Skinfaxi - 01.02.2008, Side 28
FRAMHALDSSKÓLANEMENDUR í HELGARFERÐ FLOTT ÁN FÍKNAR
Ungmennin skemmtu
sér frábærlega
Ungmennafélag íslands, sem
stendur fyrir forvarnaverkefninu
Flott án fíknar, stóð fyrir helgar-
ferð að Laugum í Sælingsdal helg-
ina 18.-20. janúarsl. Helsta mark-
mið verkefnisins er að vinna að
því að fólk virði áfengis- og
tóbakslögin.
Öllum framhaldsskólanemum, sem
sniðganga tóbak og áfengi, stóð til
boða að koma með. Þátttakendur
voru tuttugu og komu þeir frá Fjöl-
brautaskólanum á Akranesi, Fram-
haldsskólanum að Laugum og Fjöl-
brautaskólanum í Garðabæ en þar
hafa nemendur stofnað með sér bind-
indisfélag. Ferðin gekk í alla staði
mjög vel og skemmtu ungmennin sér
frábærlega. Guðrún Snorradóttir,
verkefnisstjóri, og Jörgen Nielsen,
leiðbeinandi á Laugum, skipulögðu
helgina þar sem farið var í leiki, hóp-
efli, umræður og verkefnavinnu.
í lok ferðarinnar svöruðu þátttak-
endur nokkrum spurningum um helg-
ina. Líka var spurt um hvernig þau
teldu að væri best að fá ungmenni til
að sniðganga áfengi. Það kom fram í
svörum þeirra að félagsstarfsemi eins
og BFFG (Bindindisfélag Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ) og Flott án fíknar
væri góður vettvangur og eins ef hægt
væri að fá einingu í framhaldsskólun-
um til að starfa í slíku félagi.
Einnig var spurt: Hvað mundi það
gera fyrir þig og samfélagið ef enginn
yngri en 20 ára notaði áfengi. Hér
eru dæmi um svör:
„Ég held að það mundi verða allt
miklu rólegra og fólk mundi geta
skemmt sér á löglegan hátt, það
mundi líka vera minna vesen.“
„Kannski yrði hægt að minnka það
að ungt fólk sé að fara í meðferðir í
hrönnum og meiri peningur sem hægt
væri að setja í aðra hluti á sviði heil-
brigðisþjónustu, annað en SÁÁ sem
er auðvitað að gera góða hluti.“
„Það yrði mun léttara að hittast og
það mundi vera minna um ólæti.“
„Það mundi gera mig glaðan. Það
væri minna um eiturlyf, þjófnaði og
nauðganir, mundi ég telja.“
Það er markmið UMFÍ að fá nem-
endur í framhaldsskólum landsins til
samstarfs við verkefnið en fram að
þessu hafa nemendur í grunnskólum
verið virkir í starfinu. Til stendur að
fara í fleiri ferðir og hafa Þingeyingar
lýst yfir áhuga á að bjóða næst heim.
Þau ungmenni sem hafa áhuga geta
skráð sig á póstlista hjá Ungmenna-
félagi Islands, á netfangið flottanfiknar
@flottanfiknar.is og fá þá send tilboð um
næstu ferð og annað sem er á dagskrá.
28 SKINFAXI - tfmarit Ungmennafélags (slands