímar
fyrir íþróttafólk á Höfn og
nágrenni.
Björn B. Jónsson kynnti fyrir
fundarmönnum Risalandsmótið
í Kópavogi sem án efa verður
glæsilegt. Guðrún Snorradóttir,
verkefnastóri kynnti verkefnið
Flott án fíknar og fór yfir hug-
myndafræðina á bak við það.
Jóhanna Kristjánsdóttir afhenti
formönnum allra aðildarfélaganna
bókargjöf.
Tillaga kom fram um óbreytta
stjórn og var hún samþykkt sam-
hljóða. Stjórn USÚ skipa: Ragn-
hildur Einarsdóttir, formaður,
Jóhanna Kristjánsdóttir, gjaldkeri,
og Kjartan Hreinsson, ritari.
Bygging nýrra höfuðstöðva UMFf:
Stefnt að fyrstu skóflustungu í júní
Undirbúningsvinna að byggingu nýrra höfuðstöðva UMFÍ íTryggvagötu 11 er í hefðbundnu
ferli að sögn Björn B. Jónssonar, formanns. Arkitektar og hönnuðir hafa verið að vinna að
útreikningum við kostnað.
„Þegar ákveðið var að taka tvo aðila til að sjá um alla hönnun og teikningu fóru hlutirnar raun-
verulega að gerast. Nú er verið vinna í málunum og við erum að gera okkur vonir um að taka
fyrstu skóflustunguna Ijúní að öllu óbreyttu. Þaö eru óhemju spennandi tímar fram undan og
mikið að gerast íhreyfingunni almennt,"sagði Björn B. Jónsson.
Ragnhildur Einarsdóttir, formaður
USÚ, í ræðustóli.
74. ársþing USÚ var
haldið 10. mars sl.
Mánagarði. Ragnhildur
Einarsdóttir, formaður
USÚ, setti þingið, bauð
gesti velkomna og
óskaði afmælisbarninu,
Ungmennafélaginu
Mána, til hamingju
með 100 ára afmælið.
Björn B. Jónsson, formaður UMFl, og Helga Guðjónsdóttir, varaformaður.
Gestir þingsins voru Björn B. Jónsson, formaður UMFl, Helga Guðjónsdótt-
ir, varaformaður UMFl, Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFl,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFl og framkvæmdastjóri Ungl-
ingalandsmótsins, Guðrún Snorradóttir, starfsmaður UMFl, og verkefna-
stjóri, Flott án fíknar, Sigríður Jónsdóttir frá (SÍ og Erlendur Kristjánsson frá
menntamálaráðuneytinu.
32 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands