Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Blaðsíða 28
Þessi mynd er af Matkúsi Bjarna- syni skólastjðra, er hann var 30 ára gamall. seti á „Fanney“, er líklega hefir verið fyrsta þilskipið sem íslendingar eignuðust og gekk til fiskiveiða frá Suðurlandi. Um þetta leyti var á Prestaskólanum í Reykjavík, afburða reikningsmaður, er talið var að hefði af sjálfsdáðum numið nokkuð í stýrimannafræði. Það var Eiríkur Briem. Til hans leitaði nú Markús í erfiðleikum sínum. Var það honum til hinnar mestu gæfu síðar. Ekki aðeins fyrir það, að hjá honum gat Mark- ús svalað fróðleiksþorsta sínum hvað stýri- mannafræðina snerti, heldur einnig og ef til vill öllu fremur, að þar kynntist hann mennt- uðu prúðmenni, er hafði djúptæk áhrif á skap- gerð Markúsar, er honum entist æfilangt og urðu yfirsterkari ruddamennskunni, sem þá var víðast ríkjandi meðal sjómanna. Hinn 30. júlí 1873 gekk Markús undir próf í stýrimannafræði að loknu námi hjá Eiríki Briem. Prófdómendurnir voru 2 danskir sjó- liðsforingjar af varðskipinu „Fylla“. Stóðst hann prófið með prýði og mun það hafa sam- svarað minna stýrimannaprófinu við Stýri- mannaskólann í Reykjavík, eins og það var um síðustu aldamótin. Prófið veitti engin réttindi, því engin lög voru þá til á landi voru um þessi efni, enda lítið um haffærar fleytur í eigu landsmanna. í Danmörku veitti það heldur ekki rétt til skipstjórnar né stýrimennsku. Það var því ekki til þess að ná í aukin réttindi til VÍKINGUR skipstjórnar að Markús hafði lært, heldur af fróðleikslöngun og menntunar. Sama árið sigldi Markús til Danmerkur og lærði seglasaum í Faaborg á Fjóni og naut til þess lítilsháttar styrks frá útgerðarmönnum „Fanneyjar”. Að því námi loknu kom hann heim og tók við skipstjórn á „Reykjavík", annari fiskiskútunni, er Geir Zoega eignaðist. Stundaði hann svo skipstjórn á sumrin og seglasaum að vetrinum. Sennilegt tel ég að hann hafi jafnframt haft pilta í tímum við kennslu í stýrimannafræðum einnig, en um það hefi ég ekki getað aflað áreiðanlegra heimilda. Árið 1880 sigldi Markús aftur til Danmerk. ur og gekk á stýrimannaskóla þar og lauk hinu meira stýrimannaprófi að 11 mánuðum liðnum. Jafnframt aflaði hann sér skólalærdóms í far- mannalögum, verzlunarfræði og vélfræði. í þessari utanferð kyntist hann ýmsu fleiru, er snertir hag sjómanna, þ. á. m. vitamálum. Hafði hann áður minnst á þörfina fyrir vita hér á landi, en þar sem annars staðar átti hann við þekkingarleysi og skilningsskort að stríða og fékk litlu áorkað. Fyrsti vitinn sem reistur var á íslandi, — gamli Reykjanesvitinn, var þá reyndar upp kominn — var reistur árið 1879. — En oft mun Markús hafa verið búinn að nefna það við útgerðarmenn o. fl. hver þörf væri á vitum á íslandi sem allar aðfluttar og útfluttar vörur verða að fara sjóleiðina að og frá landinu. Eftir heimkomuna 1881 hélt Markús áfram sjómennskunni og seglasaum að vetrinum ,en hafði jafnframt á hendi tilsögn í stýrimanna- fræði um nokkur ár. En 1885 fékk hann opin- beran styrk til þessarar kennslu, kr. 500 á ári og hélt honum þar til Stýrimannaskólinn var stofnaður 1890. Frá því 1885 að Markús fékk opinberan styrk til kennslunnar og til þess, að fyrstu prófin frá skólanum voru afgreidd 1893, hafði Markús útskrifað 18 nemendur, er stóðust próf í stýrimannafræði. Með stofnun Stýrimannaskólans var Markús gerður for- stöðumaður hans og aðal kennari. Fyrstu árin starfaði skólinn í leiguhúsakynnum, svo- nefndu „Doktorshúsi", er stendur enn, þó nokkuð sé það breytt og nú hefir fengið nr. 13 28

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.