Skinfaxi - 01.02.2008, Page 5
Vinningshafar í net-ratieik forvarnadagsins
ásamt Forseta íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni,
og aðstandendum verkefnisins.
Ólafur Ragnar Grímsson
afhenti verðlaun í
net-ratleik
Forseti islands, Ólafur Ragnar Gríms-
son, afhenti þremur ungmennum
verðlaun í net-ratleik sem efnt var til
í grunnskólum landsins á forvarna-
daginn 2007. Athöfnin var haldin á
Bessastöðum.
Verðlaunahafar voru þeir Eiður Rafn
Hjaltason, Heiðarskóla í Leirársveit,
Magnús Ellert Steinþórsson, Grunnskól-
anum á Þingeyri, og Vilhjálmur Patreks-
son, Landakotsskóla. Þeir leystu verk-
efni sem samið var af fulltrúum Iþrótta-
og Ólympíusambands Islands, Ung-
mennafélags Islands og Bandalags
íslenskra skáta. Verkefnið snerist um
þekkingu á starfsemi þessara hreyfínga
og úrlausn þess studdist við að kynna
sér hana á heimasíðum þeirra. Hundruð
grunnskólanemenda sendu inn réttar
lausnir og voru vinningshafarnir dregn-
ir úr þeim hópi.
Forvarnadagurinn var haldinn um
allt land þann 21. nóvember síðastliðinn.
Sérstök dagskrá var í öllum 9. bekkjum
grunnskólanna þar sem ungmenni tók-
m ' immm
ust á við spurningar um aukna samveru
foreldra og ungmenna, þátttöku í skipu-
lögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi og
mikilvægi þess að fresta að hefja neyslu
áfengis.
Fylgi ungmenni nokkrum einföldum
heillaráðum eru hverfandi líkur á því að
þau leiðist inn á braut fíkniefna.
Forseti Islands hafði frumkvæði að
forvarnadeginum en ásamt forseta-
embættinu stóðu að deginum Iþrótta-
og Ólympíusamband Islands, Ung-
mennafélag íslands, Bandalag íslenskra
skáta, Samband íslenskra sveitarfélaga,
Reykjavíkurborg og lyfjafyrirtækið
Actavis sem var styrktaraðili forvarna-
dagsins. Háskólinn í Reykjavík fór með
verkefnisstjórn.
Vinningshafar taka við
verðlaunum frá Forseta (slands,
Ólafi Ragnari Grímssyni.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 5