Skinfaxi - 01.02.2008, Síða 10
HJÖRTUR ÞÓRARINSSON, VARAFORMAÐUR FAÍA:
VAKNING MEÐAL
ELDRA FÓLKS
Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA, hefur í haust
og vetur farið víða um landið og kynnt starfsemi sína.
Að sögn Hjartar Þórarinssonar,
varaformanns FÁÍA, hefur stjórn
félagsins heimsótt yfir 40 staði á
landinu síðan árið 1999.
„Starfsemin gengur mjög vel og er unn-
ið eftir óskum þeim sem berastfrá hverj-
um stað. Vakning er meðal eldrafólks um
mikilvœgi þess að hreyfa sig og ég séfram
á blómlega starfsemi á þessu ári, “ sagði
Hjörtur. Hjörtur hefur tekið saman
ferðirnar í vetur og hér má sjá hvernig
þær hafa gengið til.
Föstudaginn 21. september
var farið til Blönduóss. Þátttakendur
voru Guðrún Nielsen, formaður FÁÍA,
og stjórnarmennirnir Soffía Stefáns-
dóttir, Ernst Backman og Hjörtur Þórar-
insson sem annaðist akstur.
Brottför var frá Reykjavík kl. 11.30.
Hádegishressing var í Borgarnesi og kom-
ið á Blönduós kl. 15.00 og sest að veiting-
um á heimili Sigursteins Guðmundsson-
ar. Ingunn María Björnsdóttir, Hanna
Kristín Jörgensen og Sigursteinn höfðu
undirbúið komu okkar. Æfingar stóðu
yfir frá kl. 16.00 til kl. 18.15. Síðan var
ekið til Reykjavíkur með viðkomu í
Staðarskála þar sem var snæddur kvöld-
verður. Komið var til Reykjavíkur kl.
22.15. Heildarakstur var 510 km.
Á æfingu mættu 14 manns frá Blöndu-
ósi og var jafnt af hvoru kyni. Æfðir voru
þrír hópdansar, m.a. Litla flugan. Því
næst var farið í spilaleik sem er boð-
ganga í fjórum liðum, hjarta, spaði, tígull
var í Grundarfjörð Id. 9.40. Æfingar
stóðu yfir frá kl. 10.30 til kl 12.30. Tekin
var góð hádegishressing. Siðan var ekið
til Ólafsvíkur. Þar fóru fram æfingar
frá kl. 14.00 til kl. 16.30. Þar var einnig
tekin góð miðdegishressing. Komið var
til Reykjavíkur kl 20.15. Heildarakstur
var 425 km.
Á æfingar mættu 18 manns í Grundar-
firði en 20 í Ólafsvík. Tengiliðir voru
Elísabet Árnadóttir í Grundarfirði og
Guðrún Tryggvadóttir og Júlíana
Magnúsdóttir í Ólafsvík.
Æfðir voru 5 hópdansar, þriggja manna
mars, Litla flugan, hægri og vinstri hönd,
Den lystige kreds og Djakokola. Þvi næst
var farið í spilaleik, sem er boðganga
í fjórum liðum, hjarta, spaði, tígull og
Iauf. Þá var boltakast með handklæðum
milli tveggja keppenda og síðan milli
fjögurra keppenda. Því næst voru léttar
æfingar með teygjum og teningakast.
Útbýtt var leiðbeiningum um þá leiki
sem voru á dagskrá ásamt dansmúsík og
lýsingum á dönsunum. Verkefnum með
léttum æfingum í sundi var einnig útbýtt.
Heimamenn þökkuðu okkur vel fyrir
komuna og væntu þess að við kæmum
sem fyrst aftur.
og lauf. Þá var boltakast með handklæð-
um milli tveggja og síðan milli fjögurra.
Því næst voru léttar æfingar, sitjandi
á stólum með píanóundirleik: Vertu
glaður..., Lóan er komin..., Út um mela
og móa... o.fl. Síðan var baunapokakast í
þrjá merkta hringi á gólfi og teninga-
kast. Að lokum var farið í tvo dansa og
sunginn kveðjusöngur.
Útbýtt var leiðbeiningum um Ieikina
sem voru á dagskrá ásamt dansmúsík og
lýsingum á dönsunum. Leiðbeiningar
um léttar æfíngar í sundi voru einnig
látnar í té. Heimamenn þökkuðu okkur
vel fyrir komuna og væntu góðs af því
sem kynnt var á æfingunni.
Laugardaginn 29. september
var haldið til Grundarfjarðar og Ólafs-
víkur. Þátttakendur voru Guðrún Niel-
sen, Ólöf Þórarinsdóttir og Hjörtur
Þórarinsson sem annaðist akstur. Brott-
för var frá Reykjavík kl. 07.00 og komið
Föstudaginn 11. janúar
var farin kynnisferð til Egilsstaða. Þátt-
takendur voru Guðrún Nielsen, Soffía
Stefánsdóttir, og Hjörtur Þórarinsson.
Flogið var frá Reykjavík til Egilsstaða.
Lagt var af stað ld. 8.00 og lent kl. 9.00.
Frá Egilsstöðum fór hópurinn í flug kl.
15.35 og lending var í Reykjavík kl. 16.35.
Katrín Gísladóttir annaðist alla mót-
töku, auglýsingar og undirbúning ásamt
formanni félagsins, Ágústu Ósk Jóns-
dóttur. Frá Seyðisfirði komu þrír félagar,
þar á meðal formaður félagsins þar, Inga
Hrefna Sveinbjarnardóttir.
Á æfingu í íþróttahúsinu frá kl. 10.00
til kl. 11.45 komu 26 manns en í Félags-
miðstöð eldri borgara að Miðvangi 22
komu yfir 30 manns.
Eftirfarandi æftngar voru á dagskrá í
íþróttahúsinu: Almennar teygjuæfingar,
boltaleikir með bolta á handklæðum,
kast úr hringstöðu, blöðrublak, hópdans-
ar, Litla flugan, þriggja manna mars o.fl.
Að loknum hádegisverði í Félagsmið-
stöðinni voru endurteknir dansar og
boccialeikurinn kynntur. Að lokum
voru skýringar á verkefnum afhentar.
Meðal verkefnanna voru dansar, boccia-
leikreglur, vatnsleikfími og fleiri leikir.
Þá fengu þátttakendur útibocciakúlur
og bocciaplatta til eignar.
Mikil ánægja var meðal þátttakenda
með þessa stuttu heimsókn.
10 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands