Skinfaxi - 01.02.2007, Side 37
HverjerðíM^urUut Amta, QuðriMi
í vtttvaMxjMUWii kjá UMPÍ
Anna Guðrún Steindórsdóttir, 22 ára nemi á þriðja ári i íþrótta-
fræðum við Kennaraháskóla íslands á Laugarvatni, var um þriggja
vikna skeið í febrúar í vettvangsnámi hjá Ungmennafélagi (slands.
Nemendur á þriðja ári hafa um það að velja að kynnast einhverju
því sem tengist náminu og varð UMFÍ fyrir valinu hjá Önnu
Guðrúnu.
„Ég vareftir mjög stuttan tíma búin að kynnast mörgu
fjölbreyttu og skemmtilegu innan ungmennafélagshreyfingar-
innar. Ég var hér í vettvangsnámi í um þrjár vikur og er alveg vlss
um að þessi tími varð mér lærdómsríkur" sagði Anna Guðrún.
Þess má geta að Anna Guðrún útskrifaðist af íþróttabraut
Fjölbrautaskóla Suðurlands vorið 2004. Hún æfði fimleika frá
barnsaldri fram til tvítugs og hefur þjálfað ungarfimleikastúlkur
frá 15 ára aldri. Hún kemurfrá Hveragerði og æfði og þjálfaði
lengst af hjá Umf. Selfossi en einnig þjálfaði hún hjá Hamri í
Hveragerði, Umf. Laugdæla og Fjölni. Anna Guðrún er einnig
dómari í hópfimleikum.
Rakel Rut Valdimarsdóttir, formaður Umf. Þróttar íVogum:
Höfða til sem flestra í vaxandi bæjarfélagi
Aðalfundur Ungmenna-
félagsins Þróttar var haldinn
ÍTjarnarsal Stóru-Vogaskóla
fimmtudaginn 15. febrúar sl. Var
þar kosin ný stjórn foreldrafélags
sunddeildar, gerðar lagabreyting-
ar, samþykktir ársreikningar og
kosin ný aðalstjórn félagsins.
Aðalstjórn skipa:
Rakel Rut Valdimarsdóttir,
formaður
Guðbjórg Kristmundsdóttir
Kristinn Sigurþórsson
Ríkharður Sveinn Bragason
Sigríður Símonardóttir
Varamenn eru:
Bergur Álfþórsson
Ivan Kay Frandsen
Fundarsókn var heldur minni
en á aukaaðalfundi félagsins í
september þar sem mættu 70
manns en stjórn vill þakka þeim
sem sýndu starfsemi félagsins
áhuga með nærveru sinni.
Uppskeruhátíð sund- og
knattspyrnudeilda var haldin
sunnudaginn 11. febrúar s.l., í
Tjarnarsal Stóru-Vogaskóla. Mjög
góð mæting var á hátíðina og
voru þar verðlaunaðir þeir sem
skarað höfðu fram úr á árinu
2006 í þessum tveimur greinum.
Einnig var heiðraður íþrótta-
maður ársins sem kjörinn var af
stjórn. Var það að þessu sinni
íris Ósk Hafsteinsdóttir, sund-
kona, sem hlaut titilinn en auk
hennar var tilnefndur Ásgeir
Sigurjónsson, knattspyrnumaður.
„Við getum sagt að starfsemin
hjá okkur sé með ágætum um
þessar mundir. Það hefur átt sér
stað ákveðin tiltekt hjá okkur og
má í þeim efnum nefna að við
höfum verið að skipta út lögum
og koma með ný í staðinn. Við
höfum verið að reyna að koma
inn með nýjar greinar og buðum
m.a. upp á hnefaleika. Við settum
upp aðstöðu en fáir iðkendur eru
akkúrat þessa stundina. Við höf-
um ennfremur boðið upp á eró-
bikk í þeim tilgangi að fá fleiri til
að vera með. (dag eru iðkendur
um 100 talsins, langflestir börn
og unglingar en fullorðnir eru um
15," sagði Rakel Rut Valdimars-
dóttir, formaður Ungmenna-
félagsins Þróttar ÍVogum, í spjalli
við Skinfaxa.
Rakel Rut sagði að öll starfsemin
væri að komast í góðar skorður.
Markmiðin á næstunni væru þau
að fá knattspyrnuvöllinn í gott
ástand. Staðið hefur til í nokkurn
tíma að stofa meistaraflokk í
kringum knattspyrnuna en hún
vegur þungt í starfseminni ásamt
sundinu.
„Við sækjum mikið í aðstöð-
una í Reykjanesbæ og ég veit
ekki hversu langt við munum
ganga til að fá aðstöðuna bætta
hér ÍVogunum. Við ætlum svo
sannarlega að reyna og sjá hvað
við komumst langt í þeim efnum.
Bæjarfélagið fer ört stækkandi
og markmið okkar er að höfða
til sem flestra," sagði Rakel Rut
Valdimarsdóttir.
SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags ísiands 37