Skinfaxi - 01.02.2007, Qupperneq 44
Vei kœwwutð ífoófáaiicvbið
eicUi búryarcL í Au&kurbwqL
Árleg íþróttahátíð eldri borgara, sem haldin hefur verið undan-
farin 16 ár, fórfram í íþróttahúsinu í Austurbergi í Breiðholti 21.
febrúar. Hátíðin fór mjög vel fram og skemmtu eldri borgarar
sér vel en fjölmargir hópar komu fram og sýndu atriði við góðan
orðstír. Alls sýndu 15 hópar eldri borgara íþróttir og dans.
Fyrr um daginn hófst Breiðholtshátíðin - menningarhátíð
eldri borgara í Breiðholti - með morgunsundi og fjörugri umræðu
um pólitík og landsins gagn og nauðsynjar. Nokkrir borgarfull-
trúar mættu ásamt fjölda eldri borgara í Breiðholtslaugina um
morguninn þar sem boðið var upp á harmónikuleik, kaffi og á
eftir sund og vatnsleikfimi. Stuttu síðar hélt stór hópur göngu-
garpa af stað frá lauginni í gönguferð um Breiðholtið.
Þorsteinn og Ágústa meistarar í sjöþraut
Þorsteinn Ingvarsson, HSÞ, varð
Islandsmeistari í sjöþraut karla eftir
spennandi keppni alla þrautina við Svein
Elías Elíasson, Fjölni. Keppnin fórfram í
frjálsíþróttahöllinni íLaugardal 17.-18.
febrúar. Þorsteinn hlaut samtals 5295 stig
og bætti unglingamet (19-20 ára) Sveins
Elíasar um 385 stig, en það var 4910 stig,
frá því í fyrra. Sveinn Elfas varð í öðru sæti,
aðeins 30 stigum á eftir Þorsteini, hlaut
samtals 5265 stig og bætti eigið Islands-
met i drengjaflokki um 355 stig. I þriðja
sæti varð svo Bjarni Malmquist Jónsson,
Fjölni, með 4575 stig.
Þorsteinn Ingvarsson
HSÞ.
íslandsmeistari í sveinaflokki (15-16 ára) varð Elvar Örn Sigurðsson,
UFA, með nýju sveinameti, hlaut samtals 4098 stig og bætti met Ólafs
Dan Hreinssonar, sem var 3720 stig, frá árinu 2000.1 öðru sæti varð
Halldór Örn Kristjánsson, UMSS, með 3897 stig og í þriðja sæti varð Ari
Jóhann Júlíusson, UMSE, með 3594 stig.
Ágústa Tryggvadóttir, Umf. Selfossi,
varð (slandsmeistari í fimmtarþraut
kvenna 18. febrúar. Ágústa hlautsamtals
3356 stig. Fjóla Signý Hannesdóttir, Umf.
Selfossi, var í öðru sæti með 3063 stig og
Valgerður Þorsteinsdóttir, UFA, varð þriðja
með 2850 stig. íslandsmet Kristínar Birnu
Ólafsóttur, |R, er 3843 stig, sett á sl. ári, svo
að Ágústa var tæplega 300 stigum frá því
að þessu sinni.
I fimmtarþraut meyja (16 ára og yngri)
Ágústa Tryggvadóttir si9raði Hel9a Mar9rét Þorsteinsdóttir,
Umf. Selfoss. USVH, með miklum yfirburðum og setti
meyjamet, hlaut samtals 4141 stig. Helga
Margrét er eitt mesta frjálsíþróttaefni sem fram hefur komið um langt
skeið og verður spennandi að fylgjast með henni í framtíðinni. Svein-
björg Zophoniasdóttir, USÚ, varð í öðru sæti með 2920 stig og Arna
Baldvinsdóttir, UMSE, í þriðja sæti með 2471 stig.
‘
44 SKINFAXI - tímarit Ungmannafélags íslands