Skinfaxi - 01.02.2007, Side 35
A ^aijvuicUw Kejiamhwj íjwáUzi' oj uAi^mMWAjé'Lujs:
A Gullmerki félagsins
ksA afhent í fyrsta skipti
Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmenna-
félags var haldinn 28. febrúar sl. Einar Haralds-
son var endurkjörinn formaður félagsins og
einnig stjórn félagsins. Björn B. Jónsson,
formaður UMFÍ, afhenti félaginu hvatningar-
verðlaun UMFl og heiðraði Birgir Má Bragason
og Sesselju Birgisdóttur með starfsmerki UMFl.
Veittar voru viðurkenningar (starfsmerki)
fyrir stjórnarsetu og voru sjö bronsmerki veitt
þeim Elínu Kjartansdóttur, Klemenzi Sæmunds-
syni, Sigríði Björnsdóttur, sunddeild, Ólafi Birgi
Bjarnasyni, Halldóri Leví Björnssyni, Hjörleifi
Stefánssyni, knattspyrnudeild, og Þorsteini
Marteinssyni, skotdeild.
Tvö silfurmerki voru veitt þeim Þorgrími
St. Árnasyni, körfuknattleiksdeild, og Guðjóni
Axelssyni, aðalstjórn.
Starfsbikar félagsins var veittur þeim hjón-
um Lindu Gunnarsdóttur og Jóni Kr. Magnús-
Hjónunum Lindu Gunnarsdóttur ogjóni Kr.
Manússyni var afhentur starfsbikar Kefiavikur.
Myndir: Víkurfréttir
syni. Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri
í Sparisjóði Keflavíkur, var heiðraður með gull-
merki félagsins en þetta er í fyrsta skiptið sem
Björn B. Jónsson, formaður UMFl, afhendir Einari
Haraldssyni, formanni Keflavikur íþrótta- og ung-
mennafélags, hvatningarverðlaun UMFÍ.
gullmerki er veitt. Aðalstjórn óskar þeim sem
hlutu viðurkenningartil hamingju með þær.
BÍLALEICA
AKUREYRAR
Reykjavík • Keflavík-FLE • Borgarnes • Ólafsvík • ísafjörður • Sauðárkrókur • Akureyri • Vopnafjörður • Egilsstaðir • Neskaupstaður • Höfn • Vestmannaeyjar • Hveragerði
Upplýsingar og bókanir í síma 461-6000 & 568-6915 • Afgreiðslutími 08-18 alla daga • Fljótlegt og auðvelt að bóka bil á www.holdurjs
þínar þarfir - okkar þjónusta.
Bílaleiga Akureyrar er ein elsta og stærsta bilaleiga
landsins með starfsemi á 13 stöðum um allt land.
Bílaflotinn er bæði stór og fjölbreyttur enda ávallt
lögð rik áhersla á gott úrval vel útbúinna bila
sem uppfylla ýtrustu kröfur viðskiptavina.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags Islands 35