Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 19
Frá síðasta Sjómannadags- fagnaði í Reykjavík. — Lúðrasveit leikur »ís/ands hrafnistumenn« fyrir mann- fjöldann. Hér er vísupartur eftir Maríus Ólafsson. Hörð er sóknin hetjudáða háð í kring- um ættarströnd, þegar Vetur vopnar báða Vind og Ægi sér við hönd. Þeir, sem stríðið þarna heyja, þúsundir um fiskimið, hetjur lifa og hetjur deyja, Hvergi á ísland betra lið. í sumum kvæðunum er líka talað um frið og fegurð hafsins, t. d. í þessum línum eftir Sig. Baldvinsson: Og hafið á seiðandi fegurð og frelsi og friðsæla töfra og bragandi mál, sem leysa vorn anda úr hömlum og helsi og hrífa til flugs hverja vakandi sál. Enn aðrir yrkja í gamni og alvöru um sjó- mannalífið, eins og Jónas Jónsson: Það er sjómanna æðsta yndi að afla mikils og lifa glatt, aka seglunum eftir vindi, elska konur og tala satt, minnast þess, sem að lék í lyndi, láta gnoðin sigla hratt. Annars eru flest kvæðin um alvöru sjó- mannalífsins og um „starfsins menn sem starfið virða“ eins og Jak. Jóh. Smári kemst að orði í sínu kvæði. Þetta eru aðeins sundur- laus sýnishorn úr Sjómannaljóðunum, en þau hefjast á kvæðinu eftir Örn Arnarson, er hann byrjar svo: íslands Hrafnistumenn lifðu tímamót tvenn, þó að töf yrði á framsóknarleið, eftir súðbyrðings för kom hinn seglprúði knör, eftir seglskipið vélknúin skeið. En þótt tækjum sé breytt, þá er eðlið samt eitt, eins og ætlunarverkið, er sjómannsins beið. Þessi kvæði verða alveg sérstæð á bóka- markaðinum, enda munu margir hafa löngun til að eignast þau. 19 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.