Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 1
SlÓmRNNRBLRÐIÐ U í K 1N S U R ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FIS KIM AN N AS AM B A N D ÍSLANDS II. órg., 6.-7. tbl. Reykjavík, apríl 1940 Hvert stefnir? Það hefir verið og er mikið áhyggjuefni meðal sjómanna og raunar allra hugsandi landsmanna, að vita skipastól landsins — annað heimili sjómannanna — ryðga og fúna niður, án þess að nokkuð verulegt sé geii; til að viðhalda þeim skipastól, sem fyrir er, hvað þá heldur að endurnýja hann sem skyldi. Þó að ástand þetta sé alvarlegt vegna at- vinnu og aðbúnaðar sjómanna, er það þó ennþá alvarlegra vegna þjóðfélagsheildarinn- ar hvernig þessum málum er skipað. Margur er hugsandi út af því, hvað veldur þessu öfugstreymi hér á landi. Norðmenn hafa á undanförnum árum lagt mikið kapp á að endurnýja og auka fiskiflota sinn og Englendingar hafa að miklu leyti endurnýj-* að sinn fiskiflota á síðastliðnum 10 árum. — Þessar þjóðir hafa lagt ógrynni fjár til styrktar þessu viðreisnarstarfi og hafa því sjáanlega gert sér ljóst hvert stefndi, ef kyrr- staða eða hnignun ætti sér stað- Nú er það vitað, að velferð og velmegun okkar íjslendinga byggist á því, að útflutn- ingsverzlun landsins vegi meira en upp á móti þörfinni fyrir aðfluttar vörur og annari gjaldeyrisþörf landsmanna. Og þar sem sjáv- arútvegurinn skapar mestan hluta af þeim gjaldeyri, er landsmenn (gjaldeyrisnefnd) ráða yfir, er það hreinasta glapræði að hefta framtak þeirra manna, sem vilja og hafa möguleika til þess að endurnýja og viðhalda skipastól landsins. Tafla sú, er birt er hér á eftir, sýnir út- flutningsverzlun landsmanna síðastliðin 10 ár: Sjávarafurðir Annar útfl. Heildar útfi■ Ártal 01 10 þús. kr. 01 10 þús. kr. þús. kr. 1930 88.5 58.502 11.5 7.602 66.104 1931 89.8 43.689 10.2 4.962 48.651 1932 89.8 43 689 10.2 4.962 48.651 1933 90.8 47.014 9.2 4.819 51.833 1934 90.0 43.069 10.0 4.785 47.85? 1935 86.2 41.180 13.8 6.592 47.772 1936 84.1 41.759 15.9 7.883 49.642 1937 82.0 48.370 18.0 10.618 58.988 1938 93.8 48.519 6.2 9.234 57.753 1939 93.2 59.349 6.8 10.305 69.654 Þessi tafla sýnir betur en nokkuð annað hvílíkur meginþáttur sjávarútvegurinn er í atvinnu- og viðskiptalífi þjóðarinnar, og þá jafnframt hvílíkur voði er á ferðinni fyrir land og lýð, ef ekki er stöðugt verið vel á verði með það, að viðhalda og endurbæta þau framleiðslutæki, sem allt þetta mikla verð- mæti skapar. Ef þeir aðiljar, sem mestu ráða í landinu um það, til hvers þeim erlenda gjaldeyri, sem þjóðin hefir ráð á, er varið, hefðu haft nægÞ legan skilning á nauðsyn þessa máls, þá hefði mátt ætla að eitthvað hefði náðst inn í landið af góðum — og eftir atvikum — ekki mjög dýrum fiskiskipum á síðastliðnu hausti. En þessi skilningur var ekki fyrir hendi og þess vegna hafa engin fiskiskip verið flutt inn. Það er nú að vona, að gipta íslands verði það drjúg nú, eins og svo oft áður, að þetta skilningsleysi og skammsýni hafi ekki stóral- varlegar afleiðingar í för með sér fyrir land og lýð. — En stefnunni verður að breyta, ef allt á að fara vel í þessu efni í framtíðinni. —

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.