Skinfaxi - 01.02.2008, Side 6
UMFI stendur fyrir mörgum
og spennandi verkefnum
Að loknu viðburðaríku afmælis-
ári UMFÍ, Landsmóti í Kópa-
vogi og Unglingalandsmóti á
Hornafirði, blasir við nýtt starfs-
ár með nýjum og spennandi
verkefnum. Undirbúningur fýrir
Unglingalandsmótið í Þorláks-
höfn er í fullum gangi en það
verður að vanda haldið um
komandi verslunarmannahelgi.
Þúsundir keppenda og gesta
munu streyma þangað og eiga
góða stund saman í heilbrigðu
umhverfi. Mótið í Þorlákshöfn
verður glæsilegt í alla staði enda
er metnaður heimamanna
mikill og ljóst að umgjörðin öll
í kringum mótið verður frábær.
Akureyringar láta ekki sitt eftir
liggja en þar er undirbúningur
hafinn fyrir Landsmótið 2009.
Það mót verður merkilegt fyrir
marga hluta sakir en þá verður
öld liðin frá því að fyrsta lands-
mótið var haldið.
Önnur verkefni, sem UMFf
stendur fýrir, eiga sinn fasta
stað og má í því sambandi nefna
verkefnin Göngum um ísland
og Fjölskyldan á fjallið. Ung-
menna- og tómstundabúðirnar
að Laugum í Dalasýslu eru
reknar með miklum blóma en
um tvö þúsund nemendur munu
sækja búðirnar í vetur. Búðun-
um vex fiskur um hrygg með
hverju árinu og æ fleiri skólar
senda nemendur sína þangað til
dvalar. Verkefnið Flott án fíknar
hefur í vetur verið með spenn-
andi viðfangsefni í gangi. Hafa
m.a. framhaldsskólanemendur
komið að verkefninu og er ætlun-
in að svo verði áfram. f rúmt ár
hefur UMFf séð um framkvæmd
verkefnisins Evrópa unga fólks-
ins en það er á ábyrgð mennta-
málaráðuneytisins. Evrópa unga
fólksins er íslenska heitið á
Youth in Action, ungmenna-
áætlun Evrópusambandsins,
sem tók gildi í byrjun árs 2007.
Markmiðið með áætluninni er
að styrkja fjölbreytt verkefni
fyrir ungt fólk. EUF gefur ungu
fólki og samtökum, sem vinna
fyrir ungt fólk, möguleika á
þátttöku í ýmsum samevrópsk-
um verkefnum.
Uppsveiflan í frjálsum íþrótt-
um hjá ungu fólki hefur vakið
mikfa athygli í vetur. Frá ára-
mótum hefur hvert mótið rekið
annað í frjálsíþróttahöllinni í
Laugardal og hefur árangurinn
vakið mikla eftirtekt. Ljóst er að
uppbygging íþróttamannvirkja
víða um landið er að sanna
gildi sitt á áþreifanlegan hátt.
Uppbyggingin í tengslum við
unglingalandsmótin á þar veru-
legan hlut að máli. Fleiri ungl-
ingar eru farnir að stunda frjáls-
ar íþróttir en áður og með
bættri aðstöðu lætur árangur-
inn ekki á sér standa. Það er
gleðilegt að sjá þetta gerast og
ljóst að fjármunum, sem farið
hafa í alla uppbyggingu, hefur
verið vel varið.
Jón Kristján Sigurðsson,
ritstjóri.
Auglýst er eftir umsóknum
úr Umhverfísjóði UMFÍ
- Minningarsjóði
Pálma Gíslasonar
Tilgangur sjóðsins erað styrkja umhverfisverkefni félaga eða
einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar.
Stofnendur sjóðsins eru fjölskylda Pálma Gíslasonar, fyrrverandi
formanns UMFÍ, ásamt ungmennafélagshreyfingunni og
öðrum velunnurum.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum umsóknareyðublöðum
til skrifstofu UMFÍ, Laugavegi 170, 7 05 Reykjavík fyrir 15. maí2008.
Veittir verða þrírstyrkir: 500.000 kr., 300.000 kr. og 200.000 kr.
Fyrsta úthlutun úrsjóðnum fer fram í Fleydal
2.júlí2008, en þann dag hefði Pálmi orðið 70 ára.
Skinfaxi 1. tbl. 2008
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjóhsdóttir, formaður UMFf.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Gunnar Bender,
Hafsteinn Óskarsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Björg Jakobsdóttir, formaður, Annar R.
Möller og Sigurður Guðmundsson.
Skrifstofa UMFf/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFf,
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúiog
verkefnisstjóri forvarna,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóriSkinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Hringur Hreinsson, meðstjórnandi,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
Jóhann Tryggvason, varastjórn,
Einar Jón Geirsson, varastjórn.
Forsíðumynd:
Ungmennafélagið Fjölnir fagnaði 20 ára
afmæli á dögunum. Mikill uppgangur er
innan félagsins og félagsmönnum í ýmsum
íþróttagreinum fjölgar jafnt og þétt.
Fimleikdeildin starfar með miklum blóma
og hér sjást ungur og upprennandi stúlkur
á æfingu hjá félaginu.
6 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands