Skinfaxi - 01.02.2008, Síða 15
Félagsmönnum á
HSK-svæðinu fjölgar
um709ámilli ára
Öll félög innan hreyfíngarinnar verða
að skila starfsskýrslu árlega, með upplýs-
ingum um félagsmenn, iðkendur, stjórn
og lykiltölur úr reikningum. Skýrslunni
þarf að skila fyrir 15. apríl ár hvert.
Niðurstöður síðasta árs liggja nú fyrir
hjá HSK og kemur í ljós að félagsmönn-
um hefur fjölgað um 709 talsins á milli
ára eða um 5,55% og eru nú 13.481.
Árið áður voru þeir 12.772, árið 2004
var fjöldinn 11.644, árið 2003 voru þeir
samtals 10.614 og árið 2002 var heildar-
fjöldinn 9.288. Þessar upplýsingar koma
fram á heimasíðu HSK.
Iðkendum hefur einnig fjölgað jafnt
og þétt á undanförnum árum hjá HSK
en nú fækkaði þeim lítillega á milli ára,
voru samtals 9.284 en árið áður voru
þeir 9.477 talsins og hafði þá fjölgað
umtalsvert en fjöldinn fyrir þremur ár-
um var 8.484.
Til gamans má geta þess að íbúum á
sambandssvæðinu fjölgaði um 623 á síð-
asta ári eða 3,49% og eru þeir nú 18.484
talsins í sveitarfélögunum 11 í Árnes- og
Rangárvallasýslum. Það skemmtilega er
að íbúum fjölgaði í öllum sveitarfélög-
unum á sambandssvæðinu á sfðasta ári
og það hefur ekki gerst í áraraðir. Hins
vegar fækkar í öðrum sveitarfélögum á
Suðurlandi, þ.e. á svæði USVS og ÍBV.
10 stærstu aðildarfélög HSK
voru á síðasta ári eftirtalin:
1. Umf. Selfoss 2.412 félagsmenn
2. íþróttafél. Hamar 994 félagsmenn
3. Iþróttafél. Dímon 562 félagsmenn
4. Hestamannaf. Geysir 487 félagsmenn
5. Umf. Þór 475 félagsmenn
6. Knattspyrnuf. Ægir 436 félagsmenn
7. Hestam.fél. Sleipnir 387 félagsmenn
8. Umf. Hekla 333 félagsmenn
8. Umf. Hrunamanna 333 félagsmenn
10. Umf. Laugdæla 306 félagsmenn
Flestir iðkendur samkvæmt
innsendum starfsskýrslum:
1. Umf. Selfoss 1.601 iðkendur
2. Iþróttafélagið Hamar 747 iðkendur
3. íþróttafélagið Dímon 685 iðkendur
4. Hestamannafél. Geysir 451 iðkendur
5. Umf. Hrunamanna 390 iðkendur
6. Hestamannafél. Sleipnir 387 iðkendur
7. Golfkl. Þorlákshafnar 300 iðkendur
8. íþróttafélagið Gnýr 279 iðkendur
9. Hestamannafél. Smári 265 iðkendur
10. Umf. Þór 251 iðkendur
Eins og sést á þessari upptalningu geta
iðkendur verið fleiri en félagsmenn. I
þeim tilvikum stunda margir félagsmenn
fleiri en eina grein innan félagsins og
telja því tvöfalt og jafnvel oftar ef viðko-
mandi stundar margar greinar.
GLITNIR
glitnir
Haraldur endurkjörinn formaður Vöku
Aðalfundur Umf. Vöku var haldinn í
Þjórsárveri 2. janúar sl. og mættu um 20
félagar á fundinn. Haraldur Einarsson,
formaður, og formenn allra nefnda lásu
upp skýrslur sínar. Hallfríður Ósk Aðal-
steinsdóttir, gjaldkeri, gerði grein fyrir
reikningum.
Veittar voru ýmsar viðurkenningar.
Bikar fyrir besta afrek skv. unglingastiga-
töflu hlaut Arnar Einarsson og bikar
fyrir besta afrek skv. alþjóðastigatöflu
hlaut Fanney Ólafsdóttir á Hurðarbaki.
íþróttamaður ársins var valinn Haraldur
Einarsson á Urriðafossi fyrir góða
ástundun og árangur í frjálsum íþrótt-
um á árinu. Félagsmálabikarinn hlaut
Eiríkur K. Eiríksson frá Gafli fyrir
áratuga störf í þágu félagsins.
Stjórn félagsins var endurkjörin en
hana skipa Haraldur Einarsson á
Urriðafossi, formaður, Hallfríður Ósk
Aðalsteinsdóttir, Lyngholti, gjaldkeri,
og Helga Björg Helgadóttir, Súluholti
I, ritari. Varastjórn skipa þau Laufey
Einarsdóttir, Egilsstaðakoti, Oddný
Ása Ingjaldsdóttir, Ferjunesi, og Sig-
mar Örn Aðalsteinsson, Jaðarkoti.
Talsverðar umræður urðu undir
liðnum önnur mál. Fram kom að sveit-
arstjórn ætti að leggja meiri áherslu
á íþrótta- og æskulýðsmál og styrkja
ungmennafélögin í Flóahreppi í
þeirra góða starfi. Rætt var um fram-
tíð félagsins frá ýmsum sjónarhornum,
t.d. samstarf við önnur félög og bygg-
ingu íþróttahúss.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 15