Skinfaxi - 01.02.2008, Qupperneq 9
FLOTTÁN FÍKNAR
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ veitt viðurkenning
Ungmennafélag íslands veitti Bind-
indisfélagi Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ viðurkenningu Flott án fíknar fyrir
frumkvæði í forvarnamálum.
Það var Guðrún Snorradóttir, verk-
efnisstjóri forvarnaverkefnisins Fiott
án fíknar, sem veitti viðurkenninguna.
Ásamt viðurkenningunni var öllum
hópnum boðið í helgarferð að Laugum
í Dalasýslu.
Nemendur FG eru þeir íyrstu til að
stofna bindindisfélag og UMFl hvetur
önnur nemendafélög til að feta í
fótspor þeirra. Með viðurkenningunni
hvetur UMFÍ alla til að virða lög um
kaup og notkun á áfengi og tóbaki.
UMFÍ hyggst veita fleiri viðurkenn-
ingar í framtíðinni til þeirra framhalds-
skóla sem eru til fyrirmyndar varðandi
samkomur og skemmtanahald þar sem
áfengi er sniðgengið með öllu.
Jóhanna Margrét Hjartardóttir, verkefnisstjóri Unglingalandsmótsins í Þorlákshöfn:
Vel verður staðið að málum
og umgjörðin glæsileg
Jóhanna Margrét Hjartardóttir hef-
ur verið ráðin verkefnisstjóri fyrir
komandi 11. Unglingalandsmót
Ungmennafélags íslands sem fram
fer í Þorlákshöfn um verslunarmanna-
helgina. Alls sóttu sex einstaklingar
um stöðuna og var íþróttakennar-
inn Jóhanna Margrét Hjartardóttir
valin úr hópi umsækjenda. Hún er
búsett í Þorlákshöfn og hefur starf-
að við kennslu við grunnskólann á
staðnumfrá 1989.
Jóhanna Margrét hefur unnið mikið
með börnum og unglingum í tengslum
við vinnu sína sem kennari, þjálfari og
sem þátttakandi í
stjórnunarstarfi íþrótta-
deilda. Fiún hefur því
mikla reynslu af alls
konar stjórnunarstör-
fum og þekkir vel til
umhverfisins í Þor-
lákshöfn og nágrennis.
einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Sveitarfélagið Ölfus. Hún var m.a.
formaður menningarmálanefndar sveit-
arfélagsins á síðasta kjörtímabili. Þess
má einnig geta að hún er í stjórnunar-
námi við HR í vetur.
Jóhanna hóf störf 1. febrúar í hluta-
starfi en í sumar mun hún verða í fullu
starfi við að undirbúa Unglingalandsmót-
ið með unglingalandsmótsnefnd, fram-
kvæmdastjóra og heimafólki á sam-
bandssvæði HSK.
Jóhanna sagði í samtali við Skinfaxa
að sér litist mjög vel á starfið sem væri
um fram allt mjög spennandi. Hún sagði
að þessar vikurnar færi mesti tíminn í
skipulagningu, drög að dagskránni og
að fá styrktaraðila.
„Við getum sagt að við séum á áætlun
og kannski gott betur í öllum undirbún-
ingifyrir mótið. Við œtlum að vera tíman-
lega með alla hluti sem lúta að mótinu.
Ég er viss um að það verður vel að þessu
móti staðið og umgjörðin glœsileg, “ sagði
Jóhanna Margrét.
11.UNGLINGA
LANDSMÓT
UMFÍ
Jóhanna hefur
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 9