Skinfaxi - 01.02.2008, Blaðsíða 20
Sveitarfélagið Hornafjöröur gerir
nýjan styrktarsamning við Umf. Sindra
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur gert
nýjan þriggja ára styrktarsamning við
Ungmennafélagið Sindra og voru samn-
ingar þar að lútandi undirritaðir í janúar
sl. Með því eykur sveitarfélagið umtals-
vert við stuðning sinn við félagið. Mark-
miðið er að fylgja sem best eftir mikilli
uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í
sveitarfélaginu. Samningurinn byggir á
fyrri samningum sem þessir aðilar hafa
gert sín á milli en hinn nýi leggur áherslu
á að Sindri geti eflt enn frekar æskulýðs-
starf á sínum vegum, þróað íþróttavið-
burði, eflt jaðaríþróttir, tekið upp mark-
visst samstarf við önnur félög á svæðinu
og að Sindri móti sér forvarna- og lýð-
heilsustefhu og verði leiðandi í þeim mála-
flokki í sveitarfélaginu.
Fjögur erindi voru flutt af þessu tilefni.
Matthildur Ásmundardóttir, formaður
æskulýðs- og tómstundaráðs, sagði frá
hlutverki og starfi ráðsins á yfirstand-
andi kjörtímabili. Hún lagði áherslu á að
markmiðið væri að tryggja sem mesta ijöl-
breytni í íþrótta- og tómstundastarfi. Þá
íjallaði hún um mikilvægi hreyfingar fyrir
alla aldurshópa. I því sambandi ræddi
hún um brýna þörf á að fólk á miðjum
aldri, þó sérstaklega karlmenn, hreyfðu
sig meira. Hún sagði að nýr frjálsíþrótta-
völlur hefði sannað gildi sitt í því að
margir íbúar noti hann til hreyfingar.
I kjölfarið ræddi Ásgrímur Ingólfsson,
formaður Sindra, um hlutverk Sindra í
samfélaginu. Hann hóf mál sitt á að ræða
um rekstur og starfsemi Sindra sem að
nær öllu leyti er byggð á sjálfboðavinnu
og að félagið geti aldrei orðið stærra en
fólkið vill hverju sinni. Árangurinn
byggist á þátttöku foreldra og annarra
sem áhuga hafa á að efla líkamlegan og
andlegan þroska barna og fullorðinna.
Ásgrímur sagði jafnframt að eitt mikil-
vægasta hlutverk ungmennafélaga væri
að efla samkennd og vináttu meðal okk-
ar allra og nefndi framkvæmd unglinga-
landsmótanna sem gott dæmi.
Arna Ósk Harðardóttir fjallaði um
þátttöku fjölskyldunnar í íþróttastarfi og
lagði áherslu á mikilvægi þess að for-
eldrar styddu börnin sín alla leið. Mikil-
vægt væri að hlúa jafn vel að unglingum
og börnum. Stuðningur foreldra væri
off mestur framan af, þegar krakkarnir
væru að hefja þátttöku sína í skipulögðu
íþróttastarfi, en dvínaði mikið þegar þau
yxu úr grasi. Hún taldi að unglingarnir
vildu gjarnan að foreldrarnir fylgdust
með þeim í keppni og æfingum - þrátt
fyrir að þau segðu oft annað. Þá væri
að minnsta kosti hægt að ræða um
frammistöðuna þegar heim væri komið.
Að endingu flutti Jóhann Bergur
Kiesel málin út frá sjónarhorni ung-
Matthildur
Ásmundardóttir,
formaður æsku-
lýðs- og tóm-
stundaráðs, og
Ásgrímur Ingólfs-
son, formaður
Sindra, undir-
rita samninginn.
(Mynd: HÞV)
menna. Sagðist hann hafa rætt við all-
marga félaga sína undanfarna daga sem
öll lykju upp einu máli um að mikið
væri að gerast á sviði íþrótta, bæði hvað
varðaði sköpun aðstöðu og starfsemi.
Hins vegar sagðist hann hafa áhyggjur
af félagslífi ungmenna á staðnum sem
ráða þyrfti bót á. Ræddi hann einnig
um Þrykkjuna og að meta þyrfti hvort
breytinga væri þörf, til að auka aðdrátt-
arafl hennar. Hann greindi frá starfi
Nemendafélags FAS sent væri með líf-
legra móti þetta árið.
ÖSSUR
20 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags [slands