Skinfaxi - 01.02.2008, Side 37
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
88. ársþing UMSS:
Sigurjón Þórðarson einróma
kjörinn formaður UMSS
88. ársþing UMSS var haldið á Sauðár-
króki föstudaginn 29. febrúar síðastlið-
inn. Þingið var f)ölmennt og gekk vel
fyrir sig í alla staði. Hringur Hreinsson,
stjórnarmaður UMFÍ, flutti ávarp ásamt
öðrum gestum. Guðmundur Þór Guð-
mundsson lét af störfum sem formaður
og voru honum þökkuð góð störf ásamt
öðrum stjórnarmönnum sem gengu úr
stjórn.
Sigurjón Þórðarson var einróma kjör-
inn formaður UMSS. Aðrir í stjórn eru
Jakob Frímann Þorsteinsson, Líney
Hjálmarsdóttir, Páll Friðriksson og Sig-
mundur Jóhannesson.
Sigurjón Þórðar-
son, nýkjörinn
formaður UMSS.
Sveinbjörg
íþróttamaður
Bolungarvíkur
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir var útnefnd
íþróttamaður Bolungarvíkur fyrir árið
2007 í hófi í Einarshúsi. Sveinbjörg, sem
æfir með íþróttafélaginu ívari, hreppti
tvenn verðlaun á sumarleikum Special
Olympics sem fóru fram í Shanghai í
Kína sl. haust. Sveinbjörg keppti í boccia
með stórgóðum árangri. Fyrst keppti
hún í einstaklingskeppni þar sem hún
varð í 3. sæti og þá keppti hún í tví-
menningi (tveir í liði) og þar varð hún
ásamt meðspilara sínum í 5. sæti. Að
lokum keppti hún í liðakeppni og þar
hlaut Sveinbjörg gullpening ásamt liðs-
félögum sínum. Sveinbjörg stundar nám
á afreksbraut Menntaskólans á ísafirði
en er búsett í Bolungarvík. Hún hefur
iðkað boccia í yfir áratug.
Fjórir voru tilnefndir í ár auk Svein-
bjargar. Voru það Bragi Björgmunds-
son, Hestamannafélaginu Gný, Gunnar
Már Elíasson, knattspyrnudeild UMFB,
og Rögnvaldur Magnússon, Golfklúbbi
Bolungarvíkur.
Kjör íþróttamanns og
íþróttakonu Mosfellsbæjar
Kjör íþróttamanns og íþróttakonu Mos-
fellsbæjar árið 2007 fór fram í Hlégarði
sunnudaginn 20. janúar. Fyrir valinu
urðu þau Nína Björk Geirsdóttir, golf-
íþróttakona úr Golfklúbbnum Kili, og
Halldór Guðjónsson, hestaíþróttamaður
úr Hestamannafélaginu Herði.
Nína sýndi frábæran árangur á sl. ári
og varð meðal annars Islandsmeistari
kvenna í golfi ásamt því að verða íslands-
meistari í sveitakeppni með Golfldúbbn-
um Kili. Einnig var Nína kosin kvenkylf-
ingur ársins af Golfsambandi Islands.
Halldór sýndi góðan árangur í sinni
grein og varð meðal annars íslands-
meistari í 250 m skeiði á Islandsmótinu
á Dalvík. Einnig fékk Halldór efstu reið-
kennaraverðlaun á reiðkennarabraut við
Háskólann á Hólum.
Fjórir fulltrúar voru
í kjöri til íþróttakonu
Mosfellsbæjar og sex
fulltrúar í kjöri til
íþróttamanns Mosfellsbæjar, í báðum
tilvikum frá þremur félögum.
Heiðursgestur samkomunnar í Hlé-
garði var Helga Guðjónsdóttir, nýr for-
maður Ungmennafélags Islands. Ásamt
því að heiðra íþróttamann og -konu
Mosfellsbæjar voru veitar viðurkenn-
ingar fyrir íslandsmeistara-, bikar-
meistara- og landsmótsmeistaratitla.
Einnig voru veittar viðurkenningar fyrir
þátttöku í æfingum eða keppni með lands-
liði og fyrir efnilegasta dreng og stúlku
yngri en 16 ára í hverri íþróttagrein.
Rakel Dögg handboltakona
skaraði fram úr í Garðabæ
Rakel Dögg Bragadóttir, handknattleiks-
kona, var kosin íþróttamaður Garðabæjar
2007 við hátíðlega athöfn í Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar.
Rakel Dögg 21 árs gömul og varð
Islands- og deildarmeistari með meist-
araflokki Stjörnunnar vorið 2007. Rakel
Dögg var valin handboltakona ársins
2007 af HSl. Hún hefur frá unga aldri
spilað handbolta með Stjörnunni og hef-
ur auk þess þjálfað yngri flokka félags-
ins árum saman með góðum árangri.
I umsögn íþrótta- og tómstundaráðs
segir: „Rakel Dögg er ein besta hand-
boltakona á landinu, hún er fyrirliði
og lykilmanneskja í landsliðinu og hjá
sínu félagsliði. Rakel Dögg átti stóran
þátt í því að kvennalandsliðið náði þeim
áfanga að fara í umspil til að spila á stór-
móti, þ.e. Evrópumóti kvenna, á árinu
2007. Rakel Dögg er reglusöm og mjög
góð fyrirmynd fyrir yngri leikmenn."
Um 300 íþróttamenn og fjölskyldur
þeirra voru við athöfnina þar sem veitt-
ar voru um 250 viður-
kenningar til íþrótta-
manna á öllum aldri
fyrir glæsileg afrek á
síðasta ári.
Einnig voru veitt
fern verðlaun fyrir
almenningsíþróttir.
Stefán Skaftason og Katla Ólafsdótt-
ir voru verðlaunahafar í röðum eldri
borgara og þau Guðrún Mikaelsdóttir
og Sigurkarl Stefánsson voru verðlauna-
hafar í röðum almenningsíþróttadeildar
Stjörnunnar.
Fyrir framlag til æskulýðsstarfa voru
verðlaunuð þau Sigrún Dan Róberts-
dóttir fyrir störf fyrir fimleikadeild
Stjörnunnar, Áslaug Ólafsdóttir fyrir
framlag sitt til söngmála í Garðabæ og
Hörður Már Harðarson fyrir framlag
sitt til Hjálparsveitar skáta í Garðabæ.
Sérstök heiðursverðlaun fékk Sveinn
Áki Lúðvíksson fýrir framlag sitt til
íþrótta fatlaðra.
UMSE endurnýjar styrktarsamning við Bústólpa
Nýlega var undirritaður samningur
milli UMSE og Bústólpa ehf. Þar
kemur fram að á árunum 2008, 2009
og 2010 verður Bústólpi aðalstyrktar-
aðili UMSE. Bústólpi hefur verið
aðalstyrktaraðili UMSE síðustu 6 ár.
Bústólpi framleiðir fóður fýrir naut-
gripi, sauðfé, svín, hross og varp-, og
alifugla.
Auk þess hefur fyrirtækið á boð-
stólum úrvai af sáð-
vöru og áburði í litl-
um sem stórum
pakkningum á hag-
stæðu verði. Bústólpi
selur einnig fóður-
síló og aðrar vörur
tengdar fóðrun og jarðrækt og er
umboðsaðili Áburðarverksmiðjunnar
á Norðausturlandi.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 37