Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 2
Frá Akranesi Haraldur Böðvarsson segir frá fiskiveiðum frá Akranesi á opnum bátum eftir aldamðtin síðustu, ásamt mörga fleiru. Allir, sem vettlingi gátu valdið fóru til sjós á skúturnar, en hinir, sem eftir voru heima, voru aðallega eldri menn og ungling- ar og svo heimilisfeður, sem ekki áttu heim- an gengt. Á vetrarvertíðinni 1901 réri ég (þá 12 ára gamall) nokkra róðra á sexmannafari, sem hét „Sigurfari“, úr Bræðrapartsvör. Formað- ur og eigandi skipsins var Sigurður Jóhann- esson þá á Bræðraparti; hásetar voru: Ólafur Jóhannesson, samastaðar; Hannes Ólafsson í Háteig, Sigurður Sigurðsson, Nýjabæ á Innnesi, Hallmundur í Öskjuholti og ég, sem þessar línur rita. Þetta mun hafa verið í apríl og maí. Við komum til skips kl. 4—5 á morgnana hver með sína skrínu, til að hafa undir hrognkelsaræksni og svo matarbita til dagsins, en formaðurinn sá um að hafa drykkjarvatn á kútnum (10 lítra kút). Þegar allir voru komnir til skips, voru hlunnar bornir á sinn stað og sett niður í Jesú nafni og allir signdu sig. Þegar fjara var, fórum við ekki í skinnbrækurnar, fyrr en við vorum búnir að setja skipið niður að sjó, en annars fórum við í þær áður en byrj- að var að setja. Þegar skipið var komið á flot og búið að snúa við, lásu allir í hljóði sjóferðabæn og Faðir vor o .s. frv. Nú var róið út að grásleppunetunum og vitjað um 3—5 trossur, því innýflin úr hrognkelsunum voru notuð til beitu. Að því búnu var róið eða siglt út á fiskimiðin, ýmist í „Forina“, „Sviðið“ eða út á Hraun. Þegar á miðin var komið, -var lagst við dreka eða stjóra og menn fóru að hafa til færin og beita. Það voru notaðir stórir önglar og beitt á að gizka hálfu kílógr. af innýflum á hvern öngul, og bundið utan um með seglgarni, til þess að það tylldi sem bezt á önglinum. Færin voru látin síga þangað til kenndi botns, síðan tekið grunnmál og byrjað að keipa. Alltaf var talsverður metnaður um að vera fyrstur að ná í fisk. En aflinn var alltaf mjög tregur. Við fengum 4—10 í hlut, en þetta voru væn- ir þorskar. Það var setið undir færum allan daginn og kippt til öðru hvoru og í land komum við venjulega um kl. 6 á kvöldin. Þá var fiskurinn borinn á land í skrínunum á bakinu, skipið sett upp fyrir flæðarmál og fiskinum síðan skipt milli manna og fór svo hver heim til sín, með sinn hlut. Þegar heim var komið með aflann, var gert að. Fiskur- inn flattur og saltaður. Sundmagi skorinn úr hryggjum, hausarnir þvegnir og breiddir á grjót eða grindur, til herzlu; lifur, kútmagar og hrogn oft notað til matar samdægurs, slorið látið í þró til áburðar og hryggirnir þurrkaðir til eldiviðar og þannig fór ekkert til spillis. Á vorin og haustin var stundum notuð ýsu- lóð, sem kallað var þá, og beitt fjörumaðki eða krækling og öðru, og aflinn var oft rýr, þó lóð væru notuð. Mér er minnisstæð ein sjóferð sem ég fór haustið 1903 á sexmanna- farinu „Dagmar“, með ýsulóð, beitta fjöru- maðki. Við fengum 14 fiska á skip. Þegar VÍKINGUE 2

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.