Skinfaxi - 01.02.2008, Blaðsíða 8
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að Laugum í Dalasýslu:
ÁVALLT UNNIÐ Á
JÁKVÆÐUM NÓTUM
PRÓFÍLLINN
Nafn: Anna Margrét Tómasdóttir.
Aldur: 36 ára.
Starf: Forstöðumaður Ungmenna- og
tómstundabúðanna að Laugum.
Menntun: Pædagog heitir það á dönsku,
eða uppeldis- og tómstundafræðingur.
Maki: Jorgen Nielsen.
Börn: 3 börn.
Bifreið: Nissan Terrano.
Uppáhaldsmatur: Grænmetisréttir.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn og appelsínu-
djús.
Uppáhaldsbíómyndin: Allar danskar
bíómyndir, engin meira í uppáhaldi en
önnur.
Best í heimi: Að öllum líði vel, að allir
fái jöfn tækifæri í lífinu og svo að sjálf-
sögðu fjölskyldan.
Verst í heimi: Misrétti á milli heimsálf-
anna.
Nafn: Jóhanna Ösp Einarsdóttir.
Aldur: 23 ára.
Starf: Leiðbeinandi við Ungmenna- og
tómstundabúðirnar að Laugum.
Menntun: Grunnskólapróf og langt
komin með stúdentspróf ásamt því að
vera búin að fara í húsmæðraskóla og
lýðháskóla í Danmörku.
Maki: Jább.
Börn: Nei.
Bifreið: Nissan Terrano.
Uppáhaldsmatur: Kjötbollur.
Uppáhaldsdrykkur: Kaffi.
Uppáhaldsbíómynd: Stella í orlofi.
Best í heimi: UMFÍ og íslenskt veðurfar.
Verst í heimi: Frekja og leti.
UNGMENNA- OG
TÓMSTUNDABÚÐIR
AÐLAUGUM
Um jólin árið 2005 hófst starfsemi Ung-
menna- og tómstundabúðanna að Laug-
um í Dalasýslu. Starfsemin er nú á sjö-
undu önn og allt hefur gengið að óskum.
Starfsmenn búðanna eru 8 talsins, 3 leið-
beinendur, forstöðumaður og aðstoðar-
fólk. Ungmennabúðirnar geta tekið á
móti allt að 90 unglingum í einu og
boðið er upp á þriggja manna herbergi
að mestu en þó eru nokkur 8 manna og
6 manna herbergi.
Markmiðið með Ungmenna- og tóm-
stundabúðunum er að kynna unglingun-
um heimavistarlífið eins og það var hér-
, . ,,, tt 1- t unqmenna- oq tómstundabúöír
na a arum aður. Unghngarmr iæra að
vinna saman en ekki hver á móti öðrum
og að finna það jákvæða í fari annarra.
Unnið er eftir helstu markmiðum
Ungmennafélags íslands, að velja rétta
lífsstílinn og njóta samverunnar. Ávallt
er unnið á jákvæðu nótunum, leikir,
glens og gaman eru orðin sem lýsa þess-
um búðum best. Ekki er farsímasam-
band, sjónvarp né internettenging svo
að unglingarnir verða að finna sér eitt-
hvað annað að gera en þeir eru kannski
vanir í daglegu lífi. Ekki er lagt neitt sér-
staklega upp úr hefðbundum íþróttum
heldur er reynt að fara óhefðbundnar
leiðir. Gögl var tekið inn nýtt í haust en
það er sirkusfimi. Krakkarnir gera þá
ýmsar kúnstir með áhöldum sem tekst
misjafnlega vel því að mikill vandi og
kúnst er að læra þessa tækni. Að hjóla á
hjóli sem hefur aðeins eitt hjól er heldur
ekki svo auðvelt. Eins hafa gönguferðir,
Kjarkur og Þor, leikir og sprell, skyndi-
hjálp, að vera í félagi, byggðasafn, galdr-
ar, lífsstíll og landnámsleikar verið á
stundaskránni. Eftir vikuna gefa krakk-
arnir búðunum einkunn á ákveðnu
matsblaði og undantekningarlaust er
það jákvætt sem kemur út úr þeirn
matsblöðum. Á því er hægt að sjá að
krakkarnir eru tvímælalaust mjög
ánægðir með dvölina á Laugum.
Tekið er á móti öllum nemendum,
unglingar með sérþarfir eru einnig vel-
komnir. Þó er ekki hjólastólaaðgengi
og mikið um tröppur. Einstaklingar í
hjólastól hafa þó komið í búðirnar en
þá hefur bara þurft að bera þá upp og
niður tröppurnar svo að það hefur ekki
verið nein fyrirstaða.
Byggingarnar, sem eru að Laugum,
eru þessar týpísku heimarvistarbygg-
ingar. Innangengt er í öll hús, íþrótta-
hús, matsal, heimavist og sundlaugina.
Húsakostur er stór og mikill og býður
upp á marga möguleika. Umhverfið í
kringum skólann er svo sannkölluð
náttúruparadís, að sögn Önnu
Margrétar Tómasdóttur, forstöðumanns
Ungmenna- og tómstundabúðanna.
Eftirspurnin hefur verið mikil og eins
og áður kom fram eru krakkarnir mjög
ánægðir í vikulok.
8 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands