Skinfaxi - 01.02.2008, Page 13
KOMArtH
Líf og fjör á íþróttahátíð
eldri borgara í Austurbergi
Árleg íþróttahátíð eldri borgara var
haldin í íþróttahúsinu Austurbergi í
Breiðholti 7. janúar sl. Félag áhugafólks
um íþróttir aldraðra, FÁÍA, hefur haft
veg og vanda af þessari hátíð en þetta
var í 17. sinn sem hún fer fram. Hátíð-
inni vex fiskur um hrygg með hverju ár-
inu enda fer skilningur vaxandi á meðal
eldra fólks á gildi þess að hreyfa sig.
Á hátíðinni komu fram fjölmargir
hópar og sýndu atriði við góðar undir-
tektir. Áhorfendapallar í Austurbergi
voru þéttskipaðir og skemmti fólk sér
almennt mjög vel.
„Þessi íþróttahátíð hefur verið árviss
viðburður síðan 1987. Fyrsta hátíðin var
haldin á gervigrasvellinum í Laugardal
og var það ífyrsta og eina skiptið sem
hátíðin hefur verið haldin utandyra.
Hátíðin hefur síðan oftast verið haldin í
Austurbergi í Breiðholti. Til þessa hafa
þátttakendur komið af Stór-Reykjavík-
ursvœðinu og úr Reykjanesbœ. Viðfinn-
umfyrir vaxandi áhuga eldrafólks á
að hreyfa sig," sagði Guðrún Nielsen,
formaður Félags áhugafólks um íþróttir
aldraðra, FÁÍA, í spjalli við Skinfaxa.
Guðrún hefur verið formaður félags-
ins frá upphafi eða i alls 23 ár núna í
vor. Guðrún segir að stjórn félagsins
hafi verið með námskeið úti á lands-
byggðinni og hafi þau gefið góða raun.
„Núfer að koma að því að endurnýjun
verði í stjórninni en við sem þar erum í
dag eru öll urn áttrcett ogþaryfir, sá elsti
er 87 ára. Við þurfum aðfá nýttfólk til
starfa og vonandi á það eftir að ganga
vel, “ sagði Guðrún.
Fjölmennt á æskulýðsráðstefnu
í Grunnskólanum í Búðardal
UDN ásamt Dalabyggð og grunn-
skólum sveitarfélagsins stóð fyrir
æskulýðsráðstefnu í Grunnskólan-
um í Búðardal 20. febrúar sl.
Sigurður Guðmundsson, íþróttafull-
trúi og tómstundafræðingur í Mos-
fellsbæ, hélt fyrirlestur um samþætt-
ingu æskulýðs- og íþróttastarfs við
skólastarfið, með aðstoð Valdimars
Gunnarssonar, æskulýðsráðgjafa hjá
Reykjavíkurborg.
Mæting var frábær, um 30 manns,
og tókst fyrirlesturinn með ágætum.
Menn telja þessa hugmyndafræði
henta vel í Dalabyggð og vilja að
stefnt verði að því að byrja með einn
dag í viku strax næsta haust, þar sem
heimakstri skólabíla verði seinkað og
boðið upp á íþróttir og tómstundir
án endurgjalds, þannig að öll börn
eigi jafna möguleika á þátttöku, óháð
efnahag eða búsetu. Ef vel gengur
væri hægt að auka starfsemina að ári.
Sveitarstjóri Dalabyggðar stakk
upp á því að hefja undirbúningsvinnu
strax. Benti hann á að undirbúnings-
nefnd staðardagskrár 21 ynni að
æskulýðsmálum og gæti tekið verk-
efnið fyrir og voru ráðstefnugestir
almennt sammála því.
Þess ber að geta að allflestir sveitar-
stjórnarmenn Dalabyggðar voru á
ráðstefnunni og reikna verður með
því að þetta verkefni verði á dagskrá
næsta sveitarstjórnarfundar.
UDN vill þakka öllum þeim sem
komu að ráðstefnunni með einum
eða öðrum hætti.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 13