Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1940, Qupperneq 5
Slippurinn
við
Lambhúsasund
flóabátsins og annara póstskipa, sem hingað
komu, en daginn eftir að slys þetta vildi til
kom ,,Reykjavíkin“ hingað með marga farþega
frá Reykjavík. Veður var þá mikið verra en
daginn áður, suðvestan stormur og meira
brim. Ég fór um borð eins og venjulega, úr
Steinsvör og vorum við sjö á stóru sexmanna-
fari. „Reykjavíkin“ lagðist ekki fyrir akkeri að
þessu sinni, af því spilið var í ólagi, en lét
reka á meðan við tókum á móti farþegum
niður í skii'ið og gekk það allt slysalaust og
höfðum við þá innanborðs 20—30 sjóveikar
og sjóhræddar konur. Við vorum á hléborða
við „Reykjavíkina“ og urðum að hafa góða að-
gæzlu á þ vi; að skipið brotnaði ekki, þegar
hún valt á okkur. Svo þegar við vorum ferð-
búnir og ætluðum að ýta frá, tókst svo áheppi-
lega til, að annar frammí-maðurinn hafði
hiunninn á árinni niðri í barka skipsins, en
blaðið festist í „Reykjavíkinni“ og svo þegar
hún valt á okkur, fór hlunnurinn á árinni
niður úr skipinu og fossaði þá inn sjórinn.
Við þetta kom mikið fát og hræðsla á skip-
verja mína og kvenfólkið og urðu hinir fyrr.
töldu fljótari til að bjarga sér um borð í
Reykjavíkina og var síðan tekið til óspilltra
mála að hjálpa kvenfólkinu upp. Einar 01-
geirsson togaraeigandi og skipstjóri, nú til
heimilis í Grimby, var þá háseti á Reykjavík-
inni og gekk vel fram í því, að bjarga kven-
þjóðinni um borð. En sjöl og önnur föt urðu
eftir í skipinu og tróð ég einu þeirra í gatið
og stöðvaðist þá lekinn að miklu leyti. Einar
á Bakka, sægarpur og formaður, var einn af
farþegunum úr Reykjavík. Hann kom niður
í skipið til mín, sem þá var orðið hálffullt af
sjó og hvatti háseta mína til að koma í land
með okkur og urðu fimm til þess, en þrír fóru
sem farþegar til Reykjavíkur. Ferðalagið í
land gekk að óskum og lentum við í Teigavör.
Var svo ekki meira af afgreiðslu í þetta sinn.
Akranesi, 25. marz 1940.
Haraldur Böðvarsson.
30 ára skipstjóraafmæli
Hinn 1. marz s.l. voru 30 ár liðin síðan Júlíus
Júliníusson réðizt sem skipstjóri á „Austra“,
er Thorefélagið þá átti.
Árið 1919 réðizt hann til Eimskipafélags
íslands sem skipstjóri á „Goðafossi“ og var
með hann ásamt fleiri skipum félagsins til
1927, er hann tók við „Brúarfossi“ og hefir
hann verið skipstjóri á honum síðan.
Júlíus Júliníusson er nú, bæði að árum og
skipstjóraldri, elztur þeirra manna, sem nú
hafa skipstjorn með höndum á verzlunar-
skipaflota okkar Islendinga.
„Víkingur“ árnar þessum aldursforseta
skipstjóranna á íslenzku verzlunarskipunum
allra heilla í framtíðinni.
5
VÍKINGUR