Skinfaxi - 01.02.2008, Blaðsíða 26
)
UR
ARANGUR
á fjölmennasta frjálsíþróttamóti innanhúss frá upphafi
Helga Baigrét Þorsteii
í keppni í grindahlaupj
Helgina 19.-20. janúar sl. fóru fram
tvö stórmót í frjálsíþróttum. Annars
vegar var um að ræða Stórmót ÍR og
hins vegar Reykjavík International
sem FRI og Frjálsíþróttaráð Reykja-
víkur stóðu sameiginlega að eins og
undanfarin tvö ár.
Á laugardag og sunnudag fór Stórmót
ÍR fram í Laugardalshöllinni og var met-
þátttaka í mótinu en alls tóku 673 kepp-
endur frá 25 félögum og samböndum
þátt í mótinu, auk fimm keppenda frá
Færeyjum. Þetta er fjölmennasta innan-
hússmót í frjálsíþróttum sem fram hefur
farið á íslandi frá upphafi. Mótið tókst
vel en það var frjálsíþróttadeild ÍR sem
stóð fyrir því.
Á mótinu bætti Helga Margrét Þor-
steinsdóttir, Ármanni, met í tveimur
aldursflokkum í kúluvarpi þegar hún
varpaði kúlunni 13,07 m. Hún bætti
eigið stúlknamet (17-18 ára) um 14 cm
og í ungkvennaflokki 19-20 ára um 2 cm.
Þá bætti Bjarki Gíslason drengjamet
(17-18 ára) í stangarstökki um 9 cm
þegar hann stökk yfir 4,40 m og jafnaði
um leið unglingametið (19-20 ára).
Heildarúrslit frá Stórmóti ÍR má
finna í mótaforriti FRÍ á www.fri.is.
Á sunnudaginn fór svo fram alþjóð-
legt boðsmót, Reykjavík International.
Tókst mótið vel í alla staði og náðist
góður árangur í mörgum greinum. Tíu
erlendir keppendur tóku þátt í mótinu
ásamt öllu besta frjálsíþróttafólki lands-
ins.
Tvö aldursflokkamet féllu á mótinu.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Ármanni,
bætti stúlknametið í 60 m grindahlaupi
um 2/100 úr sek., en hún sigraði í hlaup-
inu á 8,90 sek. Þá bætti Aníta Hinriks-
dóttir eigið stelpnamet í 800 m hlaupi
um tæplega 5 sek. Hún sigraði í 800 m
hlaupi 14 ára og yngri á 2:27,75 mín. en
Aníta verður 12 ára á þessu ári.
Sigurvegarar og helstu árangar
á Reykjavík International 2008:
60 m hlanp karla: Henrik Johnsen, Noregi, sigraði á 6,93
sek. Óli Tómas Freysson, FH, varð í 4. sæti og fyrstur
íslensku keppendanna, á persónulegu meti, 7,03 sek.
60 m hlaup kvenna: Folake Sekinat Akinyemi, Noregi,
sigraði á 7,57 sek. Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Ármanni,
varð í 4. sæti og fyrst íslensku keppendanna, á 7,89 sek.
200 m hlaup karla: Sveinn Elías Elíasson, Fjölni, sigraði á
22,02 sek. Sveinn var 22/100 úr sek. frá íslandsmeti sínu en
það er 21,80 sek. frá sl. ári.
200 m hlaup kventia: Folake Sekinat Akinyemi, Noregi,
sigraði á 24,66 sek. Silja Úlfarsdóttir, FH, varð í 2. sæti á
24,95 sek.
400 m hlaup kvenna: Herdís Helga Arnalds sigraði á
persónulegu meti, 58,32 sek.
400 m hlaup karla: Tormod Hjortnæs Larsen, Noregi,
sigraði á 48,74 sek. Brynjar Gunnarsson, ÍR, varð í 2. sæti á
51,42 sek.
800 m hlaup karla: Bjartmar Örnuson, UFA, sigraði á
1:59,40 mín.
800 m hlaup pilta: Rúni Seloy, Færeyjum, sigraði á 2:10,56
mín. Kristján Flóki Finnbogason, FH, varð í 2. sæti á
2:19,21 mín.
Miluhlaup kvenna: Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, sigraði
á 5:03,41 mín.
Míluhlaup karla: Björn Margeirsson sigraði á 4:13,28 mín.
sem er aðeins 41/100 úr sek. frá íslandsmetinu í þeirri
grein.
Langstökk karla: Þorsteinn Ingvarsson, HSÞ, sigraði, stökk
7,17 m.
Langstökk kventta: Oda Utsi Onstad, Noregi, sigraði, stökk
5,97 m. Hafdís Sigurðardóttir, HSÞ, varð í 2. sæti, stökk
5,91 m, og Jóhanna Ingadóttir, ÍR, varð í 3. sæti, stökk 5,84
m. Bæði Hafdís og Jóhanna bættu sinn besta árangur í
langstökki.
Hástökk kvenna: Guðrún María Pétursdóttir, Breiðabliki,
sigraði, stökk 1,70 m.
Kúluvarp karla: Óðinn Björn Þorsteinsson, FH, sigraði,
varpaði 18,35 m.
Þau Folake Akinyemi, Noregi, og Óðinn Björn Þorsteins-
son, FH, fengu viðurkenningu fyrir besta afrek mótsins í
kvenna- og karlaflokki á mótinu, Folake fyrir 7,57 sek. í 60
m hlaupi og Óðinn Björn fyrir 18,35 m i kúluvarpi.
26 SKINFAXI - tímaril Ungmennafélags íslands